Morgunblaðið - 13.01.2018, Page 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Stuðmenn eru eins lýsi, rennandi
kranavatn, snúður með súkku-
laðiglassúr eða hvaðeina íslenskt
sem umlykur okkur alla daga og
við tökum nánast sem sjálfsögðum
hlut – en berum um leið óskerta
elsku til. Lög, kvikmyndasenur og
frasar eru svo gott sem hluti af
DNA-þráðum valinna kynslóða
hérlendis. Og Stuðmenn slá ekki
slöku við og reglubundið svipta
þeir upp tónleikum eða öðrum
gjörningum og er þessi alíslenska
fyndni þeirra, bæði hnyttin og súr-
realísk, jafnan í forgrunni. Það
nýjasta er hinn svonefndi Astral-
tertukubbur sem kom út rétt fyrir
jól og er hann í raun réttri ný
Stuðmannaplata, heitið vísun í eitt
af atriðum hinnar ódauðlegu kvik-
myndar sveitarinnar, Með allt á
hreinu. Ber hann líka nafn trym-
bilsins, Ásgeirs Óskarssonar, og er
silfraður og ferningslaga, líkt og
flasskubbur myndavéla. Inni í
kubbnum er að finna aðgangs-
upplýsingar að vefsíðu hvar hægt
er að hala niður ellefu nýjum Stuð-
mannalögum. Ásamt ýmsu öðru
sem aðeins Stuðmenn hefðu getað
kokkað upp.
Víst er að liðsmenn hafa
skemmt sér konunglega við upp-
tökur laga og leyft sér að sletta
ærlega úr klaufunum, tónrænt séð.
Farið er víða um völl; stuðlög og
ballöður í einum bing. Egill rokkar
eins og Sæmi rokk á einum stað,
bregður svo á sig sjóhattinum í
öðru lagi sem er í djúpum reggígír
og Dísa Jakobs, nýjasti Stuðmað-
urinn, syngur ægifallega tvö lög,
Bassinn er suður
í Borgarfirði
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Kosmískir Stuðmenn fara eigin leiðir að vanda.
eins og hún á kyn til. Hljóðfæra-
leikur, hljómur og slíkt er í hæstu
hæðum og farið er um velli víða að
vanda en það er kannski sammerkt
með plötum Stuðmanna að stíla-
flökt er venjulega mikið, enda
sprúðlandi sköpunarkraftur innan-
borðs sem verður trauðla haminn.
Hugurinn fer á reik þegar
hugsað er um þessa mektarsveit,
þennan hóp hæfileikamanna.
Kubburinn kallar fram „flass“ úr
fortíðinni og meistaraverk þeirra
frá áttunda áratugnum koma í
hugann, tvær plötur sem eru
glæsilegur vitnisburður um það er
snilldin rennur óheft og óhikað úr
fólki. Fyrri platan er auðvitað
Sumar á Sýrlandi, af mörgum talin
ein besta poppplata Íslandssög-
unnar en sú síðari er Tivoli, óður
sömu sveitar til æskuára og heima-
haga. Jú, Stuðmenn geta flippað
en ögn alvarlegri undirtónn er
þarna líka. Plöturnar tvær eru
gjörólíkar; sú fyrri varð nánast til
fyrir slysni, var hent saman í hálf-
gerðu bríaríi úti í Lundúnum og
býr yfir einhverjum óræðum töfra-
mætti sem enn þann dag í dag
kemur manni í opna skjöldu. Tivoli
er til muna „fágaðri“ ef svo mætti
segja, heilsteyptara verk og tema-
bundið, þar sem meðlimir setja
uppvöxt sinn og samfélag undir
smásjána, með gamla Tívolíið í
Vatnsmýrinni sem sögusvið. Tivoli
er það sem kallað er fullkomin
poppplata, það er ekki snöggan
blett að finna á þeim fjórtán lögum
sem hana prýða, eins ólík og þau
eru nú innbyrðis.
