Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 104
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Ekkert eðlilegt við þetta
- Svakaleg sigurkarfa Kára Jónssonar - Blaut tuska í andlit Keflvíkinga
- Stemning Stólanna - Fyrirhafnarlítið hjá KR - Kapp ber fegurð ofurliði
Það er ekki auðvelt að henda í pistil
þegar maður er orðlaus og þið verð-
ið að fyrirgefa ef ég rugla bara í
þessum pistli. Það þarf mikið til að
ég verði orðlaus en undrabarninu úr
Hafnarfirði tókst það með svakaleg-
ustu sigurkörfu sem ég hef nokkurn
tímann séð og hef ég séð ýmislegt á
langri ævi.
Það er ekkert eðlilegt við það að
skora sex stig á rúmum þremur sek-
úndum. Fyrst þrjú víti til að jafna
leik í úrslitakeppni og síðan skora úr
eigin vítateig. Ég er farinn að spyrja
mig spurninga: úr hverju Kári er
gerður. Er hann einhver ofurhetja
sem er ekki mannleg nema að hluta
til? Hann hefur skorað fleiri sig-
urkörfur frá eigin vallarhelming í
gegnum tíðina en þarna toppaði
hann allt saman.
Samningur við djöfulinn?
Venjuleg manneskja myndi líka
verða pínu stressuð á vítalínunni
með þá pressu að þurfa að hitta úr
öllum þremur vítaskotunum til að
jafna leikinn. Maður sá á andlitinu á
krakkanum að hann væri að fara að
hitta þeim öllum. Öll þrjú snertu
ekkert nema netið. Gerði hann
samning við djöfulinn fyrir ein-
hverju síðan?
Eins sætt og það var fyrir Hauka
að vinna með svona ævintýralegum
hætti þá er það jafn skelfilegt fyrir
Keflavík að tapa svona. Þvílíka tusk-
an í andlitið eftir að hafa verið með
leikinn í hendi sér. Ég hefði örugg-
lega farið að grenja um leið og sig-
urskotið söng í netinu. Það verður
ekki auðvelt fyrir Keflvíkinga að rífa
sig upp eftir þetta í leik þrjú. Ég
gæti trúað að þeim liði eins og örlög-
in hafi gripið inn í og þeim ekki ætl-
að að vinna leik í þessari seríu. Það
er heldur ekki sanngjarnt þegar hitt
liðið er með ofurhetju sem getur
hluti sem enginn annar getur og
sem er ekki hægt að stöðva.
Grindavík hefur ekki
andlega styrkinn
Grindvíkingar voru svo nálægt
því að vinna á Króknum í fyrsta leik
sínum gegn Tindastóli og voru sjálf-
um sér verstir í lokin þegar kom að
því að innsigla sigurinn. Þeir virðast
ekki hafa náð að vinna úr þessu sára
tapi fyrir norðan og steinlágu á
heimavelli í leik tvö. Þegar maður
upplifir sárt tap þá reynir á and-
legan styrk sem Grindavík virðist
ekki hafa. Annað hvort draga sár
töp lið niður eða lið styrkjast við
slíkt mótlæti. Grindavík algjörlega
brotnaði í næsta leik á meðan Tinda-
stóll lék á als oddi.
Sigtryggur Arnar Björnsson virð-
ist ekki geta átt slaka leiki þetta
tímabilið með Stólunum og Antonio
Hester er búinn að vera svakalegur
undanfarið. Þá er ákveðin stemning
með Stólunum þetta tímabilið sem
erfitt er að eiga við.
KR í gírnum en
Vinson er horfinn
KR-ingar virðast ekki þurfa að
hafa mikið fyrir því að komast í und-
anúrslit. Ég var á því að Njarðvík-
ingar myndu gíra sig vel upp fyrir
þessa seríu eins og alltaf gegn KR í
úrslitakeppni en annað er að koma á
daginn. KR-ingar eru mættir í úr-
slitakeppnisgírinn á meðan Njarð-
víkingar eru að spila eins og það sé
ennþá deildarkeppni í gangi í nóv-
ember. Terrell Vinson hefur al-
gjörlega horfið í þessum leikjum eft-
ir frábæran vetur fram að
úrslitakeppninni. Njarðvíkingar
mega ekki við því en þessi máttlausa
frammistaða verður ekki eingöngu
skrifuð á hann því fleiri leikmenn
eiga töluvert inni.
