Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Svar ráðherra um
heiti Reykjavíkur
Í frétt Morgunblaðsins í gær um
heiti höfuðborgarinnar kom ekki
fram orðréttur textinn í svari
samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra við fyrirspurn Björns
Levís Gunnarssonar þingmanns
Pírata.
Í svari ráðherra segir:
„Reykjavík er höfuðborg Íslands,
sbr. 2. mgr. 10. gr. sveitarstjórn-
arlaga. Heiti sveitarfélagsins er
Reykjavíkurborg, sbr. samþykkt
um stjórn Reykjavíkurborgar og
fundarsköp borgarstjórnar, nr.
715/2013.“
ÁRÉTTING
Forseta Kína, Xi Jinping, sem fyrir
fáeinum dögum var endurkjörinn,
voru í gær sendar heillaóskir frá for-
seta Íslands, Guðna Th. Jóhannes-
syni. Í kveðju sinni áréttar Guðni
mikilvægi þess að þjóðarleiðtogar
„stuðli að friði í heiminum og leitist
við að veita fólki öryggi og hagsæld,
tryggja réttindi þess og ein-
staklingsfrelsi“.
Í bréfi sínu nefnir forseti Íslands
jafnframt farsælt samstarf Kínverja
og Íslendinga á fjölmörgum sviðum
um langt árabil; viðskipti landanna
hafi aukist jafnt og þétt í kjölfar frí-
verslunarsamnings sem undirrit-
aður var árið 2013 og samvinna ís-
lenskra og kínverskra fyrirtækja um
hitaveitur í kínverskum borgum hafi
reynst afar farsæl og stuðlað að
bættum loftgæðum í Kína. Að end-
ingu nefnir forseti að Kínverjum
sem heimsækja Ísland fjölgi ört og
að hann hafi væntingar um að sam-
starf þjóðanna verði áfram gott.
Vinni að öryggi og hagsæld
Forseti Íslands sendi í gær einnig
heillaóskir til Vladimírs Pútíns sem
var endurkjörinn forseti Rússlands
um liðna helgi. Í kveðjunni minnti
Guðni Th. Jóhannesson á þá skyldu
þjóðarleiðtoga að vinna að öryggi og
hagsæld fólks. Brýnt sé að fulltrúar
ríkja geti rætt saman af hreinskilni.
„Miklu skiptir að þjóðarleiðtogar
leiti ætíð friðsamlegra lausna þar
sem ófriður ríkir og styðji hvarvetna
öryggi, hagsæld og einstaklings-
frelsi,“ segir í tilkynningu frá skrif-
stofu Íslands. Þar er oft haft eftir
Guðna að þrátt fyrir sviptingar á al-
þjóðavettvangi hafi samskipti Ís-
lands og Rússlands verið báðum
ríkjum hagfelld. Framtíð norður-
slóða og íbúa þeirra byggist á sjálf-
bærri þróun, umhverfisvernd og
góðri samvinnu þjóða.
Sendi heillaóskir til Jinping og Pútín
Xi
Jinping
Vladimír
Pútín
Allt um sjávarútveg
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Ný sending af
sundfatnaði frá
Calvin Klein
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
Kápurnar komnar
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Kvarterma
bolir
Kr. 3.900.
Str. 4050
fleiri litir og munstur
Bonito ehf. • Praxis• Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.praxis.is
Opið mán. og mið. 11-17, fim. 16-18.
Útsala
30-70%
afsláttur
...Þegar þú vilt þægindi
LOKAÐ 26. mars til 10. apríl v. páskaleyfa.
Hægt er að senda pantanir á praxis@praxis.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flottar yfirhafnir, fyrir flottar konur Str.
38-58
Miðstöð íslenskra
bókmennta auglýsir
eftir umsóknum um
Nýræktarstyrki
Styrkirnir eru veittir árlega til að styðja við útgáfu
skáldverka höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á
ritvellinum og hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut.
Átt er við skáldverk í víðri merkingu orðsins.
Umsóknarfrestur er til
16. apríl 2018
Umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar á
www.islit.is
DIMMALIMM
Vor/sumar
2018
Full búð af
nýjum vörum
DimmalimmReykjavik.is
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17