Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 59
59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Ásgeir Páll Ágústsson
asgeirpall@k100.is
Hilmar Björnsson íþróttastjóri RÚV
heimsótti Magasínið á K100 í vikunni,
en hann segir að íþróttafréttamenn
RÚV séu í óða önn að undirbúa út-
sendingar frá HM sem fram fer í
Rússlandi í sumar. Boðið verður upp
á fjölbreytta dagskrá auk útsendinga
frá öllum leikjum mótsins.
Eiður Smári Guðjónsen verður sér-
fræðingur RÚV á leikjum Íslands og
mun að auki framleiða þrjá sjónvarps-
þætti um andstæðinga Íslands. Hann
mun fara til Króatíu, Nígeríu og Arg-
entínu og ræða við gömlu fótbolta-
stjörnurnar í þeim löndum og forvitn-
ast um hvað þær vita um Ísland. Í
febrúar byrjum við að sýna þætti sem
heita saga HM. Leiðin á HM eru svo
hefðbundnir þættir sem fjalla um að-
dragandann að mótinu sjálfu.
Edda Sif Pálsdóttir fylgir landslið-
inu eftir um þessar mundir, kynnist
leikmönnum, skyggnist inn í einkalíf
þeirra og afraksturinn verður sýndur
á skjánum innan tíðar.
Stuttu áður en mótið sjálft hefst
verður boðið upp á þætti úr myndveri
með gestum sem ræða mótið, spá í
möguleika liðsins til að ná langt og
svo framvegis.
Á leikjunum sjálfum verður helj-
arinnar HM partý við Arnarhól. Þar
að auki verður HM torg við Ingólfs-
torg rétt eins og þegar liðið keppti á
EM í Frakklandi fyrir tveim árum. Á
báðum þessum stöðum verða starfs-
menn RÚV með beinar útsendingar.
Svo verður fólk í myndveri, auk allra
þeirra sem verða í Rússlandi að fylgj-
ast með. Það verður því öllu til tjaldað
í þessum stærsta sjónvarpsviðburði
sem verið hefur hér á landi.
Gætum allteins náð langt
Fram kom í máli íþróttastjórans að
þó margir telji að Íslendingar ættu
ekki að gera sér miklar vonir á
mótinu úti er landsliðið okkar í 18.
sæti á styrkleikalista FIFA. „Margir
telja að við séum bara að fara út til að
vera með, en FIFA metur það þannig
að við ættum að lenda í 18. sæti af
þeim 32 bestu þjóðum sem taka þátt.
Þessir strákar hafa óbilandi trú á
sjálfum sér og munu leggja allt í söl-
urnar.“
Fleiri verða við sjónvarpstækin
Hilmar segist búast við því að færri
Íslendingar muni heimsækja Rúss-
land en Frakkland fyrir tveim árum
síðan og því verði áhorfið á leikina í
sjónvarpinu mun meira. Ferðalag til
Rússlands sé talsvert dýrara og svo
geti ferðalögin innanlands verið löng
og ströng.
HM er gríðarleg veisla. „Þetta eru
í heildina 64 leikir. Fyrstu 12 dagana
eru spilaðir þrír leikir á dag með einni
undantekingu þegar 4 leikir verða
spilaðir einn daginn. Leiktímarnir
eru kl. 12. 15:00 og 18:00 sem eru fínir
tímar fyrir okkur hér á landi,“ sagði
Hilmar Björnsson og greinilegt er að
það er hugur í yfirmanni íþróttamála
hjá RÚV.HM Eiður Smári Guðjohnsen verður sérfræðingur RÚV á leikjum Íslands.
K100/AGÓ
Stærsti sjónvarpsviðburður sögunnar
Það styttist óðum í HM í
knattspyrnu og það má
með sanni segja að
þjóðin bíði spennt eftir
leikjum Íslands. RÚV
mun sýna frá öllum
leikjunum á mótinu og
búist er við gríðarlegu
áhorfi. Hilmar Björnsson
íþróttastjóri RÚV fór yfir
undirbúninginn í Magas-
íninu á K100 í vikunni.
Heimsókn Hvati,
Hilmar Björnsson,
íþróttastjóri RÚV,
og Ásgeir Páll.
FERMINGARGJÖFIN í ár?
arc-tic Retro
VERÐ FRá:
29.900,-
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir
hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt
2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá
er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og
mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir
hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum,
köstulum eða húsum frá miðöldum. Getum boðið
mjög gott verð á flugi, hótelum og rútu, svo og
íslenskan fararstjóra ef þess er óskað.
www.transatlantic Sími 588 8900
GLÆSILEGAR MIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar
glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur
verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu
Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar
hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningar-
áhrif sem gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg
Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997.
Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi
Hansakaupmanna í Evrópu. Glæsilegur arkitektúr,
forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert
borgina við flóann að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast
í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu
1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum
Evrópu.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
GDANSK Í PÓLLANDI
BÚDAPEST
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vikuferðirsumarið 2018frá 125.000 kr.á mann í
2ja manna
herb.