Séra Friðrik væri farinn
Á meðan það stefnir í að öllum
þremur Suðurnesjaliðunum verði
sópað út þetta árið þá verður rimma
ÍR og Stjörnunnar væntanlega mest
spennandi í 8-liða úrslitum. Stjarn-
an gerði vel og jafnaði metin á
heimavelli og virðast þessi lið vera
nokkuð jöfn. Kappið virðist ætla að
bera fegurðina ofurliði í þessari ser-
íu og er ég viss um að séra Friðrik
væri búinn að yfirgefa leikina í fyrri
hálfleik.
En baráttan og vinnusemin er til
fyrirmyndar hjá báðum liðum og
leikirnir algjörlega stál í stál. Þetta
verður alvöru viðureign áfram og
yrði ég ekki hissa ef hún færi í odda-
leik.
Morgunblaðið/Golli
Ótrúlegur Kári Jónsson skoraði einhverja mögnuðustu körfu í sögu körfu-
boltans á Íslandi þegar Haukar unnu Keflvíkinga 85:82 í fyrrakvöld.
SÉRFRÆÐINGUR MORGUNBLAÐSINS
Benedikt Guðmundsson
benediktrunar@hotmailmail.com
Benedikt Guðmundsson er reyndur körfuboltaþjálfari og fyrrverandi íþróttafrétta-
maður sem er sérfræðingur Morgunblaðsins í körfubolta í vetur. Í dag fer hann yfir
stöðu mála eftir tvo leiki í átta liða úrslitum karla.
Fátt var meira rætt manna í
millum í gær en ævintýrleg sig-
urkarfa Kára Jónssonar, leik-
manns Hauka, í annarri viðureign
Keflavíkur og Hauka í fyrrakvöld.
Eftir að hafa unnið boltann á síð-
ustu sekúndubrotum leiksins þá
kastaði Hafnfirðingurinn ungi
boltanum yfir endilangan leik-
völlinn og smellhitti ofan í körf-
una. Eflaust var kastið á þriðja
tug metra.
Karfan góða tryggði Haukum
sigur í leiknum en nokkrum and-
artökum áður sáu menn eflaust
fram á að leikurinn yrði fram-
lengdur.
Fáeinum sekúndum áður
en Kári skoraði sigurkörfuna
góðu hafði hann jafnað leikinn
fyrir Haukana þegar hann sýndi
einstaka yfirvegun og skoraði úr
vítaskotum, nánast án þess að
blikka auga, raunar brosti hann,
þegar flestir hefði nötrað að
spennu.
Sjálfur marghorfði ég á
skot Kára á þriðjudagskvöldið
enda fauk upptakan eins og lauf í
haustvindi um samfélagsmiðl-
ana. Í fyrsta skiptið þá hreinlega
trúði ég ekki eigin augum. Og ég
efaðist við annað áhorf. Skal
engan undra því þegar upptaka
af atvikinu er skoðuð má sjá fjöl-
marga stuðningsmenn Keflavík-
ur sitja sem lamaða í sætum sín-
um. Þeir virtust heldur ekki trúa
sínum eigin augum.
Karfan góða er alveg hreint
einstakt atvik í íþróttaheiminum
enda hefur upptökuna rekið á
fjörur áhugafólks um körfuknatt-
leik um allan heim. Skotið á sér
stað undir pressu á síðustu sek-
úndu í hnífjöfnum úrslitaleik. Eitt
er það að körfuknattleiksmaður
dragi með kasti sínu alla þessa
vegalengd. Hitt er svo að hitta
sjálfa körfuna.
Atvik eins og þetta er svo
sannarlega krydd í íþróttirnar
enda nokkuð sem telst ekki til
hins daglega brauðs.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
EM2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ísland hefur verið með í hverri ein-
ustu lokakeppni Evrópumóts karla í
handknattleik á þessari öld, allt frá
EM í Króatíu árið 2000. Það þyrfti
mikið að fara úrskeiðis hjá íslenska
landsliðinu í undankeppninni sem
fer af stað næsta haust ef það yrði
ekki með í tíundu lokakeppninni í
röð árið 2020. Nánast væri hægt að
tala um stórslys.
