Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 69
mannréttindamálum, rekstri og fleiru,
meðal annars í the Institute of Transi-
tional Justice, Ulster-háskóla í Bel-
fast, Norður-Írlandi, og sendifulltrúa-
námskeiði Rauða krossins.
Magnea var kennari við heimavist-
arskólann Lund í Öxarfirði 1989-90,
flokkstjóri við unglingavinnu Akur-
eyrarbæjar á sumrin 1990-93, ritstjóri
What‘s on in Reykjavik 1992-93, starf-
aði við nefndadeild Alþingis 1995-96
og var verslunarstjóri í versluninni
Body Shop 1996-98.
Magnea var ráðgjafi við stjórn-
máladeild bandaríska sendiráðsins á
Íslandi 1998-2002 þar sem hún hlaut
U.S. State Department Meritorious
Honor Award og State Department
Franklin Award fyrir störf sín. Hún
vann að sérverkefni fyrir auðlinda-
skrifstofu íslenska utanríkisráðuneyt-
isins 2004, var stjórnsýslufulltrúi við
flotaflugstöðina á Keflavíkurflugvelli
2005, ráðgjafi sendiráðs Japans á Ís-
landi um stjórnmál, efnahagsmál og
menningarmál 2005-2006. Frá árinu
2007 hefur Magnea starfað að alþjóða-
málum og málefnum kvenna á helstu
átakasvæðum samtímans í störfum
sínum sem þróunar- og jafnréttis-
málafulltrúi Endurreisnarliðs Al-
þjóðlegu öryggis- og aðstoðarsveita
Norður-Atlantshafsbandalagsins
(ISAF) á vegum Friðargæslu Íslands
í Ghowr-héraði í Vestur-Afganistan
2006-2007 þar sem hún hlaut Medal of
Merit for Civilians fyrir störf sín, sér-
fræðingur hjá alþjóðadeild Alþingis
frá 2007-2010, ráðgjafi UN Women
um konur, frið og öryggi í Bosníu og
Kosovo 2010-2013 og yfirmaður
sænsku kvenréttinda- og friðar-
samtakanna The Kvinna till Kvinna
Foundation í Palestínu og Ísrael 2014-
2017: „Samtökin veittu 16 mannrétt-
inda- og friðarsamtökum kvenna og
um 22 verkefnum stuðning. Ég hafði
yfirumsjón með stefnu og starfsemi
samtakanna í Palestínu og Ísrael, var í
samskiptum við önnur alþjóðleg fé-
lagasamtök og stofnanir eins og SÞ.
Ég var auk þess formaður vinnuhóps
um kynja- og jafnréttismál sem heyrir
undir samtök alþjóðlegra félaga-
samtaka sem vinna að þróunar- og
mannúðarmálum í Palestínu.“ Magn-
ea er sérfræðingur hjá jafnréttisteymi
velferðarráðuneytisins frá haustinu
2017.
Hún hefur hannað og kennt nám-
skeið við háskóla hérlendis um sam-
tímastríðsátök, átakagreiningar og
friðarlausnir þar með talið kynbundna
stríðsglæpi og gerð aðgerðaráætlunar
um konur, frið og öryggi árið 2005-
2007 við HÍ, 2010 við Háskólann á Bif-
röst og frá 2009 leiðbeint nemendum
og kennt við Jafnréttisháskóla SÞ
(UNU-Gender Equality Studies and
Training Program).
Magnea var stofnfélagi og í stjórn
Félags stjórnmálafræðinga á Íslandi
1995-99, þar með talið formaður, sat í
stjórn Varðbergs 2000-2002 og var rit-
stjóri tímarits samtakanna Viðhorf
sem tileinkað var hernaðaríhlutun í
nafni mannúðar. Hún sat í stjórn
landsnefndar UN Women (fyrrver-
andi UNIFEM) á Íslandi Þróun-
arsjóðs Sameinuðu þjóðanna fyrir
konur 2005-2010, þar af varaformaður
í þrjú ár, sem stóð að Fiðrildavikunni
2008 og skipulagði fyrstu Ljósagöng-
una, sem er orðin að árlegum viðburði,
árið 2009 í tilefni 16 daga átaks gegn
kynbundnu ofbeldi og í tengslum við
20 ára afmæli landsnefndar í sam-
starfi við Mannréttindaskrifstofu Ís-
lands og Reykjavíkurborg.
Magnea hefur áhuga á fjall- og
náttúrugöngum, ljósmyndun og
stjórnmálasögulegum, hug-
myndafræðilegum og menningar-
legum straumum og stefnum.
Fjölskylda
Barnsfaðir Magneu er Freysteinn
Gíslason, f. 28.9. 1968. Sonur Magneu
og Freysteins er Ríkharður Bjartur, f.
