Morgunblaðið - 09.02.2017, Side 93
Sveini í Þjóðleikhúsinu 1961-62,
lærði söng hjá Sigurði F. Demetz
1958-61, var einn af stofnendum
Söngsveitarinnar Filharmoníu, söng
í MR kvartettinum og Stúd-
entakórnum og söng um áratuga-
skeið með Karlakórnum Fóst-
bræðrum og nú síðast með Gömlum
Fóstbræðrum.
Valdimar hefur skrifað fjölda
greina um íþróttir og útivist í blöð og
tímarit. Hann gaf út snældu með
morgunleikfimi, ásamt Magnúsi Pét-
urssyni píanista og söngbókina
„Valdimaríu“ 1987.
Valdimar var formaður Íþrótta-
kennarafélag Íslands 1957-58, for-
maður Íþróttanefndar ríkisins 1971-
91, var fyrsti formaður Fimleika-
samband Íslands 1968-70 og var
fyrsti formaður Ólympíuakademí-
unnar 1987-97.
Valdimar var Íslandsmeistari á
skíðum 1952 og í frjálsum íþróttum
1953. Hann tók þátt í fjölda stúd-
entamóta erlendis, var Frakklands-
meistari stúdenta á skíðum 1957 og í
þriðja sæti í stórsvigi á heimsmeist-
aramóti stúdenta í Zakopane í Pól-
landi 1958. Hann var í ólympíuliði Ís-
lands í alpagreinum í Cortina á
Ítalíu 1956 og var þjálfari og farar-
stjóri svigmanna á Ólympíu-
leikunum í Innsbruck 1964.
Valdimar er heiðursfélagi ÍSÍ og
FSÍ, og hefur m.a. hlotið riddara-
kross Fálkaorðunnar.
Fjölskylda
Valdimar kvæntist 19.3. 1963
Kristínu Jónasdóttur, f. 24.4. 1933,
fyrrv. flugfreyju og forstöðumanni
hjá Reykjavíkurborg. Hún er dóttir
Jónasar Jósteinssonar, fyrrum yfir-
kennara, og Grétu Kristjánsdóttur
húsmóður.
Synir Kristínar og Valdimars eru
1) Jónas, f.3.6. 1963, véla og orku-
verkfræðingur í Kaupmannahöfn,
var kvæntur Elsebeth Aller og eru
börn þeirra Laura Kristín frétta-
maður, Dagmar stúdent og Valdi-
mar Björn, nemi í menntaskóla;
Örnólfur, f. 4.11. 1964, bæklunar-
skurðlæknir, var kvæntur Sóleyju
Þráinsdóttur taugalækni og eru
börn þeirra Hinrik Þráinn verk-
fræðinemi, Kristín Valdís versl-
unarskólanemi og Valdimar Kára
grunnskólanemi, og Kristján, f. 12.1.
1967, bæklunarskurðlæknir í Bodö í
Noregi en kona hans er Caroline
Saga Tun skurðlæknir og börn
þeirra Una Kristín, Edda Sofie og
Sturla, grunnskólanemar.
Systkini Valdimars: Finnborg, f.
22.11. 1918, d. 13.6. 1993, útvarps-
þulur og leikkona; Þorvarður, f. 14.8.
1927, d. 28.3. 2013, lögfræðingur,
kennari og framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélags Reykjavíkur;
Anna, f. 30.12. 1928, d. 16.12. 1999,
bankamaður í Reykjavík; Guðrún, f.
5.12. 1929, d. 9.4. 1933; Ingólfur Ótt-
ar, f. 1.7. 1933, viðskiptafræðingur
og fyrrv. skrifstofustjóri; Arnbjörg
Auður, f. 4.5. 1935, söngkona; Þór-
unn, f. 21.10. 1937, d. 23.8. 2013, hús-
móðir; Margrét, f. 2.10. 1941, fyrrv.
læknaritari; Guðrún Úlfhildur, f. 1.8.
1943, húsmóðir, og Sigríður Ásta, f.
12.8.1946, húsmóðir.
Foreldrar Valdimars: Örnólfur
Valdimarsson, f. 5.1. 1893, d. 3.12.
1970, kaupmaður og útgerðarmaður,
og Ragnhildur Kristbjörg Þorvarð-
ardóttir, f. 24.2. 1905, d. 16.9. 1986,
kennari og húsmóðir. Þau bjuggu á
Suðureyri við Súgandafjörð til 1945
er þau fluttu til Reykjavíkur.
