Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 16

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Atli Vigfússon laxam@simnet.is Ég var unglingur þegarkarlakórinn var stofn-aður og þá sýndi ég fé-lagsskap þessum ekki mikinn áhuga. Pabbi minn var einn af stofnendum kórsins og var fátt annað rætt á heimilinu þegar gesti bar að garði. Árið 1981 gekk ég í kór- inn, þá 22 ára, af því að vinir mínir og frændur á sama aldri gerðu það sama. Síðan eru liðin 37 ár og þetta er búinn að vera gríðarlegur fé- lagsskapur og marga vini er maður búinn að eignast í gegnum árin.“ Þetta segir Guðmundur Ágúst Jóns- son, bóndi í Fagraneskoti í Aðaldal, en hann hefur verið formaður karla- kórsins Hreims um árabil. „Stund- um var það þannig að maður var þreyttur og nennti ekki að fara á stað, en svo dreif maður sig og kom alltaf endurnærður af öllum æfing- um. Þetta eykur samheldni og sam- hug. Mæting er alltaf góð og sjaldan sem einhverja vantar,“ segir Guð- mundur og bætir við að enn séu í kórnum stofnfélagar. Hann nefnir Guðmund Hallgrímsson frá Gríms- húsum og Benedikt Arnbjörnsson á Bergsstöðum. Baldur Jónsson, bóndi í Ystahvammi, er sá eini sem er búinn að vera samfellt í kórnum frá upphafi og er enn að syngja. Hann er fæddur árið 1934 og er því 84 ára á þessu ári. Hann sleppir ekki úr æfingum og hefur alltaf sömu ánægjuna af karlakórnum. Hann er elstur kórfélaga, en sá yngsti er 21 árs. Aldursmunurinn er því ríflega 60 ár, en samt er ekkert kynslóðabil. Allir eru félagar og mjög góðir vinir. Guðmundur segist skilja vel þessa gleði og lífsfyllingu sem karlakórinn er og líka það markmið að skemmta áheyrendum með söng. Endalaus áhugi á tónlist Frá haustdögum 2012 hefur Steinþór Þráinsson verið stjórnandi kórsins. Steinþór ólst upp við tónlist á æskuheimili sínu í Mývatnssveit og söng snemma sem barn og hóf síðan tónlistarnám hjá móður sinni. Seinna var hann m.a. tvo vetrarhluta við nám í Tónlistarskóla Ísafjarðar og síðan lá leiðin í söngnám hjá Sig- urði Demetz á Akureyri. Þá stundaði hann söngnám og almennt tónlist- arnám við Söngskólann í Reykjavík. Á námsárum sínum söng hann með Kór Langholtskirkju og hann segist hafa endalausan áhuga á tónlist. Hann segir að starf hans sem kór- stjóri sé mjög gefandi og alltaf sé það þannig að tónlistin opni leið inn að hjartanu. Hann telur ekki eftir sér að keyra frá Akureyri á æfingar, þar sem hann býr í dag, en hver æf- ing tekur meira en 5 klukkutíma ef allt er talið. Þá er átt við akstur báð- ar leiðir, undirbúning við að stilla upp og svo sönginn sjálfan sem tek- ur um 2 klukkutíma með svolitlu kaffihléi, og síðan frágang. En það er þess virði og sem betur fer hefur veðrið sjaldan hamlað för í vetur. Undirleikarinn, Steinunn Halldórs- dóttir, er einnig alin upp við tónlist og byrjaði að læra á píanó 7 ára göm- ul. Hún lærði hjá Kristni Gestssyni og Önnu Málfríði Sigurðardóttur í Reykjavík og var við framhaldsnám í Óðinsvéum. Hún hefur og lært í Finnlandi og sótt meistaranámskeið í Frakklandi og Póllandi. Tilhlökkun að syngja í Hörpunni „Ég veit þú kemur“ er yfirskrift þeirrar dagskrár sem Karlakórinn Hreimur er að æfa, en þeir félagar ætla að syngja í Eldborgarsal Hörpu um helgina. „Það er mikill áhugi fyr- ir þessu því við höfum ekki sungið þar áður,“ segir Guðmundur og allir hlakka mjög til. „Við höfum sungið í Langholtskirkju og Háskólabíói, en þetta er mjög spennandi og ekki síst vegna þeirra gestasöngvara sem við Karlakór er gefandi félagsskapur Karlakórinn Hreimur hefur sett svip sinn á menn- ingarlíf Þingeyinga í meira en fjóra áratugi. Hann er skipaður um 60 mönnum sem hittast tvisvar í viku allan veturinn í félagsheimilinu Ýdölum í Að- aldal, til þess að syngja og eiga stund saman. Kór- inn hefur víða hafið upp raust sína og haldið tón- leika í mörgum samkomuhúsum. Kórfélagar hafa gefið út marga geisladiska, farið níu sinnum til út- landa og sungið á götum úti. Í kirkjum syngja þeir oft og árlega halda þeir veglegan vorfagnað í heimasveit sinni, ávallt fyrir troðfullu húsi. Hljómsveit Borgar Þórarinsson, Pétur Ingólfsson og Gunnar I. Sigurðsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.