Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 114
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
A
tvinnulífið getur lagað sig
að nánast hverju sem er,
en það getur ekki lagað
sig að svona ofboðslega
miklum sveiflum og
breytingum á 6, 12 eða 18 mánaða
fresti. Það er stöðugleikinn sem öll
fyrirtæki þrá umfram allt, og að
það rekstrarumhverfi sem þeim er
búið á Íslandi geri þeim fært að
stunda skilvirkan og hagkvæman
rekstur svo þau geti verið sam-
keppnishæf við erlenda keppi-
nauta.“
Þetta segir Guðrún Hafsteins-
dóttir, formaður Samtaka iðnaðar-
ins og markaðsstjóri fjölskyldufyr-
irtækisins Kjörís í Hveragerði. Á
Iðnþingi 2018 ræddi Guðrún um þá
neikvæðu þróun sem orðið hefur í
rekstrarumhverfi íslenskra fyr-
irtækja að undanförnu. „Á aðeins
þremur eða fjórum árum höfum við
misst nánast alla samkeppnishæfni
okkar, og það á við um Ísland eins
og öll önnur lönd að alþjóðleg sam-
keppnisfærni er algjört lykilatriði
fyrir blómlegt atvinnulíf.“
Þrengt hefur að atvinnulífinu úr
ýmsum áttum. Nefnir Guðrún að
mikið innstreymi gjaldeyris sam-
hliða fjölgun ferðamanna hafi
styrkt krónuna svo mikið að inn-
lend framleiðsla á erfiðara með að
keppa við innflutta vöru. „Þá hafa
laun á Íslandi hækkað langt um-
fram það sem sést hefur í sam-
keppnislöndum okkar. Raforka er
líka orðin dýrari og fasteignagjöld
hafa hækkað verulega, sem og mik-
ið af þeim hráefnum sem iðnaður-
inn þarf á að halda,“ útskýrir Guð-
rún og nefnir að mælingar sýni að
Sviss er eina landið í heiminum þar
sem laun eru hærri en á Íslandi.
„Við erum líka með verulega háa
vexti og fjármagnskostnaður því
meiri baggi á íslenskum fyr-
irtækjum en þeim erlendu framleið-
endum sem þau keppa við. Skattar
á atvinnulífið eru einnig meiri en
víða annars staðar. Allt leggst þetta
á eitt til að gera samkeppnishæfni
Íslenskra fyrirtækja miklu verri.“
Er rekstrarumhverfið orðið svo
erfitt að sum fyrirtæki hafa þurft
að grípa til róttækra aðgerða. Að-
lögun getur þýtt að eðli starfsemi
breytist, leggist jafnvel af. „Mörg-
um brá í brún við þær fréttir í jan-
úar að prentsmiðjan Oddi hefði
sagt upp 86 starfsmönnum og muni
flytja stóran hluta af starfsemi
sinni úr landi. Oddi mun selja sömu
vörur og áður, en þær verða ekki
lengur framleiddar innanlands.
Mörg framleiðslufyrirtæki eru í
sömu sporum, og eðlilegt að bæði
stjórnvöld og Íslendingar sem þjóð
Þrengt er að íslensku
atvinnulífi úr mörgum
áttum: laun hafa hækk-
að mikið, raforka er orð-
in mun dýrari, skattar á
uppleið og krónan farin
að valda vandræðum.
Byrðar „Við erum með verulega háa vexti og fjármagnskostn-
aður því meiri baggi á íslenskum fyrirtækjum en þeim erlendu
framleiðendum sem þau keppa við,“ segir Guðrún. „Skattar á
atvinnulífið eru einnig meiri en víða annars staðar.“
Samkeppnishæfnin hefur
skerst mikið á skömmum tíma
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftirspurn Guðrún segir mikla vöntun á fólki með iðnmenntun hér á landi, og góð laun í boði t.d. fyrir rafvirkja.
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018