Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Mangójógúrt
Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt:
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
munnsogstafla við særindum í hálsi
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast
upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
HUNANGS
OG SÍTRÓNU-
BRAGÐ
APPELSÍNU-
BRAGÐ
SYKURLAUST
pólflata hnattlögun, snúðvölu.
Vegna þessara áhrifa getur fólk í
Ekvador, Kenýu, Tansaníu og
Indónesíu verið allt að 20 kílómetr-
um nær tunglinu en íbúar svæða í
grennd við norður- og suðurpól.
Þar sem Chimborazo er að finna
er vegalengdin frá jarðarmiðjunni
upp á yfirborð jarðar um 21 kíló-
metra lengri en við heimskautin.
Fjallstoppur Chimborazo er
6.384,416 kílómetrum yfir jarð-
armiðju en toppur Everest, sem er
miklu norðar á jarðarkringlunni,
6.382,605 kílómetrum. Út frá þessu
viðmiði teygir tindur Chimborazo
sig 1.811 metrum lengra upp í loftið.
„Það má líka skemmta sér við það
að skoða hæð fjalla út frá jarð-
flekum úthafanna. Með þeim út-
reikningum hefur eldfjallið Mauna
Kea á Hawai vinninginn. Hæð þess
mælist þannig 10.210 metrar,“ bætir
Basile glettinn við.
Ítrekaðar mælingar
Það þarf ekki að koma á óvart
þótt kæmi til diplómatískra deilna
um hæð fjalla. Jafnvel þótt Chimb-
orazo sé hæst þá er við því að búast
að Everest teljist áfram drottning
fjalla vegna hæðarinnar yfir sjáv-
armáli. Og þetta 50 milljóna ára
gamla fjall er enn að hækka vegna
jarðhreyfinga í Himalajafjöllum.
Menn hafa ekki alltaf verið sammála
um hæð Everest. Á tímum breskra
yfirráða í Indlandi sýndu landmæl-
ingamenn tindi XV sérstakan áhuga
og reiknuðu út að hann væri næst-
um 9.000 metrum yfir sjávarmáli.
Árið 1865 var tindi þessum gefið
nýtt nafn, Everest, til heiðurs mæl-
ingamanninum Georges Everest.
Opinber hæð Everest er 8.848
metrar samkvæmt indverskum
mælingum árið 1954. Ekki eru allir
sáttir við þá tölu og hefur útkoman
aldrei verið sú sama í þeim tilvikum
sem hæð fjallsins hefur verið mæld.
Ítalskur leiðangur fann út árið 1992
að hæðin væri 8.845,9 metrar en
bandarískur leiðangur hækkaði
fjallið á ný og það umfram hina op-
inberu hæð, eða í 8.849,9 metra.
Í framhaldi af öflugum jarð-
skjálfta árið 2015 hafa jarðfræð-
ingar staðfest að tindurinn hafi
lækkað um þrjá sentímetra. En til
hvers er að efast um hina opinberu
hæð og ergja með því Nepala en
þeirra er tindurinn. Þeir velja „fjall-
ið sitt“ en þeir gruna reyndar Kín-
verja um tilraunir til að reyna að
knýja fram lægri hæðartölur.
„Hvernig mynduð þér bregðast við
reyndi erlent ríki að láta fjöllin ykk-
ar sýnast lægri, án þess að bera það
undir ykkur?“ spyr Buddhi Nara-
yan Shrestha, fyrrverandi forstjóri
Jarðvísindastofnunar Nepal í viðtali
í The New York Times. Áforma yfir-
völd í Nepal að komast sjálf að því
sanna um núverandi hæð Everest
með því að senda sveit sjerpa með
GPS-mælitæki upp á fjallstindinn.
Verulega breytileg hæð
Fyrrnefndur Basile segir að
ágreiningur um mælihæðina sé fátt
annað en stormur í vatnsglasi. Allar
mælihæðir sem miðað er við séu
samkomulagsatriði. Til dæmis
sveiflist hæð hæsta fjalls Evrópu,
Mont Blanc, eftir árstíðum og snjóa-
lögum. Yfirborð sjávarmáls sé einn-
ig afar breytilegt vegna öldumynd-
unar og sjávarfalla. Í Frakklandi er
sjávarhæðin mæld út frá bryggju-
mæli í höfninni í Marseille. Núll-
punktur hans var fundinn út frá
meðaltals-sjávarhæð við höfnina á
árunum 1885 til 1897. Hvert land
ákveði sjálft sinn núllpunkt og séu
þeir almennt teknir sem góðir og
gildir af þjóðum heims.
Með því að klífa Chimborazo geta
menn hreykt sér af því að hafa klifr-
að hæst í átt til himna. Góðu frétt-
irnar eru þær, að uppganga á þetta
fjall er miklu léttari en á Everest.
Það er þó engum vafa undirorpið að
það er eitthvert mesta afrek fjalla-
mennskunnar að klífa nepalska fjall-
ið. Að meðtöldum aðlögunartíma er
um að ræða margra vikna þrekvirki
Everest er ekki fjalla hæst
& Eldkeila í Ekvador er sögð vera hærri en Everest & Lögun jarðar skýrir mismunandi mælingar
& Yfirvöld í Nepal hyggjast senda sveit sjerpa með GPS-mælitæki upp á Everest til að mæla hæðina
Hæsta fjall heims Chimborazo fjall í hálöndum Andesfjalla í Ekvador er nú sagt hæsta fjall heims, sé miðað við jarðarmiðju. Toppur fjallsins er 6.384,416
kílómetrum yfir jarðarmiðju, en toppur Everest er 6.382,605 kílómetra frá sama viðmiði. Uppganga á Chimborazo er miklu léttari en á Everest.
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Everestfjallið er ekki endilega hið
hæsta í heimi, en það fer þó eftir
því hvernig hæð fjalla er mæld og
hvaðan og hverjir mæla hæðina.
Flestir ef ekki allir hafa staðið í
þeirri trú, að hið volduga fjall sé
hið hæsta í heimi. Allir hafa þeir
hins vegar rangt fyrir sér því eld-
keilan Chimborazo í hálöndum
Andesfjalla í Ekvador teygir sig
lengra upp í loftið. Það fer þó, eins
og fyrr segir, eftir því við hvað er
miðað. Sé miðað við yfirborð sjávar
þá er tindur Everest umtalsvert
hærri, eða 8.848 metrum yfir haf-
fletinum og Chimborazo 6.263
metrum. Sé hins vegar miðað við
jarðarmiðju verður niðurstaðan allt
önnur, eða 1.811 metrar Ekvador-
fjallinu í hag, eða sem svarar tvö-
faldri hæð Esju.
Hvernig má þá telja Chimborazo
hærra og í hverju liggur mismun-
urinn? Skýringin felst í því að jörð-
in er ekki fullkomin kúla, segir
Christophe Basile, rannsóknar-
stjóri í Jarðvísindastofnun Gren-
oble í Frakklandi, í umfjöllun um
fjöllin háu í útbreiddasta dagblaði
landsins, Ouest-France. Vegna
miðflóttaaflsins er hnötturinn
nokkuð flattur við pólana en „búst-
inn“ við miðbaug, að hans sögn. Á
máli stærðfræðinnar er talað um