Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Uppfærsla ofurtölvu Dönsku veður-
stofunnar (DMI), sem er til húsa hjá
Veðurstofu Íslands, gengur vel. Þrír
sérfræðingar frá DMI og einn frá
tölvuframleiðandanum Cray eru hér
vegna verkefnisins. Við uppfærsluna
verða afköst ofurtölvunnar um 700
TFLOPS á sekúndu, það eru um 700
þúsund milljarðar aðgerða á sek-
úndu. DMI er eigandi ofurtölvunnar
en Veðurstofan leggur til húsnæði og
innviði sem tölvureksturinn krefst
auk þess að hafa daglega umsjón
með búnaðinum. Veðurstofan fær
veðurgögn sem unnin eru í ofurtölv-
unni til að nota við gerð veðurspáa.
Thomas Kjellberg, yfirmaður upp-
lýsingamála og fjármálastjóri DMI,
og Hafdís Þóra Karlsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og rekstr-
arsviðs og staðgengill forstjóra Veð-
urstofu Íslands, kynntu blaðamanni
og ljósmyndara Morgunblaðsins
uppfærslu ofurtölvunnar.
„Við erum að þrefalda vinnsluget-
una frá því sem hún var,“ sagði
Thomas. Hann lofaði því ekki að auk-
in afköst tölvunnar verði til þess að
veðrið batni, en veðurspárnar eiga
að verða nákvæmari.
Spásvæðin eru gríðarstór og þekja
annars vegar Grænland og Ísland og
hins vegar svæði sem nær frá Fær-
eyjum og austur fyrir Danmörku. Ná
útreikningarnir yfir lofthjúpinn, þ.e.
frá yfirborði og upp að ystu mörkum
lofthjúpsins. Veðurlíkönin gefa af sér
spár um veður og sjólag fyrir þau
svæði sem reiknuð eru. Með aukinni
reiknigetu er hægt að gera nákvæm-
ari spálíkön fyrir smærri svæði en
áður og gera betur ráð fyrir stað-
bundnum áhrifum landslags og land-
gerðar á veðrið á hverjum stað.
Nefndi Thomas sem dæmi að á Ís-
landi væri sandur yfirleitt svartur og
drægi því í sig hitageisla sólar, en
sunnar í Evrópu væri sandur yf-
irleitt ljós á lit og endurkastaði því
hitageislum sólar líkt og íslensku
jöklarnir gera. Þetta hefur í för með
sé staðbundin áhrif á veður. Aukin
reiknigeta getur einnig gert kleift að
spá betur fyrir um hina skæðu fall-
vinda (Piteraq) sem koma stundum
ofan af Grænlandsjökli og eira engu
sem fyrir verður.
Tryggilega geymd neðanjarðar
Ofurtölvan er geymd neðanjarðar
í húsi Veðurstofunnar við Bústaða-
veg, þar sem stjórnstöð Landsvirkj-
unar og síðar Landsnet var áður til
húsa. Það er svalt að koma inn í
tölvusalinn þar sem niður í kælivift-
um fyllir loftið. Ofurtölvueiningarnar
Freyja og Þór standa þar rækilega
merktar. Nú er þar einnig þriðja
tölvan sem leysir hinar tvær af til
skiptis meðan á uppfærslunni stend-
ur. Önnur tölvan er endurnýjuð í
einu og síðan keyrð til prufu í 30
daga áður en hin er endurnýjuð.
Undirbúningur uppfærslunnar hófst
fyrir um einu ári síðan. Verkefnið
tekur því nokkuð langan tíma.
Gagnageymslan, eða harðdisk-
arnir, er í þriðju einingunni og rúma
1.500 terabæti. Ekki þarf að uppfæra
gagnageymsluna.
Gólfið í tölvusalnum er upp-
hækkað og þar undir liggja raf-
magns- og tölvukaplar og aðrar lagn-
ir vegna viðamikils kælikerfis
tölvubúnaðarins. Vatnið í kælikerf-
inu er blandað með sérstökum frost-
legi og rennur í lokuðu hringrás-
arkerfi. Vökvinn flytur varmann frá
tölvubúnaðinum út fyrir húsið þar
sem svalt íslenskt loft kælir vökvann.
Íslenski svalinn er einmitt einn kost-
urinn við að hafa svona tölvuver hér.
Það er mun auðveldara og ódýrara
að kæla tölvubúnaðinn hér en í heit-
ari löndum.
Tölvusalurinn er rammlega læstur
og kemst enginn þar inn nema með
aðgangsheimild og öryggiskóða.
Hreyfiskynjarar gera viðvart ef ein-
hver er þar inni. Eftirlitsmyndavélar
horfa stöðugt á hina ýmsu hluta of-
urtölvunnar. Með hjálp þeirra geta
starfsmenn DMI í Danmörku fylgst
með hvort allt er með eðlilegum
hætti í tölvusalnum. Ef eitthvað
kemur upp á þá geta þeir látið vita
og haft samráð við starfsmenn Veð-
urstofunnar um það sem þarf að
gera.
