Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 102

Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 102
102 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bíó Paradís og Goethe Institut, í samstarfi við þýska sendiráðið, standa fyrir Þýskum kvikmyndadög- um sem haldnir verða í sjöunda sinn frá og með morgundeginum til 19. febrúar. Sex nýjar eða nýlegar kvik- myndir verða sýndar og opn- unarmynd hátíð- arinnar verður Toni Erdmann, gamanmynd eftir leikstjórann Mar- en Ade sem vakið hefur mikla at- hygli og lof frá því hún var frumsýnd á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes í fyrra og hlaut þar FIPRESCI gagnrýnenda- verðlaunin, en hún hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga til viðbótar og er tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár fyrir bestu erlendu kvikmynd. Hinar kvikmyndirnar fimm eru Land of Mine, sem er framlag Dana til Óskarsverðlauna en að stórum hluta með þýsku tali, Frantz, Demo- cracy: Im Rausch der Daten, Der Staat gegen Fritz Bauer og Gleiß- endes Glück. Valið vandað „Það sem við gerum á hverju ári er að við förum á stærstu kvik- myndahátíðirnar í Evrópu. Við för- um á Cannes og á Berlínarhátíðina, en á henni er sérstakur flokkur helg- aður því nýjasta í þýskri kvikmynda- gerð. Við förum sérstaklega yfir þær myndir en höfum verið að vinna kvikmyndadagana með Goethe Insti- tut í Danmörku þar sem haldnir eru þýskir kvikmyndadagar í Kaup- mannahöfn. Þá samnýtum við kraft- ana því þetta eru mjög menning- arlega líkar borgir fyrir áhorfendur. Við veljum rjómann af því besta og reynum að hafa eina heimildarmynd og eina dramatíska þannig að línan er að hafa þetta fjölbreytt, bjóða upp á bestu myndir ársins en líka heim- ildarmynd og svo erum við alltaf með eina mynd fyrir skólasýningu sem við bjóðum þýskukennurum að skrá nemendur sína á,“ segir Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradísar, spurð að því hvernig myndirnar séu valdar. „Við gátum ekki annað en sýnt Toni Erdmann á dögunum í ár og haft hana sem opnunarmyndina. Þessi mynd sló algjörlega í gegn í Cannes, ég fór á fyrstu sýningu á henni þar, blaðamannasýningu, það hafði enginn séð myndina og stóð fyrir utan höllina með blaðamönnum og fólk var að óa og æja yfir því að vera að fara á þriggja tíma langa, þýska gamanmynd, velti því fyrir sér hvort það ætti að fá sér eitthvað sterkt út í kaffið. Húmor ferðast stundum svo illa, er oft svo staðbundinn, en á miðri sýningu á myndinni stóðu gestir upp og klöppuðu fyrir einu atriði hennar. Þessi kvikmynd hlaut Evrópsku kvikmyndaverðlaunin sem besta kvikmynd í fyrra, sem er mjög erfitt fyrir gamanmynd að gera, því þeir sem eru í þessu evrópska kvik- myndaráðinu eru hátt skrifaðir þeg- ar kemur að kvikmyndalæsi,“ segir Ása, augljóslega yfir sig hrifin af opnunarmyndinni. „Það er erfiðast í heimi að gera góða gamanmynd, skrifa góða sögu og vera með grín sem er alþjóðlegt og snertir ein- hvern sammannlegan streng,“ bætir hún við. Í Toni Erdmann segir af manni sem reynir með heldur klaufalegum hætti að bæta sam- bandið við dóttur sína, framakonu í viðskiptum. Fangar, missir og Eichmann Seinni heimsstyrjöldin kemur við sögu í þremur kvikmyndum hátíðar- innar: Land of Mine, Frantz og Der Staat gegen Fritz Bauer. Blaða- maður nefnir það við Ásu og segir hún að ekki hafi verið annað hægt en að sýna Land of Mine sem sé til- nefnd til Óskarsverðlauna, framlag Danmerkur til þeirra en framleið- endur bæði danskir og þýskir. „Okkur fannst eitthvað svo geggjað að geta sýnt tvær myndir sem eru tilnefndar til Óskarsverðlauna,“ segir Ása. Kvikmyndin er byggð á sannsögulegum atburðum og segir frá hópi þýskra stríðsfanga