Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 98
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018FÓLK
SPROTAR
Þrír metnaðarfullir frumkvöðlar vilja
opna keðju nýstárlega hótela víðs-
vegar um Ísland, og hafa einnig
augastað á Grænlandi og Færeyjum.
Fyrirtæki þeirra heitir Igloo Camp
(http://igloo.camp) og tekur þátt í
Startup Tourism-viðskipta-
hraðlinum. Sérstaða Igloo Camp
felst í því að í stað þess að sofa í hefð-
bundnum hótelherbergjum eða skál-
um fá gestirnir að verja nóttinni í
lúxus-tjöldum þar sem þeir eru í mik-
illi nánd við náttúruna.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir er
framkvæmdastjóri Igloo Camp en
hún stofnaði reksturinn með þeim
Brynjólfi Stefánssyni og Kjartani
Erni Ólafssyni: „Hugmyndin kvikn-
aði fyrir tæpum þremur árum þegar
ég og Kjartan maðurinn minn fórum
í safarí-ferð til Kenía. Þar var okkur
bent á að gista í lúxustjöldum úti á
sléttunni og reyndist það vera mögn-
uð upplifun.“
Á ensku er þessi tegund gistingar
kölluð „glamping“ sem er bræðingur
af orðunum „glamour“ og „camping“.
Er þá sofið í n.k. tjaldbyggingum þar
sem gesturinn hefur allt til alls, s.s.
þægilegt rúm, og baðherbergi, og
getur fengið alla þá þjónustu sem
hótel bjóða almennt upp á. Lýsir
Ásta því hvernig heyra mátti og sjá
dýrin ráfa í gegnum tjaldbúðirnar í
Kenía og heyra öll hljóð náttúrunnar
í gegnum þunnan tjalddúkinn. „Við
sáum strax að það væri spennandi að
bjóða ferðamönnum á Íslandi upp á
samskonar upplifun.“
Auðvelt að bæta við herbergjum
Tjöldin sem Igloo Camp mun nota
eru gerð úr kúlulaga stálgrindum
sem eru klæddar með dúk og ein-
angruð. Í hverri kúlu er eitt her-
bergi, með eigið baðherbergi, og kúl-
unum komið þannig fyrir að allir
gestir geti fengið að vera út af fyrir
sig og í næði í náttúrunni. Í sumum
tilvikum er strengdur glær dúkur yf-
ir efsta hluta kúlunnar svo að gestir
geta legið undir hlýrri sæng og horft
á næturhimininn. Þá verður kamína í
hverju tjaldi til að veita yl og róm-
antískan bjarma.
Hefur Igloo Camp þegar gert
samning við framleiðanda tjaldanna
um að hafa einkarétt á notkun þeirra
á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Þá hefur fyrirtækið tryggt sér lóð á
fallegum stað í jaðri hálendisins á
milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs
og ætlunin að þar rísi 20-30 her-
bergja hótel áður en árið er á enda. Í
framhaldinu vilja Ásta og félagar
bæta við nýju hóteli af svipaðri stærð
ár hvert. Standa vonir til að hótelin
fái umhverfisvottun og geti auglýst
sig sem vistvænan valkost.
„Tjöldin eru umhverfisvæn að því
leyti að það sem við byggjum er end-
urkræft, hægt að taka kúlurnar nið-
ur og skilja við landið nánast í sama
ástandi og við fengum það. Bygging-
araðferðin þýðir einnig að við getum
farið inn á svæði sem eru of viðkvæm
til að þar megi byggja hefðbundið
hótel. Það sem er líka skemmtilegt
við þetta gistiform er að það veitir
okkur meiri sveigjanleika til að bæta
við einingum ef eftirspurnin kallar á
það, eða færa tjöld frá einu hóteli til
annars.“
En tjaldhótels-formið hefur líka
ákveðna ókosti. „Þó svo að byrj-
unarkostnaðurinn geti verið lægri þá
verður flóknara að þjónusta her-
bergin og þrífa þau en á venjulegu
hóteli, enda lengra á milli þeirra,“
segir Ásta en hvert hótel mun hafa
þjónustutjald eða þjónustubyggingu
með gestamóttöku og veitingasal þar
sem boðið verður upp á kvöldverð og
morgunverð.