Sjálfstæð rafstöð
Næsta herbergi hýsir varaaflgjafa
ofurtölvunnar. Inn í það liggja sverir
kaplar sem flytja hagkvæma og um-
hverfisvæna íslenska raforku sem
knýr búnaðinn alla jafna. Við fullt
álag notar hann allt að 400 kW (kíló-
vött) en við venjulega keyrslu er
notkunin innan við 300 kW. Raf-
geymar í hillum þekja nær heilan
vegg. Þeir geta keyrt búnaðinn í um
40 mínútur ef rafmagnið fer.
Þar inni er líka stjórnbúnaður fyr-
ir dísilknúnar rafstöðvar. Þær fara
sjálfkrafa af stað ef veiturafmagnið
slær út. Það á því að vera nokkuð
tryggt að ofurtölvan verði ekki raf-
magnslaus.
Þegar samið var um ofurtölvuna
2014 var áætlað að hún myndi kosta
um 750 milljónir íslenskra króna.
Hafdís benti á að síðan hefði gengið
breyst mikið og þessi tala væri önnur
í dag. Hún sagði að kostnaður við
húsnæðið og innviði hefði verið um
220 milljónir íslenskra króna og
Danska veðurstofan hefði borgað
lungann af því. Thomas sagði að
sjálfur tölvubúnaðurinn væri um
helmingur heildarkostnaðarins.
Kostnaður við rafmagn, viðhald,
þjónustusamninga og annað næmi
hinum helmingi kostnaðarins.
Fjölþjóðlegt samstarf
Samstarf Veðurstofu Íslands og
DMI um rekstur ofurtölvunnar er
áfangi á leiðinni til samvinnu fleiri
landa um rekstur ofurtölvu veður-
stofa. Viðræðurnar um þetta fram-
tíðarverkefni eru á frumstigi líkt og
könnun á fjármögnun og fleiru. Nú
er reiknað með að Norðurlöndin
fimm, Ísland, Danmörk, Noregur,
Svíþjóð og Finnland sameinist um
ofurtölvu í framtíðinni. Írar og Hol-
lendingar hafa lýst áhuga á að ganga
inn í samstarfið og eins Eistland,
Lettland og Litháen.
Verði af þessu samstarfi verður
fyrsta skrefið tekið 2022 eða 2023 og
það næsta fyrir árið 2027.
Öflugri ofurtölva spáir nákvæmar
& Unnið er að uppfærslu ofurtölvu Dönsku veðurstofunnar & Tölvan er í húsi Veðurstofu Íslands
& Nýtir íslenskt rafmagn og íslenskan svala & Samstarf tíu þjóða um rekstur ofurtölvu er í skoðun
Morgunblaðið/Eggert
Ofurtölvan Thomas Kjellberg frá DMI sýndi hvernig vinnslueiningar Cray-ofurtölvunnar raðast saman. Verið er að þrefalda reiknigetu tölvunnar.
Orkustöðin Hafdís Þóra Karlsdóttir við stjórnskáp varaaflsstöðvanna. Eftirlit Ingveldur Jónsdóttir, hópstjóri rekstrar, sér stöðu kerfisins á skjá.
Kælikerfið Lagnir undir gólfinu
leiða kælivökvann að og frá.
Ofurtölva Dönsku veðurstofunnar
(DMI) var byggð upp í tveimur
áföngum. Tvö vökvakæld Cray XC-
tölvukerfi mynda ofurtölvuna.
Fyrri áfanginn innihélt tvær
Cray XC30 tölvur. Hvor þeirra inni-
hélt 280 afkastamiklar vinnsluein-
ingar (nodes) og 16 einingar til al-
mennra nota. Samtals afkastaði
ofurtölvan í þessari útfærslu um
200 TFLOPS (teraflops). Hún var
tekin í notkun í apríl 2016.
Í öðrum áfanga er búnaðurinn
uppfærður í tvö Cray XC50 kerfi
sem afkasta samtals um 700
TFLOPS eða meira en þrefalt
meira en tölvan gerði áður. Hvort
kerfi inniheldur 152 afkastamiklar
vinnslueiningar og átta einingar til
almennra nota. Nýju vinnsluein-
ingarnar eru mun hraðvirkari og
sparneytnari en eldri einingar sem
nú er skipt út. Annar áfanginn,
sem nú er verið að setja upp,
kemst í fullan rekstur í júlí 2018.
Ofurtölvan er tengd við DMI um
háhraðanetið og sæstrengina Da-
nice og Farice.
Vinnslugetan þrefölduð
OFURTÖLVAN
Ofurtölvan Litskrúðugir kaplar setja svip á tölvubúnaðinn.