Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 90

Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 90
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018SJÁVARÚTVEGUR Íshúsið ehf ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur viftur.is -andaðuléttar hljóðlátu baðvifturnar Stundum þarf maður bara smá frið Stema kerrurCompair loftpressur Breitt úrval atvinnutækjaBreit úrval atvinnut kja Stema kerrurCompair loftpressur Við græjum það Til sjós eða lands Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833 asafl.is HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI Margt hefur gerst síðan Viðskipta- Mogginn tók síðast hús á Fisher- man fyrir réttum tveimur árum. Þá snérist starfsemin einkum um ferðaþjónustu en Fisherman rekur vinsælt hótel á Suðureyri og hefur um nokkurra ára skeið boðið ferða- mönnum upp á að skoða fisk- vinnslur og -verkanir á svæðinu. Í dag framleiðir Fisherman einnig vandaða vörulínu sjávarafurða sem seldar eru í smekklegum umbúðum, og nú síðast að fyrirtækið opnaði litla verslun á Hagamel þar sem kaupa má Fisherman-vörurnar og heita fiskrétti. Elías Guðmundsson er fram- kvæmdastjóri Fisherman og á sér stóra drauma um framtíð fyrirtæk- isins. Gæti jafnvel verið inni í myndinni að opna Fisherman-búðir í erlendum stórborgum. Saga Fisherman hófst fyrir átján árum þegar Elías og fjölskylda hans keyptu gamalt hús á Suður- eyri. „Það stóð til að rífa þetta hús en við keyptum það fyrir 50.000 kr, gerðum upp og breyttum í lítið gistihús. Þetta var áhugamál fjöl- skyldunnar og eitthvað sem við sinntum meðfram annarri vinnu en árið 2005 byrjaði ég að sinna þessu verkefni í fullu starfi. Smám saman stækkaði gistiheimilið og varð á endanum að þriggja stjörnu hóteli, auk þess að kaffihús og veitingahús bættust við reksturinn,“ útskýrir hann. Elías áttaði sig á að ferðamenn- irnir voru mjög forvitnir um mat- vælaframleiðsluna á svæðinu og áhugasamir um að skoða fisk- vinnslur, harðfiskþurrkun og upp- lifa lífið á bryggjunni. Líkir hann ferðum Fisherman við þær sem standa til boða í vínræktunar- og ostahéröðum Evrópu þar sem fram- leiðendur leyfa gestum að sjá hvernig varan verður til. „Við bjuggum til ferðir sem við köllum á ensku Seafood trail, þar sem fólk fær að kynnast sjávarútveginum á svæðinu frá fyrstu hendi. Erum við núna komin með sex rútur sem við notum í þessar ferðir, með pláss fyrir fimmtíu manns í hverri ferð og skipta gestirnir þúsundum ár hvert.“ Fiskur með sögu En ferðamannatímabilið á Vest- fjörðum er ekki langt og var Elíasi ljóst að þörf væri á að renna fleiri stoðum undir reksturinn. Kviknaði þá sú hugmynd að selja vörur undir merki Fisherman. Eftir mikla rann- sóknar-, hugmynda- og hönnunar- vinnu leit dagsins ljós vörulína með gæðavörum frá framleiðendum á svæðinu í samræmdum umbúðum. Pakkningarnar segja frá uppruna vörunnar og skapa áhugaverða sögu í kringum hana. „Við viljum segja kaupandanum að við séum stolt af uppruna okkar og því sem við fram- leiðum og að allir séu velkomnir að heimsækja okkur til að sjá með eig- in augum hvernig varan verður til,“ segir Elías. Hann notaði tækifærið og gerði undirbúning Fisherman- vörumerkisins að lokaverkefni sínu í MBA-námi við Háskólann Íslands. Ljóstrar Elías því upp að ein ástæðan fyrir því hve vel tókst til við þróunina er að hann gat nýtt sér þekkingu góðs fólks í háskólasam- félaginu. Ekki var erfitt að fá aðra mat- vælaframleiðendur á Vestfjörðum til að taka þátt en í vörulínu Fisher- man má t.d. finna nokkrar gerðir af þurrkuðum fiski, sósur, söl og niðursoðna þorsklifur. „Um er að ræða vörur frá fyrirtækjum sem framleiða aðallega fyrir erlenda markaði, en höfðu áhuga á að vera líka hluti af þessu sjálfstæða vöru- merki. Með því að vera hluti af Fisherman fá þau aðgang að góðu dreifineti og njóta góðs af þeim styrk sem felst í að vera hluti af stærra vörumerki. Eins og oft hefur verið notað sem kjörorð okkar hér fyrir vestan þá gerir maður ekki rassgat einn,“ segir Elías og hlær. Agnarsmá útgáfa af Bakkavör Þróunin í smásölu á fiski hefur verið í þá átt að bjóða neytendum upp á æ smærri pakkningar af snotrum fiskbitum sem auðvelt er að elda og taka sig vel út í hillum stórmarkaðanna. Þegar blaðamaður spyr hvort Fisherman sé ekki að beita gömlu viðskiptamódeli með því að opna fiskbúð þá er Elías fljótur að leiðrétta þann misskiln- ing. Hann segir fiskbúðinni á Haga- mel betur lýst sem n.k. „street food“-stað. Þar er má fá allar Fisherman-vörurnar, s.s. vinsæla bakka með fiskbollum, plokkfiski eða ýsu í raspi sem skella má beint í ofninn heima, en líka fiskrétti sem eru afgreiddir heitir beint yfir búð- arborðið: „Neytendur gera æ minna af því að kaupa fisk á gamla mátann, þar sem þeir fá flök og bita yfir búðar- borðið og elda heima. Það sem fólk vill fá eru tilbúnar og eldaðar vörur sem má helst leggja á borð um leið og heim er komið, frekar en kíló af ýsu eða þorski sem önnum kafinn kaupandinn þarf að hafa fyrir að elda sjálfur.“ Ef vel gengur er stefnt að því að opna fleiri Fisherman-verslanir inn- anlands, og síðan freista gæfunnar erlendis. Þar sér Elías fyrir sér að fiskbúðirnar gætu verið n.k. örverk- smiðjur þar sem fiski og fiskréttum væri pakkað í neytendaumbúðir og dreift til stórmarkaða í næsta ná- grenni. Grínast hann með að hver fiskbúð væri eins og agnarsmá út- gáfa af skyndiréttaverksmiðjum Bakkavarar. „Til að varan sé sem ferskust þarf að búa hana til sem næst versluninni þar sem hún er seld,“ útskýrir hann. „Við eigum þegar í samstarfi við fyrirtæki sem dreifa vörum sínum inn á þá mark- aði sem við höfum augastað á, og gætum við sent okkar vörur í sam- floti. Vöruflutningabílar leggja af stað frá Suðureyri stundvíslega kl. 4 hvern einasta dag, fiskurinn er kominn upp á flugvöll síðar um kvöldið, á áfangastað úti í heimi næsta morgun og gæti verið kom- inn í Fisherman-verslun nánast hvar sem er á hádegi. Þetta er ekki flóknara en það.“ Hagamelur væri bara byrjunin Morgunblaðið/Eggert „Til að varan sé sem ferskust þarf að búa hana til sem næst versluninni þar sem hún er seld,“ segir Elías. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Elías hjá Fisherman sér fyrir sér að opna fiskbúðir úti í heimi, nokkurs konar ör- framleiðslu þar sem útbúnir yrðu ferskir fiskbakkar og -réttir fyrir stórmarkaði í ná- grenninu. Umbúðir Fisherman eru samræmd- ar og hampa uppruna vörunnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.