Úr frændgarði Valdimars Örnólfssonar
Valdimar
Örnólfsson
Ragnhildur Björg
Metúsalemsdóttir
húsfr., f. á Möðru-
dal á Fjöllum
Stefán Pétursson
pr. á Desjarmýri í Borgarf.
eystra og á Hjaltastað í
Hjaltastaðaþinghá
Anna Stefánsdóttir
húsfr., tók próf frá
Kennaraskólanum
Þorvarður Brynjólfsson
fríkirkjupr. á Reyðarfirði,
síðar pr. á Stað í Súgandafirði
Ragnhildur Kristbjörg
Þorvarðardóttir
kennari og organisti
Rannveig Ólafsdóttir
húsfr., frá Kalastaðakoti
á Hvalfjarðarströnd
Brynjólfur Oddsson
bókbindari og skáld á Ísaf. og í Rvík
Finnborg
Örnólfs-
dóttir
útvarps-
þula og
leikkona
Arnbjörg
Auður (Adda)
söngkona
Jóna Ingibjörg
Örnólfsdóttir
húsfr. á Flateyri
Stefán Þorvarðarson
sendiherra
Margrét
Örnólfsdóttir
fyrrv. læknaritari
Ragnhildur Dóra
Þórhallsdóttir
söngkona
Áslaug Hall
Proppé
húsfr. í Rvík
Óttarr
Proppé
forstj. í
Rvík
Ólafur
Proppé
fyrrverandi
rektor KHÍ
Óttar Proppé
bæjarstj. á
Siglufirði
Hrafnhildur
Proppé
húsfr. í
Garðabæ
Óttarr Proppé
heilbrigðis-
ráðherra
Kolbeinn
Proppé
blaðam.
og alþm.
Hulda Dögg
Proppé
kennari og
söngkona
Örnólfur
Kristjánsson
sellóleikari
Örnólfur
Árnason
rithöf.
Margrét
Örnólfsd.
tónlistar-
kona og
handrita-
höfundur
Olga
Guðrún
Árnad.
rithöf.
Salka Guð-
mundsd.
leikrita-
höfundur
Guðrún Bjarnadóttir
húsfr., f. á Ketilsstöðum
Sigfús Pálsson
b. á Ketilsstöðum
í Jökulsárhlíð,
síðar smiður á
Ísafirði
Guðrún Sigfúsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Valdimar Örnólfsson
bókhaldari á Suðureyri
og verslunarm. á Ísafirði
Örnólfur
Valdimarsson
kaupmaður og út-
gerðarm. á Suðureyri,
síðar bankam. í Rvík
Margrét
Jónsdóttir
húsfreyja, f. í
Fremri-Hnífsdal
Örnólfur Þorleifsson
skipstjóri á Ísafirði
ÍSLENDINGAR 93
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Guðmundur Björnsson fæddistí Urriðakoti í Garðahreppi9.2. 1917. Foreldrar hans
voru Björn Jóhannesson og Jónína
Guðmundsdóttir.
Eiginkona Guðmundar var Krist-
ín Benjamínsdóttir en börn þeirra
eru Hildur, Dagný, Björn, Edda og
Gunnar.
Guðmundur ólst upp í Urriðakoti
og síðar Hafnarfirði, lauk stúdents-
prófi frá MR 1937, læknaprófi frá
HÍ 1944, stundaði sérnám í augn-
lækningum í Bandaríkjunum og
dvaldi í Madison, Chicago og loks
Memphis. Hann var starfandi augn-
læknir í Reykjavík frá júní 1948 til
maí 1989. Hann starfaði í fyrstu á
Hvítabandinu en frá 1969 á Landa-
koti þar sem hann var yfirlæknir frá
1972-87. Auk þess rak hann stofu í
Lækjargötu og Domus Medica og
loks á Öldugötu. Guðmundur fór
reglulega í augnlækningaferðir um
Vesturland. Hann kom á fót göngu-
deild fyrir glákusjúklinga á Öldu-
götu, skipulagði vaktþjónustu augn-
lækna og var einn aðalhvatamaður
að stofnun Sjónstöðvar Íslands.
Guðmundur hóf kennslu í augn-
sjúkdómafræði við læknadeild HÍ,
fyrst sem dósent frá 1973 og pró-
fessor frá 1979 til ársloka 1987.
Guðmundur tók þátt í marg-
víslegum félags- og trúnaðarstörfum
og má þar nefna stjórn Læknafélags
Reykjavíkur, Nesstofu hf., Domus
Medica og Augnlæknafélag Íslands.
Einnig tók hann þátt í starfsemi
Oddfellow-reglunnar.
Guðmundur var mikilvirkur í
rannsóknum og skrifum. Hann varði
doktorsritgerð við HÍ 1967 og
fjallaði hún um gláku á Íslandi.
Hann var meðritstjóri norræna
augnlækningatímaritsins 1974-87.
Hann skráði sögu augnlækninga á
Íslandi til 1987 og kom hún út 2001.
