Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 71
DÆGRADVÖL 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
MIKIÐ ÚRVAL!
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - verslun@brynja.is
Lykilverslun við Laugaveg
síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
VASAHNÍFAR
VERÐ FRÁ
2.680 kr
Ný
vefverslun
brynja.is
SWISS TOOL
VERÐ FRÁ
24.340 kr
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert hvorki betri né verri en þú vilt
vera og átt því að horfast í augu við sjálfan
þig. Reyndu að njóta alls þess fallega og
rómantíska sem gæti orðið á vegi þínum í
dag.
20. apríl - 20. maí +
Naut Mundu að deila velgengni þinni með
þeim sem standa þér næst. Hvernig væri að
sýna gott fordæmi og kenna fólki að hugsa á
sömu nótum og þú?
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Að vita hvenær maður hefur færst
of mikið í fang er eitt, að viðurkenna það er
annað. Sýndu hugrekki og hættu því sem
skilar ekki árangri.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Samræður við stjórnendur, foreldra
og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í
dag. Líttu raunsætt á hlutina, líka þá sem í
sjálfu sér koma þér ekki við.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er fallegt að aðstoða aðra, en það
má ekki ganga svo langt að þú gleymir sjálf-
um þér. Nú reynir á sjálfsaga þinn og skipu-
lagningu.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er hyggilegra að hugsa hlutina í
gegn heldur en að bregðast við þeim án allr-
ar fyrirhyggju. Borgaðu reikninga og skilaðu
hlutum sem þú hefur fengið lánaða.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Óvissa í sambandi getur vakið ótta en
þarf ekki að gera það. Hafðu samt andvara á
þér því alltaf getur eitthvað komið upp á og
þá er gott að vera við öllu búinn.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Haltu ró þinni þótt mikill hama-
gangur sé í kringum þig og aðrir veltist hver
um annan þveran í persónulegum átökum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er ekki þitt hlutverk að hafa
alla ánægða og þú átt að hrista af þér kröfur
um slíkt. Einbeittu þér að aðalatriðunum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Einhvers konar ringulreið leggst
yfir umhverfi þitt í dag og þú átt fullt í fangi
með að hafa þitt á hreinu. Sýndu sveigj-
anleika, þegar allir virðast vilja breyta öllu í
kring um þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú stendur frammi fyrir kröfum
um aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi.
Láttu slag standa. Einbeittur þér að því að
gera það sem þú gerir best.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur enga afsökun fyrir því að
taka ekki að þér það verkefni sem yfirboð-
ararnir vilja fela þér. Haltu stillingu innan um
vinnufélagana og finndu þér svo vinaröxl til
að gráta á.
Sigurlín Hermannsdóttir hefurorð á því á Leir að ekki fari hjá
því að vorfiðrings sé farið að gæta
víða.
Maður sjái þess alls staðar
merki. Síðan yrkir hún fallegt ljóð
um músarrindilinn:
Hann vinur minn er magnað hörkutól,
sem mörgum stærri kann það snöggt
um betur
að þrauka harðan veðurofsa um vetur,
í veggjarholu finnur einatt skjól.
Er sólin ofar feimin fikrar sig
fer fiðringur um litla kroppinn brúna.
Í undirbúning ræðst nú fyrir frúna
og færir hreiðurgerð á æðra stig.
Og sumarlangt hann syngur firna vel
um sólskinið og skóg og börnin ungu
þá sterkur rómur reynir á hans lungu
en rosalega dillar lítið stél.
Er haustar að og fuglar fljúga burt
til fjarlægra og sólríkari landa
að sitja af sér vertrarhörkuvanda
ég veit að Músi verður hér um kjurt.
Á miðvikudag fyrir viku
skemmtu þrír hagyrðingar Mos-
fellingum, þeir séra Hjálmar,
Ragnar Aðalsteinsson og Ómar
Ragnarsson. Þá orti Helgi R. Ein-
arsson:
Hátt var sungið og hlegið
af háðinu ekkert dregið.
Hér fóru þrír
í þjóðlegum gír.
Á létta strengi var slegið.
Helgi lýsir „sælunni“ þannig:
Við alsæl í lautinni áðum
að okkur þó lítið víst gáðum.
