Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
Ég var unglingur þegarkarlakórinn var stofn-aður og þá sýndi ég fé-lagsskap þessum ekki
mikinn áhuga. Pabbi minn var einn
af stofnendum kórsins og var fátt
annað rætt á heimilinu þegar gesti
bar að garði. Árið 1981 gekk ég í kór-
inn, þá 22 ára, af því að vinir mínir og
frændur á sama aldri gerðu það
sama. Síðan eru liðin 37 ár og þetta
er búinn að vera gríðarlegur fé-
lagsskapur og marga vini er maður
búinn að eignast í gegnum árin.“
Þetta segir Guðmundur Ágúst Jóns-
son, bóndi í Fagraneskoti í Aðaldal,
en hann hefur verið formaður karla-
kórsins Hreims um árabil. „Stund-
um var það þannig að maður var
þreyttur og nennti ekki að fara á
stað, en svo dreif maður sig og kom
alltaf endurnærður af öllum æfing-
um. Þetta eykur samheldni og sam-
hug. Mæting er alltaf góð og sjaldan
sem einhverja vantar,“ segir Guð-
mundur og bætir við að enn séu í
kórnum stofnfélagar. Hann nefnir
Guðmund Hallgrímsson frá Gríms-
húsum og Benedikt Arnbjörnsson á
Bergsstöðum. Baldur Jónsson,
bóndi í Ystahvammi, er sá eini sem
er búinn að vera samfellt í kórnum
frá upphafi og er enn að syngja.
Hann er fæddur árið 1934 og er því
84 ára á þessu ári. Hann sleppir ekki
úr æfingum og hefur alltaf sömu
ánægjuna af karlakórnum. Hann er
elstur kórfélaga, en sá yngsti er 21
árs. Aldursmunurinn er því ríflega
60 ár, en samt er ekkert kynslóðabil.
Allir eru félagar og mjög góðir vinir.
Guðmundur segist skilja vel þessa
gleði og lífsfyllingu sem karlakórinn
er og líka það markmið að skemmta
áheyrendum með söng.
Endalaus áhugi á tónlist
Frá haustdögum 2012 hefur
Steinþór Þráinsson verið stjórnandi
kórsins. Steinþór ólst upp við tónlist
á æskuheimili sínu í Mývatnssveit og
söng snemma sem barn og hóf síðan
tónlistarnám hjá móður sinni.
Seinna var hann m.a. tvo vetrarhluta
við nám í Tónlistarskóla Ísafjarðar
og síðan lá leiðin í söngnám hjá Sig-
urði Demetz á Akureyri. Þá stundaði
hann söngnám og almennt tónlist-
arnám við Söngskólann í Reykjavík.
Á námsárum sínum söng hann með
Kór Langholtskirkju og hann segist
hafa endalausan áhuga á tónlist.
Hann segir að starf hans sem kór-
stjóri sé mjög gefandi og alltaf sé
það þannig að tónlistin opni leið inn
að hjartanu. Hann telur ekki eftir
sér að keyra frá Akureyri á æfingar,
þar sem hann býr í dag, en hver æf-
ing tekur meira en 5 klukkutíma ef
allt er talið. Þá er átt við akstur báð-
ar leiðir, undirbúning við að stilla
upp og svo sönginn sjálfan sem tek-
ur um 2 klukkutíma með svolitlu
kaffihléi, og síðan frágang. En það er
þess virði og sem betur fer hefur
veðrið sjaldan hamlað för í vetur.
Undirleikarinn, Steinunn Halldórs-
dóttir, er einnig alin upp við tónlist
og byrjaði að læra á píanó 7 ára göm-
ul. Hún lærði hjá Kristni Gestssyni
og Önnu Málfríði Sigurðardóttur í
Reykjavík og var við framhaldsnám í
Óðinsvéum. Hún hefur og lært í
Finnlandi og sótt meistaranámskeið
í Frakklandi og Póllandi.
Tilhlökkun að syngja í Hörpunni
„Ég veit þú kemur“ er yfirskrift
þeirrar dagskrár sem Karlakórinn
Hreimur er að æfa, en þeir félagar
ætla að syngja í Eldborgarsal Hörpu
um helgina. „Það er mikill áhugi fyr-
ir þessu því við höfum ekki sungið
þar áður,“ segir Guðmundur og allir
hlakka mjög til. „Við höfum sungið í
Langholtskirkju og Háskólabíói, en
þetta er mjög spennandi og ekki síst
vegna þeirra gestasöngvara sem við
Karlakór er gefandi félagsskapur
Karlakórinn Hreimur hefur sett svip sinn á menn-
ingarlíf Þingeyinga í meira en fjóra áratugi. Hann
er skipaður um 60 mönnum sem hittast tvisvar í
viku allan veturinn í félagsheimilinu Ýdölum í Að-
aldal, til þess að syngja og eiga stund saman. Kór-
inn hefur víða hafið upp raust sína og haldið tón-
leika í mörgum samkomuhúsum. Kórfélagar hafa
gefið út marga geisladiska, farið níu sinnum til út-
landa og sungið á götum úti. Í kirkjum syngja þeir
oft og árlega halda þeir veglegan vorfagnað í
heimasveit sinni, ávallt fyrir troðfullu húsi.
Hljómsveit Borgar Þórarinsson, Pétur Ingólfsson og Gunnar I. Sigurðsson.