Gisting sem fólk vill segja frá
Lesendum gæti þótt það djarft af
stofnendum Igloo Camp að bæta við
nýju hóteli árlega, en Ásta bendir á
að ferðamenn sæki í gistingu sem
býður upp á meira en bara notalegan
stað til að halla höfði. Hótel þurfi líka
að vera „Instagram-væn“ enda vilja
ferðamenn geta sagt skemmtilega
sögu og notað samfélagsmiðlana til
að deila með vinum sínum upplif-
uninni af því sem þeir sjá og gera.
„Hótelin myndu bjóða gestum upp
á einstaka upplifun sem ætti að laða
að gesti. Þá munu Igloo-hótelin hafa
mikla sérstöðu og er samkeppnin því
ekki eins bein og óvægin og ef við
værum að byggja hefðbundið hótel.“
Markaðsrannsóknir Igloo Camp
benda til að Suðurlandið sé góður
staður til að byrja enda gistirýmið á
svæðinu mjög vel nýtt nú þegar, og
ferðamannatíminn að lengjast í báða
enda með hverju árinu. Staðsetn-
ingin er hentug fyrir ferðalanga sem
eru á leið sinni upp á hálendið og
hönnun hótelsins ætti að höfða til
þeirra sem vilja skoða Ísland að vetri
til og upplifa norðurljósin.
Blaðamaður getur ekki á sér setið
og spyr hvort fyrsta hótelið verði
fjármagnað með kúluláni. „Við erum
langt komin með fyrsta hluta fjár-
mögnunarinnar sem mun byggjast
bæði á einkahlutafé og banka-
fjármögnun. Stefnum við á að hefja
annan hluta fjármögnunarinnar
seinna í vor,“ upplýsir Ásta en fæst
ekki til að gefa upp hvað fyrsta hót-
elið mun kosta.
Kamína yljar gestunum sem eru í góðri snertingu við umhverfið.
Vilja byggja nýtt
hótel á hverju ári
Ásgei Ingvarsson
ai@mbl.is
Igloo Camp blandar sam-
an bestu eiginleikum tjalds
og hótelherbergis og býður
gestum upp á mikla nánd
við náttúruna.
Brynjólfur, Kjartan og Ásta láta fara vel um sig í notalegu kúlutjaldi. Þar er allt sem gestir þurfa á að halda.
FRAMHALDSSKÓLAR
Lið frá Verzlunarskóla Íslands,
skipað þeim Arnaldi Þór Guðmunds-
syni, Atla Snæ Jóhannssyni og Gísla
Þór Gunnarssyni, hreppti sigur-
launin í Stjórnunarkeppni fram-
haldsskólanna sem haldin var nýlega
á vegum viðskiptadeildar Háskólans
í Reykjavík. Fyrirkomulag keppn-
innar var á þá leið að lið sem sam-
anstóðu af þremur til fjórum ein-
staklingum stýrðu fyrirtæki, í þessu
tilfelli súkkulaðiverksmiðju, í ákveð-
inn tíma og kepptu sín á milli um að
ná sem bestum árangri. Liðin þurftu
að leysa margvísleg vandamál sem
upp komu og skila góðum rekstri.
Í öðru sæti í keppninni varð lið
Borgarholtsskóla og í þriðja sæti
varð annað lið frá Verzlunarskól-
anum.
Gefi stjórnun gaum
Í frétt frá Háskólanum í Reykja-
vík segir að markmið keppninnar,
sem nú var haldin í annað sinn, sé að
kynna stjórnun fyrir nemendum í
framhaldsskóla og hvetja þá til að
gefa faginu gaum. tobj@mbl.is
Stýrðu súkkulaði-
verksmiðju til sigurs
Páll Melsted Ríkharðsson, Gísli Þór Gunnarsson, Arnaldur Þór Guðmunds-
son, Atli Snær Jóhannsson, Hrefna Sigríður Briem og Maarten Hol.
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • solskalar.is
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Yfir 90 litir í boði!