Eða eins og Tómas Tómasson,
Stuðmaður og bassaleikari, sagði
með sinni óborganlegu kímni – og
vísa ég reyndar í hann í fyrirsögn-
inni einnig –: „Það má vera eitt-
hvað sem er dálítið væld, en samt
þannig að snyrtimennskan sé
ennþá í fyrirrúmi.“
» Það er kannskisammerkt með plöt-
um Stuðmanna að stíla-
flökt er venjulega mikið,
enda sprúðlandi sköp-
unarkraftur innanborðs
sem verður trauðla
haminn.
Engum nema Stuð-
mönnum hefði dottið í
hug að gefa út svokall-
aðan Astraltertukubb
utan um nýjustu tón-
smíðar sínar en venju-
bundnar slóðir hafa
þeir aldrei troðið.
Pistilritari veltir
kubbnum og þessari
eðla sveit fyrir sér.
Sýningunni Mál 214 lýkur í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur um
helgina. Á henni stillir velski ljós-
myndarinn Jack Latham saman ljós-
myndum sem hann hefur tekið á
stórformatsmyndavél í tengslum við
Guðmundar- og Geirfinnsmálið;
meðal annars af fólki sem kemur við
sögu og ýmsum stöðum sem minnst
er á í skýrslum, og síðan lögreglu-
ljósmyndum sem tengjast málinu.
Latham ræðir á lokadegi sýning-
arinnar, á sunnudag kl. 14, við sýn-
ingargesti og fer samtalið fram á
ensku. Aðgangur að spjalli lista-
mannsins er ókeypis.
Í lofsamlegri gagnrýni um sýn-
inguna hér í Morgunblaðinu sagði
meðal annars að þetta væri sýning
sem „áhugafólk um skapandi mynd-
list og forvitnilega úrvinnslu lista-
manna á mikilvægum samtímamál-
efnum má alls ekki missa af“. Stór
ljósmyndaprent Lathams eru sögð
njóta sín einstaklega vel og er „kald-
hömruð og hlutlæg nálgunin
heillandi“.
Sýningu um Guðmundar-
og Geirfinnsmál lýkur
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Ljósmyndarinn Jack Latham ræðir
við gesti í Ljósmyndasafninu.
Leikarinn og leikstjórinn James
Franco hefur nú verið sakaður
um kynferðislega áreitni og mis-
notkun af fimm konum og þar af
eru fjórar fyrrverandi nemendur
hans í leiklistarskóla í New York,
Studio 4. Dagblaðið Los Angeles
Times greindi fyrst frá ásök-
ununum.
Tvær kvennanna, Violet Paley
og Sarah Tither-Kaplan, hafa
bætt við þær ásakanir sem þær
birtu á Twitter eftir að Franco
hlaut Golden Globe-verðlaunin
fyrir leik sinn í The Disaster Art-
ist um síðustu helgi. Franco svar-
aði því til í spjallþætti að lýsingar
kvennanna á atburðum væru ekki
alls kosta réttar en neitaði þó
ekki sök.
Tither-Kaplan hefur leikið
nokkrum sinnum undir stjórn
Franco og heldur því fram að
hann hafi misnotað vald sitt sem
leikstjóri. Hann hafi m.a. fjarlægt
plasthlífar af kynfærum leik-
kvenna og líkt
eftir munn-
mökum. Þá mun
Franco hafa
reiðst þegar
fyrrverandi
nemendur hans,
sem nú eru leik-
konur, vildu
ekki vera ber-
brjósta við tök-
ur á atriði sem átti að gerast á
nektarstað. Paley átti í stuttu
sambandi við Franco fyrir tveim-
ur árum og segir hann hafa
þvingað hana til munnmaka.
Fimm konur saka Franco um misnotkun
James Franco
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
AGM þurrir rafgeymar fyrir Start-Stop bíla
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Viðurkenndir
af öllum
bílaframleiðendum
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50
Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 6, 8 Sýnd kl. 2, 5, 10 Sýnd kl. 1.40, 3.50