12.8. 1988, stýrimaður og nemi við
Skipstjórnarskólann.
Systkini Magneu eru Olgeir Þór, f.
24.6. 1969, lögfræðingur, og Þórunn
Ósk, f. 23.10 1971, víóluleikari, leiðari í
Sinfóníuhljómsveit Íslands og einn
stofnenda Strokkvartettsins Sigga.
Foreldrar Magneu eru Marinó
Jónsson, f. 9.12. 1937, húsasmíða-
meistari, framkvæmdastjóri og kenn-
ari, og Dómhildur Lilja Olgeirsdóttir,
f. 12.7. 1944, sjúkraliði og garðyrkju-
meistari á Vatnsleysu II í Fnjóskadal.
Magnea Kristín
Marinósdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. á Naustum og á Akureyri
Ármann Tómasson
b. á Naustum og
verkam. á Akureyri
Þóra Ármannsdóttir
húsfr. á Vatnsleysu
Olgeir Lúthersson
b. á Vatnsleysu í Fnjóskadal
Dómhildur Lilja Olgeirsdóttir
sjúkraliði á Akureyri
Þórunn Pálsdóttir
húsfr. á Vatnsleysu
Lúther Olgeirsson
b. á Vatnsleysu í Fnjóskadal
Sigurður Guðni Jónsson b. á Hóli
Helgi Jónsson bifreiðarstj. á Dalvík
Jakob Jónsson leigubílstj. og dyravörður
í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri
Lúther Þór Olgeirsson b. í Forsæludal í Vatnsdal
Ármann Ingi Olgeirsson b. á Vatnsleysu
Ólafur Arnar Olgeirsson bílstjóri
Karl Grétar Olgeirsson verkam. í Hrísey og víðar
Kristjana Marín Magnúsdóttir
húsfr. á Hálsi, bróðurdóttir Helgu,
ömmu Jónasar Jónssonar frá Hriflu
Sigurður Guðni Jóhannsson
b. á Hálsi í Köldukinn
Magnea Kristín Sigurðardóttir
húsfr. á Hóli
Jón Jakobsson
b. á Hóli í Ljósavatnshr.
Jónína Herborg Jónsdóttir
húsfr. í Skriðulandi
Jakob Jónsson
b. í Skriðulandi, bróðursonur Flóvents, langafa Einars Olgeirssonar alþm. og ritstj.
Úr frændgarði Magneu Kristínar Marinósdóttur
Marinó Jónsson
byggingam. á Akureyri
ÍSLENDINGAR 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
eldu á milli fimm girnilegra tegunda
f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru
ægilegir, ljúffengir og fljótlegir.
ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS
V
a
þ
Gunnar Ormslevfæddist Hell-erup í Kaup-
mannahöfn 22.3. 1928,
sonur Jens Gjeding
Ormslev, frá Árósum,
og Áslaugar, hálfsystur
Þórunnar, móður Jó-
hanns Hafsteins for-
sætisráðherra.
Eiginkona Gunnars
var Margrét Ormslev, f.
Petersen, og eru börn
þeirra Áslaug, Margrét,
Pétur og Jens Ormslev.
Einn besti vinur
Gunnars á unglings-
árum í Kaupmannahöfn
var Arnvid Mayer, síðar
einn fremsti trompet-
leikari Dana. Þeir léku
saman í djasssveit í
gagnfræðaskóla þar
sem Gunnar blés í altó-
saxófón.
Gunnar flutti til Íslands 1946, bjó
fyrst í Hafnarfirði þar sem hann
kynnist Guðmundi Steingrímssyni,
Eyþóri Þorlákssyni og síðar þeim
Óla Gauk og Steina Steingríms.
Gunnar stofnaði GO kvintettinn sem
lék í Mjólkurstöðin, lék síðan með
Hljómsveit Björns R. Einarssonar
og KK Sextettinum, en var ráðinn
til vinsælustu djasshljómsveitar Sví-
þjóðar, Simon Brehm Bandsins, ár-
ið 1955, og lék með
þeim í eitt ár. Hann
hafnaði spennandi til-
boðum erlendis, stofn-
aði íslenska hljómsveit
sem fékk gullverðlaun
í Moskvu 1957.
Gunnar lék síðan
með ýmsum hljóm-
sveitum en galt þess
að djassáhugi dalaði
mjög hér á landi á sjö-
unda áratugnum og
fram að stofnun Jazz-
vakningar um miðjan
áttunda áratuginn.
Ronnie Scott lék með
Gunnari á tónleikum
1952 og taldi hann
fremsta tenórsólóista
Evrópu. Torben Ul-
rich, frægur, danskur
klarinettleikari og rit-
höfundur, taldi Frank
Jensen og Gunnar Ormslev, bestu
saxófónleikara Dana, en fæstir
þekktu Gunnar því hann hefði búið
á Íslandi.