Hingað til hafa sextán þjóðir leik-
ið til úrslita á EM, ef undanskilin
eru fyrstu árin, til ársins 2000, þeg-
ar þau voru tólf. Nú er þeim fjölgað
enn frekar og 24 lið leika í loka-
keppninni árið 2020.
Dregið verður í riðla fyrir EM
2020 í Þrándheimi fimmtudaginn 12.
apríl. Undankeppnin hefst í haust
og lýkur í júní 2019.
Þrír gestgjafar á EM
Önnur nýjung er á döfinni því þrjár
þjóðir skipta með sér gestgjafa-
hlutverkinu, Svíþjóð, Austurríki og
Noregur. Þessar þjóðir fara allar beint
á EM, sem og ríkjandi Evrópumeist-
arar, Spánverjar.
Það kemur í hlut 32 þjóða að heyja
riðlakeppni árin 2018 til 2019 um
hvaða 20 þjóðir bætast í hópinn og
fara í lokakeppnina. Þar leika þjóð-
irnar 32 í átta riðlum. Tvö efstu liðin
komast á EM og einnig þau fjögur lið
sem verða með bestan árangur í þriðja
sæti. Alls fara því 20 lið af 32 áfram.
Dauðafæri en hægt
að fá snúinn riðil
Ísland er í öðrum styrkleikaflokki
og getur ekki mætt neinu liði þaðan.
Sleppur þar m.a. við Pólverja, Serba,
Tékka og Rússa. Íslenska liðið, undir
stjórn Guðmundar Þ. Guðmunds-
sonar, mætir einni þjóð úr 1. flokki,
einni úr 3. flokki og einni úr 4. flokki.
Vissulega lenti Ísland í talsverðu
basli með að komast í síðustu 16 liða
Evrópukeppnina sem fór fram í
byrjun þessa árs í Króatíu. Liðið
hafnaði í þriðja sæti í sínum riðli
undankeppninnar en slapp áfram á
því að vera með besta árangurinn
þar. En þegar styrkleikaflokkarnir
eru skoðaðir þá er liðið í sannkölluðu
dauðafæri.
Það væri reyndar hægt að lenda í
snúnum riðli ef mótherjarnir yrðu
t.d. Frakkland, Úkraína og Rúm-
enía. Sennilega yrði riðillinn í erf-
iðasta kantinum ef tvö síðarnefndu
liðin kæmu upp úr pottinum úr 3. og
4. styrkleikaflokki, hver svo sem
andstæðingurinn yrði úr fyrsta
flokki.
En með fullri virðingu fyrir þeim
þjóðum sem skipa 3. og 4. flokk ættu
fæstar þeirra að geta lagt stein í
götu íslenska liðsins á eðlilegum
degi. Hvað þá þegar þriðja sætið í
riðlinum mun duga í fjórum riðlum
af átta.
Flokkarnir eru annars þannig
skipaðir:
1. styrkleikaflokkur:
Frakkland, Króatía, Þýskaland,
Danmörk, Slóvenía, H-Rússland,
Ungverjaland, Makedónía.
2. styrkleikaflokkur:
Rússland. Tékkland, Pólland, ÍS-
LAND, Serbía, Svartfjallaland,
(Bosnía, Holland eða Portúgal)
3. styrkleikaflokkur:
(Bosnía, Holland eða Portúgal)
Lettland, Litháen, Sviss, Slóvakía,
Úkraína, Ísrael, Tyrkland.
4. styrkleikaflokkur:
Finnland, Belgía, Eistland, Grikk-
land, Rúmenía, Ítalía, Kosóvó, Fær-
eyjar.
Tvær af þjóðunum þremur, Bosn-
ía, Holland og Portúgal, verða í 2.
styrkleikaflokki og ein í 3. styrk-
leikaflokki. Þær eru jafnar að stigum
og dregið verður um hver þeirra
dettur niður í þriðja flokkinn.
Dauðafæri til að kom-
ast á tíunda EM í röð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EM 2020 Guðmundur Þórður Guðmundsson fer með landsliðið í umspil HM
í sumar, gegn Litháen, og síðan hefst undankeppni EM í október.
- Tuttugu lið af 32 komast í 24 liða lokakeppni árið 2020