Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
a Auðveldara að þrífa penslana
aGufar ekki upp
aMá margnota sama löginn
aNotendur anda ekki að sér eiturefnum
a Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum
aUNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn
Hágæða umhverfisvæn hreinsivara
Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunumLaugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir
í fötum
Ný sending af
glæsilegum
jakkafötum frá
Frábært úrval!
B E C K
U O M O
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að auglýsa breyt-
ingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar Hall-
armúli 2. Nú er á lóðinni tveggja hæða versl-
unarhús en leyft verður að hækka bygginguna
í fimm hæðir og innrétta þar hótel. Á næstu
lóð, Suðurlandsbraut 2, er hótelið Hilton
Reykjavík Nordica, níu hæða bygging.
Í skipulagslýsingu Yrki arkitekta, sem er
grunnurinn að nýju deiliskipulagi, kemur fram
að nýtingarhlutfall á reitnum verði aukið úr
0,99 í 2,11. Bygging ofanjarðar geti orðið allt
að 6.800 fermetrar og einnig er gert ráð fyrir
bílakjallara. Bílastæðum ofanjarðar á lóðinni
mun fækka. Lóðin sjálf er alls 3.081 fermetri.
Á lóðinni stendur nú tveggja hæða versl-
unarhús, byggt 1971. Fyrirtækið Tölvutek
rekur verslun í húsinu. Fram kemur í skipu-
lagslýsingunni að gerð hafi verið frumathugun
á burðarvirki núverandi húss með tilliti til
þess að byggja ofan á það 6-8 hæðir. Nið-
urstaðan var sú að raunhæft sé að láta núver-
andi hús standa með því að fjarlægja þakið og
styrkja burðarvirkið.
Ef í ljós komi engu að síður að ekki verði
hægt að halda í núverandi byggingu og byggja
ofan á hana verður heimilt að rífa hana og
byggja í staðinn nýtt hús frá grunni.
Byggingin er í nokkrum halla. Efsta hæðin
verðir inndregin en til vesturs mun hún stall-
ast niður í 1. hæð. Gert er ráð fyrir gróðri á
þaksvölum og gróðurveggjum sem myndi eins
konar gróðurbrekku frá þaki niður á jörð. Inn-
gangur verður frá Hallarmúla.
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu í janúar
síðastliðnum að Reykjavíkurborg hafi gert
samkomulag við félagið HM2 ehf um upp-
byggingu á lóðinni. Það er til heimilis í Borg-
artúni 24. Samkvæmt Creditinfo eiga þrír
fjárfestar jafnan hlut í félaginu. Þeir heita
Stefán Már Stefánsson, Ellert Aðalsteinsson
og Elmar Freyr Jensen. Hin fyrirhugaða upp-
bygging á reitnum fellur undir samþykkt um
samningsmarkmið Reykjavíkurborgar á nýj-
um uppbyggingarsvæðum vegna þéttingar
byggðar sem samþykkt var á fundi borgarráðs
27. nóvember 2014, að því er fram kemur í
minnisblaði skrifstofu eigna og atvinnuþróun-
ar hjá Reykjavíkurborg. Til stendur frekari
uppbygging í Múlahverfinu enda bjóða margir
reitir þar upp á frekari þróun og uppbygg-
ingu.
Sem fyrr segir stendur eitt stærsta hótel
Reykjavíkur, Hilton Reykjavík Nordica, á
næstu lóð. Hótelið hét upphaflega Hótel Esja.
Byggingin var stækkuð um 7.300 fermetra í
byrjun þessarar aldar og við það fjölgaði her-
bergjum um 108 eða í 280.
Fyrir breytingu Byggt verður ofan á lágreista húsið þar sem Tölvutek rekur nú verslun.
Mynd/Yrki arkitektar
Eftir breytingu Svona sjá arkitektarnir fyrir sér að hið nýja hótel á reitnum muni líta út.
Fimm hæða hótel rís við Hallarmúla
& Áformað að byggja ofan á lágreist verslunarhús & Bygging ofanjarðar verður 6.800 fermetrar
Séð frá Lágmúla Hið nýja hótel mun rísa á
baklóð Hilton Reykjavík Nordica hótelsins.
Fyrirtöku í máli
Benedikts Boga-
sonar hæstarétt-
ardómara gegn
Jóni Steinari
Gunnlaugssyni,
fyrrverandi
hæstaréttardóm-
ara, sem átti að
fara fram í Hér-
aðsdómi Reykja-
víkur í gær var
frestað til 12. apríl. Málið var þing-
fest í nóvember síðastliðnum, en að-
almeðferð fer fram í júní.
Benedikt höfðaði málið vegna
ummæla í nýlegri bók Jóns Steinars
Með lognið í fangið – Um afglöp
hæstaréttar eftir hrun. Taldi Bene-
dikt ummæli Jóns um dómsmorð
dómara við réttinn í máli ákæru-
valdsins gegn Baldri Guðlaugs-
ssyni, fv. ráðuneytisstjóra, vera
ærumeiðingar. Vill Benedikt að
fimm ummæli verði dæmt ómerk.
Fyrirtöku í Héraðs-
dómi var frestað
Benedikt
Bogason