Jazzvakning gaf út tvöfalda breið-
skífu með úrvali verka Gunnars sem
var aukin og endurhljóðblönduð
1996. Þá hafa verið haldnir tvennir
minningartónleikar um þennan
mikla djasssnilling. Minning hans
lifir meðan djass hljómar á Íslandi.
Gunnar lést 20.4. 1981.
Merkir Íslendingar
Gunnar Ormslev
90 ára
Erla Jóhannsdóttir
Gunnar Kristjánsson
Jón Hafsteinn Jónsson
Sigríður Böðvarsdóttir
Sigurður Eiríksson
85 ára
Sigurlína J. Hannesdóttir
Unnur Gígja Baldvinsdóttir
80 ára
Arnbjörg Þórðardóttir
Guðríður Hjaltadóttir
Margrét Sigríður
Guðjónsdóttir
Örn Einarsson
75 ára
Elín Björk Albertsdóttir
Erna Petersen Kragh
Hjördís Indriðadóttir
Hjörtfríður Olga
Herbertsdóttir
Ingólfur Árnason
Jenný Klara Jónsdóttir
70 ára
Albert Sigtryggsson
Bjarni Pétur Magnússon
Guðríður Hannesdóttir
Halldóra Storá
Helga Benediktsdóttir
Kristjana Jóna
Ragnarsdóttir
Ómar Jóhannsson
Rúna Bjarnadóttir
Sigurbjörn Jóhannsson
Unnur Sigfúsdóttir
60 ára
Aðalsteinn D. Stefánsson
Flosi Guðmundsson
Jóhann Geirsson
Kristín Marín
Siggeirsdóttir
Nanna Bergþórsdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Stefán Ragnar Jónsson
Sveinbjörn Guðmundsson
50 ára
Beata Niewada
Björgvin Sigurðsson
Eggert Sk. Jóhannesson
Hafþór Ingi Pálsson
Jan Kadlubowski
Jianying Niu
Kanyapak Chumpon
Magnea K. Marinósdóttir
40 ára
Aðalbjörg Þorgrímsdóttir
Ágústa Björk Haarde
Daníel Jakob Níelsson
Danuta S. Zuromska
Davíð Arthur Friðriksson
Davíð Friðjónsson
Helga Jónsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Konstantín Shcherbak
Logi Bjarnason
Marcin Piotr Napieralski
Pétur Þórisson
Rökkvi Vésteinsson
Þórarinn Bjarnfinnur
Snorrason
30 ára
Aðalbjörg Júlía
Árnadóttir
Alberto Oterino Amurgo
Atli Már Ástvaldsson
Daniel Sturgulewski
Davíð Hjartarson
Deividas Rezgys
Elísa Björg Sveinsdóttir
Hilmar Örn Ómarsson
Hjálmar Friðriksson
Ingvar Ásmundsson
Kristín Vala Þrastardóttir
Pawel Andrzej Mikosz
Stefán Örn Ómarsson
Svava Marín Óskarsdóttir
Þorgils Arnar Þórarinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Svava ólst í Kópa-
vogi, býr í Garðabæ og er
flugfreyja hjá Icelandair.
Maki: Davíð Halldórsson,
f. 1987, forritari hjá
Avista.
Börn: Óskar Dór, f. 2012,
og Matthildur Sara, f.
2016.
Foreldrar. Auður Pálma-
dóttir, f. 1964, starfs-
maður hjá Loftleiðum, og
Óskar Tómasson, f. 1962,
markaðs- og sölustjóri hjá
Svartækni.
Svava Marín
Óskarsdóttir
30 ára Hjálmar ólst upp í
Reykjavík, er búsettur
þar, lauk BA-prófi í sagn-
fræði frá Háskóla Íslands
og er nú blaðamaður við
DV.
Systir: Svanhvít Friðriks-
dóttir, f. 1978, upplýsinga-
fulltrúi WOW AIR.
Foreldrar: Friðrik Stef-
ánsson, f. 1949, d. 2012,
fasteignasali, og Sigríður
Hjálmarsdóttir, f. 1950,
grunnskólakennari, bú-
sett í Reykjavík.
Hjálmar
Friðriksson
30 ára Davíð ólst upp í
Njarðvík, býr í Reykjavík
og stafar hjá Ferró –
skiltagerð.
Bræður: Hafsteinn Hjart-
arson, f. 1985, og Hjörtur
Kristján Hjartarson, f.
1994.
Foreldrar: Kristín Gui-
dice, f. 1963, starfsmaður
við Flugeldhúsið í Leifs-
stöð, og Hjörtur Kristján
Daníelsson, f. 1964, fram-
kvæmdastjóri Plexiglers
hf, í Reykjanesbæ.
Davíð
Hjartarson