Í lífinu eitt
af öðru fær leitt
og við endurtökum það bráðum.
Sigmundur Benediktsson segir
frá því á Leirnum að sér hafi dottið
í hug hvort ástæðan fyrir því að
hann væri farinn að kalka geti ver-
ið alkóhólsvannæring. – „Þetta bar
ég undir sjúkrahúsdömurnar í
morgun og fór með vísuna,“ segir
hann. „En þær bara hlógu að mér
svo ég var jafn nær. Hún var svona:
Það að alka ekki hér
eru slæmir siðir.
Af því kalka karlinn fer,
kjaftur, haus og liðir.
Friðrik Steingrímsson svaraði:
Sælu hefur vínið veitt
og víst á marga bölvun lagði,
en gerði aldrei neinum neitt
nokkurn tíma að fyrra bragði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorfiðringur og
alkóhólsvannæring
BRYNJAR VILDI EKKI FARA ÁN ÞESS AÐ
FÁ JÁ.
„HVERS VEGNA FERÐU ALDREI Í VEIÐI
LENGUR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eina hugsunin sem
heldur þér gangandi í
allan dag.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GJÖRÐU SVO VEL, GRETTIR, KATTA-
MATUR MEÐ TÚNFISKSBRAGÐI!
HVENÆR HÆTTU ÞEIR AÐ
FRAMLEIÐA ALVÖRU TÚNFISK?
MÉR ER SAMA ÞÓTT
ÞEIR HAFI ATVINNU AF
BARDÖGUM!
ALDREI RÁÐA TIL ÞÍN SÚMÓ-GLÍMUKAPPA!
JÁ.
VILTU AÐ
ÉG FARI?
Sonur Víkverja varð nýlegatveggja ára gamall. Víkverji hef-
ur löngum miklað þennan aldur fyrir
sér, þar sem á ensku er til þekktur
frasi: „terrible twos“, sem lýsir því
að tveggja ára börn eigi það til að
taka út ákveðinn þroska sem geri
foreldrana gráhærða. Því miður hef-
ur Víkverji komist að því að hans
eigið hár er þeirri náttúru gætt að
það vill frekar kveðja þessa jarðvist
en að verða grátt.
x x x
Víkverji hugsaði aldrei mjög mikiðum hárið á sér. Honum leiddist
að fara í klippingu, hann gerði aldrei
neitt við það sem gat talist „móðins“.
Víkverji hefur ekki einu sinni fengið
sér strípur eða permanent! En nú,
þegar hár hans hefur ákveðið að láta
á sjá, eyðir Víkverji miklum tíma af
hverjum degi til þess að láta það líta
sem best út. „Er það of þunnt hérna
megin í dag? Þarf ég að greiða það
svona núna?“ Allt þetta og meira til
flýgur um bráðum hárasnautt höfuð
Víkverja á hverjum degi. „Enginn
veit hvað átt hefur…“
x x x
En aftur að syninum, þessumtveggja ára. Helsta breytingin
sem foreldrarnir hafa tekið eftir, er
að hann er ekki lengur jafnvarkár og
áður. Þetta telst varla vera góð
breyting, þar sem nú mega Víkverji
og frú varla líta af drengnum áður
en hann er bara kominn upp á borð.
Ítrekaðar umvendingar um að þetta
sé nú stórhættulegt og megi hrein-
lega ekki lætur erfðaprinsinn hrein-
lega sem vind um eyru þjóta. Það
eina sem virkar er að fjarlægja stól-
ana frá borðinu, þannig að þeir dugi
ekki lengur sem stigi upp á borð. En
hvar eiga foreldrarnir þá að sitja?
x x x
Miðað við þær frásagnir sem Vík-verji hefur heyrt af hinum
„tryllingslega tveggja ára aldri“,
eins og hann kýs að þýða „terrible
twos“, finnst honum líklegt að þetta
sé bara byrjunin. Þegar þetta birtist
verða eftir 359 langir og erfiðir dag-
ar þar til drengurinn verður þriggja
ára. Hætt er við því að það verði
ekki stingandi strá á haus Víkverja
þegar þeim er lokið. vikverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann
er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu.
(Sálmarnir 106.1)