í seinni heimsstyrjöldinni sem voru þving- aðir af danska hernum til að fjar- lægja jarðsprengjur og gera þær óvirkar. Frantz er leikstýrt af Frakka, François Ozon og segir af ungri konu í þýskum smábæ sem syrgir unnusta sinn sem féll í seinni heimsstyrjöld- inni í orrustu í Frakklandi og Der Staat gegen Fritz Bauer byggir, líkt og Land of Mine, á sannsögulegum viðburðum og fjallar um þýska rík- issaksóknarann Fritz Bauer, sem komst á snoðir um hvar SS-foringinn Adolf Eichmann væri í felum og tókst á endanum að fá hann dæmdan í Ísrael fyrir stríðsglæpi þar sem hann var tekinn af lífi. „Þjóðverjar eru alltaf að fjalla um sína sögu, um stríðið, og það hefur kannski aukist núna á síðustu 10 til 15 árum því það er liðinn það langur tími frá þessum atburðum,“ segir Ása. Vekur upp spurningar Heimildarmynd kvikmyndadag- anna, Democracy: Im Rausch der Daten, er annars eðlis og segir Ása hana stórkostlega. Á vef Bíó Para- dísar segir að hún fjalli um sam- þykkt reglugerðar um verndun al- mennra upplýsinga, að umfjöllunar- efnið sé lýðræði í nútímasamhengi og myndin hafi vakið upp margar spurningar um upplýsingaöldina og þau regluverk sem unnið sé eftir. „Þegar myndin er gerð koma alls konar alþjóðlegir atburðir inn í málið sjálft sem verið er að fylgjast með, eins og Edward Snowden. Hann stökk allt í einu fram á sjónarsviðið og pólitískar hreyfingar í Evrópu byrja að spretta upp og fá meira fylgi, m.a. Píratar hérna á Íslandi. Það er verið að fjalla um lýðræði, hvernig við förum með upplýsingar og hver eigi þær,“ segir Ása. Finnst guð hafa yfirgefið sig Ekki má gleyma sjöttu kvikmynd daganna, Gleißendes Glück, sem segir af Helene Brindel sem er föst í óhamingjusömu hjónabandi. Hún hefur misst alla von því henni finnst guð einnig hafa yfirgefið sig en finn- ur huggun í hugmyndafræði sálfræð- ingsins Eduard E. Gluck og þau dragast að hvort öðru þegar Helene fer og leitar hann uppi. Kvikmyndin hlaut bæði FIPRESCI-verðlaunin og Europa Cinemas Label á kvik- myndahátíðinni í Karlovy Vary í fyrra. „Ég held þetta sé bara besta dag- skráin frá upphafi,“ segir Ása að lok- um um Þýsku kvikmyndadagana og bætir við að fólk geti gengið að því vísu að fá að sjá góðar, þýskar kvik- myndir og að dagarnir hafi fest sig í sessi í menningardagatali Íslend- inga. Upplýsingar um Þýska kvik- myndadaga má finna á bioparadis.is. „Besta dagskráin frá upphafi“  Sex kvikmyndir verða sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem hefjast á morgun í Bíó Paradís  Þýska gaman- og verðlaunamyndin Toni Erdmann verður opnunarmynd kvikmyndadaganna Bráðfyndin Úr opnunarmynd Þýskra kvikmyndadaga, gamanmyndinni Toni Erdmann, sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og fjölda verðlauna. Hún er framlag Þýskalands til Óskarsverðlauna í ár og þykir sigurstrangleg. Lýðræði Stilla úr Democracy: Im Rausch der Daten. Stríðsfangar Ungir Þjóðverjar í Land of Mine. Ása Baldursdóttir Rómantískt bókakvöld er yfirskrift bók- menntadagskrár í Bókasafni Reykjanesbæjar í kvöld, fimmtu- dag. Gestur kvöldsins er Katrín Jakobs- dóttir, formaður Vinstri grænna og bókmennta- fræðingur, en á undanförnum ár- um hefur hún talsvert fjallað um spennusögur. Katrín mun í kvöld fjalla um ástarsögur og aðrar afþreying- arbókmenntir. Einnig fjallar hún um ástina og persónur kvenna og karla í slíkum bókum og rýnir enn fremur í dæmi um kápumynd- ir slíkra sagna. Dagskráin með Katrínu hefst kl. 20 og er kynnt sem létt spjall og þá svarar hún spurningum gesta í lokin. Aðgangur er ókeyp- is og allir áhugasamir boðnir vel- komnir. Katrín veltir ástar- sögum fyrir sér Katrín Jakobsdóttir Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.