Morgunblaðið - 06.04.2017, Side 56
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Lofsverð umfjöllun
RÚV um listir og opnun
Marshall-hússins, hafa
aukið umræðu almenn-
ings og spurningar um
listir, listaverk og lista-
fólk.
Hvað er list? Hvað er
listaverk? Hver má
kalla sig listamann eða
listakonu?
Um allan heim eru
söfn, sem sýna hundr-
uða og þúsunda ára gömul listaverk.
Flest voru þau unnin af iðnstéttum
síns tíma. Þær stéttir réðu þá, og ráða
enn, yfir verkfærni sem lærist milli
kynslóða. Eru þá iðnaðarmenn lista-
menn og eru verk þeirra því listaverk?
Hvað gerir verk að listaverki?
Hvaða mælikvarðar gilda? Gerir
skynjun og upplifun áhorfandans verk
að listaverki? Gerir áletrun höfundar
verk að listaverki? Gerir almanna-
rómur verk að listaverki? Gerir ein-
lægni höfundar verk hans að lista-
verki? Getur listaverk staðið, sem
slíkt, undir sjálfu sér án áritunar höf-
undar?
Efnisbundin og hlutgerð hugsun
og tilfinning kallast sköpun
Allt fólk hefur í eðli sínu að skapa.
„Snjókallinn“, blómum prýddar sól-
þurrkaðar drullukökur, frásögn á
blaði, skreyttar tertur og „smörre-
bröd“. Endurröðun á húsgögnum,
myndum og skrautmunum eru allt
skapandi athafnir. Sjálfráðar hugs-
anir og tilfinningar, sem hafa verið
efnisbundnar, – sem sköpun.
Við skapandi athöfn er bilið líklega
lengst milli mannkindarinnar og sauð-
kindarinnar.
Sköpun listaverka algengasta at-
höfn hverrar manneskju
Listaverk eru árangur af viðleitni
einstaklinga til að efnisbinda hugsanir
sínar og tilfinningar. Sá árangur heitir
sköpun. Rithöfundurinn efnisbindur
hugsun sína og tilfinningu með texta.
Málarinn með litum.
Tónskáldið efnisbindur
upplifun sína og hugsun
með því að teikna nótur
á blað. Túlkendur texta
og tóna ljá þeim massa
með rödd sinni og lík-
amsbeitingu. Þannig
efnisbinda þeir eigin tif-
inningar og skapa lista-
verk.
List þarf ekki að
vera skiljanleg
Listaverk þarf ekki
að hafa neinn annan tilgang en þann,
að skapa það. Fólkið sem dregur sam-
an alls kyns „drasl“ að raða kringum
sig inni sem úti. Fólkið sem leggur
torf og möl á gólf í sýningarsal. Fólkið
sem sýnir sig dögum saman nakið í
glæru búri og pissar þar og kúkar.
Það er allt að efnisbinda einhverja til-
finningu og hugsun. Það er að skapa.
Listfræðingar, langlærðir af bókum,
hafa vottað slíkar athafnir. Þær kall-
ast nú gjörningalist og njóta viðeig-
andi álits.
Öll sköpun er listaverk
Ég vék að því hér framar að það
sem breiðast væri milli mannkind-
arinnar og sauðkindarinnar væri
hæfileikinn að efnisbinda hugsun sína
– skapa. Sá hæfileiki er öllum gefinn. Í
uppeldisfræðum er alþekkt að fátt
örvar þann hæfileika betur og meir en
frjáls „listaiðkun“ í leik og starfi,
barna og fullorðinna. Að setja hömlur
og bönn á listaiðkun jafngildir því að
reyna að ritskoða frjálsa hugsun.
Frjáls hugsun er upphaf flestra
framfara og alls lýðræðis. Hana má
aldrei hefta eða banna.
Allar manneskjur
eru listamenn
Eftir Birgi Dýrfjörð
» Fólkið sem sýnir sig
dögum saman nakið
í glæru búri og pissar
þar og kúkar.
Birgir Dýrfjörð
Höfundur er rafvirkjameistari.
bd@mi.is
Reykholt í Borgar-
firði á sér langa og
áhugaverða sögu.
Landnáma getur um
að Oddur á Breiða-
bólstað hafi farið þar
til laugar og til-
tölulega góðar heim-
ildir eru um setlaug-
ina og vatnslögn úr
hvernum Skriflu að
henni, en á seinni öld-
um fékk hún heitið
Snorralaug. Hér á eftir verður að-
eins getið minja sem benda til að
þar hafi verið gerðar tilraunir með
notkun hveragufu til húshitunar,
þær fyrstu sem um er vitað.
Við byggingaframkvæmdir árið
1929 fannst þarna á bæjarhólnum
forn niðurgrafin hlaðin lögn og
segir Matthías Þórðarson frá
þessum fundi í grein í Morg-
unblaðinu 20. júlí 1947: „… „tel ég
vafalaust, að hafi verið gufuleiðsla
frá Skriflu til bæjar,“ skrifaði
sjera Einar Pálsson um leið og
hann sendi einn af steinunum til
Þjóðminjasafnsins.“ Þessi steinn
er að langmestu útfelling á kísli úr
hveravatni og er að líkindum feng-
inn úr námu sem var á Úlfs-
stöðum í nágrenni Reykholts.