Guðmundur var félagi í Vísinda-
félagi Íslendinga og heiðursfélagi
Augnlæknafélags Íslands. Hann var
sæmdur riddarakrossi fálkaorð-
unnar 1982.
Guðmundur lést 10.4. 2001.
Merkir Íslendingar
Guðmundur
Björnsson
85 ára
Ása Marinósdóttir
Bogi Sigurðsson
Edda Ásta Sigurðardóttir
Helga Jónsdóttir
Valdimar Örnólfsson
80 ára
Guðleif Helgadóttir
Guðrún Ásta Björnsdóttir
Jóhannes Vilbergsson
75 ára
Böðvar Jónsson
Garðar Árnason
Ingunn Cecilia Eydal
Jóhann Sigurjónsson
Páll Halldórsson
70 ára
Guðmundur Hjálmarsson
Haukur Ingibergsson
Ingibjörg Sigurlaugsdóttir
Sigríður Dýrfinna
Jónsdóttir
Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
Steinunn Guðjónsdóttir
60 ára
Bjarni Benediktsson
Einar Skúlason
Guðbjörg Erla
Helgadóttir
Guðbjörg Gísladóttir
Halldór Júlíusson
Haraldur Haraldsson
Haukur Þór Hauksson
Jóhann Tómasson
Jón Kristinn Bragason
Kazimierz Zdzislaw
Lempicki
Kári Björgvin Agnarsson
Kristján Þór
Hallbjörnsson
Valgerður Gestsdóttir
Wladyslaw Piotr Hubert
50 ára
Bin Liu
Björn Björnsson
Elín Sigurgeirsdóttir
Gísli Árni Snorrason
Gyða Björg Jónsdóttir
Jóhannes Hörður
Harðarson
Jórunn Sjöfn
Guðlaugsdóttir
Karl Arnar
Aðalgeirsson
Kolbrún Jónsdóttir
Linda Björk Gísladóttir
Linda Valdimarsdóttir
Malgorzata Skrocka
40 ára
Agnieszka Wioletta
Sobczak
Alejandro A. Catayas
Auður Ósk Emilsdóttir
Cirila Renegado Tabigue
Daði Árnason
Eðvald Ragnarsson
Guðmundur Páll Ólafsson
Jóhanna M. Fleckenstein
Karen Sóley Jóhannsdóttir
Óttar Orri Guðjónsson
Sigurður Árni Magnússon
Sigurður Hjaltalín
Þórisson
Sigurður Ingi Sveinsson
30 ára
Guðni Ellertsson
Ingi Árni Leifsson
Kristjana Hrönn
Árnadóttir
Leifur Ýmir Eyjólfsson
Ólafur Jakob Björnsson
Rakel Sif Hauksdóttir
Reynir Þór Jónsson
Sigríður Linda Helgadóttir
Þorvaldur Snæbjörnsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorvaldur býr í
Reykjavík, lauk BSc-prófi í
efnafræði frá HÍ og er efna-
fræðingur hjá Rannsóknar-
þjónustunni Sýni.
Maki: Ditte Hojgaard, f.
1984, starfsmaður hjá Ís-
lenskum fjallaleið-
sögumönnum.
Sonur: Snæbjörn Hojgaard
Þorvaldsson, f. 2016.
Foreldrar: Björk Guð-
mundsdóttir, f. 1957, og
Snæbjörn Þorvaldsson, f.
1957.
Þorvaldur
Snæbjörnsson
30 ára Rakel ólst upp í
Reykjavík, býr í Kópavogi,
lauk prófi sem lyfjatæknir
og er lyfjatæknir við
Landspítalann.
Maki: Einar Haraldsson, f.
1985, sjúkraþjálfari.
Sonur: Haraldur Snær
Einarsson, f. 2014.
Systir: Anný Rut Hauks-
dóttir, f. 1981.
Foreldrar: Ólöf Ingibjörg
Steinarsdóttir, f. 1962, og
Haukur Vilhjálmsson, f.
1957.
Rakel Sif
Hauksdóttir
30 ára Ólafur ólst upp í
Reykjavík, býr þar og
starfar við rafmagns-
viðgerðir hjá Nesradíó.
Systkini: Kolbrún Björns-
dóttir, f. 1974; Ólafur
Björnsson, f. 1981, og
Hannes Pétur Björnsson,
f. 1983.
Foreldrar: Sigþrúður
Ólafsdóttir, f. 1957, hjúkr-
unarfræðingur, og Björn
Júlíus Hannesson, f.
1954, rafeindavirki. Þau
búa í Reykjavík.
Ólafur Jakob
Björnsson
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is
Ertu í söluhugleiðingum?
Guðrún Antonsdóttir
Lögg.fasteignasali
Ég sel ALLT hratt og vel.
Mikil reynsla og þekking.
Hringdu núna, 697 3629
ég svara í símann.