Þangað voru á sínum tíma sóttar
hellur til hleðslu veggja og í stétt-
ir en Snorralaug er að mestu gerð
úr þannig hellum.
Tiltölulega auðvelt
er að höggva til
þessa svonefndu
hverasteina og í
safnaskrá Þjóðminja-
safnsins stendur um
þennan einstaka
Reykholtsstein, nr.
10584: „[...]höggvin
eptir honum, annars
vegar, ca. 15 cm
breið skora, svo sem
helmingur væri af sí-
valri pípu, dýptin um
7,5.“
Síðar á öldinni fannst hluti af
gamalli gufulögn nær Skriflu en
sérstakt átak í rannsókn forn-
minja hófst á árinu 1997 undir
stjórn Guðrúnar Sveinbjarn-
ardóttur. Þá fannst hellulagður
húsgrunnur og var aldur hans þá
áætlaður frá 13. eða 14. öld. Hann
var í beinum tengslum við gufu-
lögnina sem kom í ljós árið 1929
en sú lögn var mikið í umræðu í
héraðinu á þeim tíma.
Þá var höfundur ungur að árum
en hlustaði af athygli og gleymdi
aldrei síðan. Af tilviljun fór hann
á fund í Reykholti árið 2002 þar
sem þessar minjar voru kynntar
og meðal annars vegna fjöl-
breyttra fyrri starfa þóttist hann
sjá að um gæti verið að ræða
upphitun á gólfi og greindi þá
þegar frá þeirri tilgátu.
Fyrir meira en tveim árþúsund-
um þróuðu Rómverjar hitunar-
kerfi úr eldri aðferðum, hypo-
caust, sem mætti kalla gólfhitun
með eldi, en það var notað af efna-
fólki fram á miðaldir. Rekja má
feril notkunar þess til Englands
og síðan til Þrándheims, sem þá
hét Niðarós, í Noregi á árunum
1231-52 en þar fannst eina af-
brigði hypocaust þar í landi.
Snorri Sturluson dvaldi í Niðar-
ósi á árunum 1237-39 og gæti hafa
séð möguleika og fundið getu sína
til að nýta hveragufuna frá Skriflu
til hitunar gólfs í stað reyks frá
eldi. Bæði minjar og saga benda
til að unnið hafi verið að þessari
virkjun hveragufu á síðustu árum
Snorra Sturlusonar, henni hafi
aldrei verið lokið og því ekki reynt
á notagildið til hitunar húsa.
Þegar lítið er vitað um verk-
efnið og það er að auki án þekktra
fordæma verður verulegur hluti
athugana að fara fram með til-
gátum sem síðan er unnið með á
ýmsa vegu. Margvíslegar athug-
anir höfundar til úrlausnar öllum
þessum gátum hafa verið áhuga-
mál og tómstundastarf eftir
kynningarfundinn fyrrnefnda.
Kannaðar voru rannsóknaskýrslur
og einnig aðrar ritaðar heimildir
bæði beinar og óbeinar, einkum í
Sturlungu. Leitað var upplýsinga
og aðstoðar hjá ýmsum með marg-
víslega þekkingu og hæfileika.
Höfundur birti ritgerð um þetta
efni í Borgfirðingabók 2016 og
framsetningu hagað þannig að
áhugasamir gætu metið gildi þess-
ara athugana á eigin forsendum.
Sérprentun, sem nú er á netinu,
er með viðbótum og útdrætti á
ensku eftir Véstein Ólason, en
hann hefur hvatt, leiðbeint og að-
stoðað höfund um árabil. Leit-
arorð: Reykholt á Sturlungaöld –
tilraun með hveragufu til húshit-
unar (Rafhlaðan.is Leitir.is Go-
ogle.is).
Reykholt á Sturlungaöld – Tilraun
með hveragufu til húshitunar?
Eftir Guðmund
Þorsteinsson » Bæði minjar og saga
benda til að unnið
hafi verið að þessari
virkjun hveragufu á síð-
ustu árum Snorra
Sturlusonar, henni hafi
aldrei verið lokið og því
ekki reynt á notagildið
til hitunar húsa.
Guðmundur
Þorsteinsson
Höfundur er áhugamaður
um ýmis fræði.
mundi@simnet.is
Reykholtssteinninn „[...] höggvin eptir honum, annars vegar, ca. 15 cm
breið skora, svo sem helmingur væri af sívalri pípu, dýptin um 7,5.“
Fæst í FK og Hagkaup
Frábært
bragð
ÍBÚÐ TIL LEIGU Í SÓLTÚNI
ÖRYGGIS- OG ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI
Sóltún 1 ehf | Laugavegi 182 | 105 Reykjavík
Sími 563 1440 | soltunibudir@soltunibudir.is | www.soltunibudir.is
2ja herbergja íbúð á jarðhæð
til leigu við Sóltún 1-3.
Íbúðin leigist með stæði í upphituðum
bílakjallara og geymslu í kjallara.
Stór verönd sem snýr í há-suður.
Aðgengi að mat í hádeginu á virkum
dögum, heimahjúkrun og heimaþjónustu
gegn gjaldi.
Íbúðin leigist ótímabundið.
Gerð er krafa um 3ja mánaða tryggingu.
Íbúðin er í byggingu og leigist frá og með
15. júlí 2017.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
PO
RT
hö
nn
un
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
mbl.is
alltaf - allstaðar