Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 34

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 34
VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Við höfum ríka ástæðu til þess að koma saman og fagna þessum tíma- mótum. Starf kórsins hefur eflst með hverju árinu og nú erum við með um 60 frímúrarabræður sem skráðir eru í hann,“ segir Jónas Þórir, stjórnandi Frímúrarakórsins, glaður í bragði þegar blaðamaður nær á hann milli æfinga. Á laugardaginn kemur heldur kórinn tvenna tónleika í tilefni af 25 ára sínu og stendur nú undirbúningur vegna þeirra sem hæst. Verða tón- leikarnir haldnir í glæsilegum hátíð- arsal Frímúrarareglunnar á Íslandi í húsakynnum hennar við Bríetartún. „Þetta er mikilvægur hluti starfs- ins á vettvangi Frímúrarareglunnar á Íslandi og við hittumst alla laug- ardagsmorgna og æfum þau lög sem við syngjum á vettvangi reglustarfs- ins í bland við þau lög sem okkur ein- faldlega langar til að syngja,“ segir Jónas. Tvö ný verk frumflutt Hann segir að á margan hátt verði dagskrá tónleikanna nú sérstök en það helgist af tilefninu. „Það má kannski nefna tvennt sem er sérstakt við þessa tónleika. Annars vegar það að allir þeir stjórnendur kórsins í gegnum tíðina sem á lífi eru stíga á stokk og stjórna honum á tón- leikunum. Við báðum þessar gömlu kempur um að velja eitt lag sem þeir vildu sérstaklega að kórinn tæki á tónleikunum og svo var þeim falið að stjórna kórnum í gegnum það. Þetta eru þeir Friðrik S. Kristinsson, Jón Kristinn Cortez, Garðar Cortes, Gylfi Gunnarsson og Helgi Bragason, ásamt mér.“ Hins vegar nefnir Jónas þá stað- reynd að á tónleikunum verða tvö tónverk frumflutt sem sérstaklega eru samin fyrir tilefnið. „Fyrra verkið sem við frumflytjum er eftir þá Gunnlaug V. Snævarr og Helga Bragason. Það nefnist Látum hljóma sönginn sveinar og er afar skemmtilegt. Þá flytur kórinn einnig nýtt verk sem ég hef samið við texta sem sóttur er í Hávamál. Það er svíta nr. 2 því nú þegar hefur kórinn flutt svítu nr. 1 sem ég samdi einnig fyrir kórinn. Það verk hefur kórinn raunar sungið margoft og raunar víða um heim.“ Öllu tjaldað til að þessu sinni Jónas segir að kórinn hafi ákveðið að tjalda öllu til nú í ár enda sé til- efnið ærið. „Það er mikill kraftur í þessu starfi og það gefur okkur öllum sem að því komum mjög mikið. Við eigum líka marga velunnara sem leggja okkur lið. Þannig verðum við með mjög öfl- uga tónlistarmenn með okkur. Hjör- leifur Valsson kemur frá Noregi og leikur á fiðlu, þá leikur Matthías Stef- ánsson einnig á fiðlu, Örnólfur Krist- jánsson leikur á selló, Bjarni Svein- björnsson á bassa, Ólafur Flosason á óbó og Sigurður Hafsteinsson á saxó- fón. Þá fáum við einnig til liðs við okkur einsöngvara og þeir eru ekki af verri endanum. Kristján Jóhanns- son tekur lagið, Jóhann Sigurðarson, Ásgeir Páll Ágústsson og Björn Björnsson, þannig að þetta verður í raun algjör flugeldasýning.“ Löng og mikil saga rakin Í tilefni afmælis kórsins stendur hann fyrir útgáfu afmælisrits sem rekur sögu hans aftur til stofnársins 1993. Er ritið ríkulega skreytt mynd- um sem segja sína sögu um gróskuna í þessu samfélagi. Í ritinu kemur m.a. fram að nú, aldarfjórðungi eftir stofnun kórsins, eru enn 14 stofnfélagar virkir í starf- inu. Þar lýsir einnig Gunnlaugur V. Snævarr, fyrsti formaður kórsins, hversu mikið verk var fyrir höndum þegar starfi kórsins var ýtt úr vör. „Á fyrstu æfingu féllust mér hend- ur. Kórinn var eiginlega algerlega ósyngjandi þótt mjög góðir menn væru þar innan um. Ég sá að bregð- ast varð við. Að eignast góðan kór er eins og eignast gott íþróttalið, æfa og keppa eða fara í keppnisferðir og stefna hærra.“ Víða komið við Á þeim aldarfjórðungi sem kórinn hefur starfað hefur hann ferðast víða um lönd. Ein eftirminnilegasta ferðin mun vera sú sem farin var aldamóta- árið 2000 en þá lá leiðin um Egypta- land og Ísrael. Þá hefur kórinn einn- ig sótt heim frændþjóðir okkar í austri, Dani, Norðmenn og Finna. Þá segir Jónas Þórir að margar ferðir kórsins innanlands hafi verið eft- irminnilegar og þær séu orðnar ótal- margar. „Kórinn hefur skírskotun víða og hefur komið með virkum hætti að reglustarfinu víða um land. Og teng- ingarnar liggja víða, m.a. í gegnum þá frímúrarabræður sem í gegnum aldirnar hafa lagt okkur til efniviðinn með snilligáfu sinni. Þar má nefna meistara á borð við Wolfgang Ama- deus Mozart og Íslendingana Sigfús Halldórsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Þórarin Guðmundsson, svo nokkr- ir séu nefndir.“ Tvö ný kórverk á afmælishátíð & Frímúrarakórinn fagnar 25 ára afmæli með tónleikum á laugardag & „Gamlar kempur“ taka í sprotann Ljósmynd/Jón Svavarsson Á æfingu Kórinn hefur æft stíft að undanförnu undir styrkri forystu stjórnandans Jónasar Þóris Þórissonar. Morgunblaðið/Hari Fjör Slegið var á létta strengi á árlegum vortónleikum kórsins í fyrra. 34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Á síðasta fundi Hverfisráðs Vest- urbæjar var lögð fram ályktun um að lækka hámarkshraða í Gamla Vest- urbænum. Afgreiðslu hennar var frestað. Ályktunin var svohljóðandi: „Hverfisráð Vesturbæjar skorar á borgarstjórn að skoðað verði í sam- vinnu við íbúa hvort breyta megi Gamla Vesturbænum, sem afmarkast af Hringbraut, Suðurgötu, Mýr- argötu og Ánanaustum, í vistgötu- hverfi þar sem hraði takmarkist við 15 km/klst. Einnig að kannaður verði hugur íbúa til aukinnar stýringar á bílastæðum vestan Ægisgötu með gjaldtöku.“ Hins vegar samþykkti ráðið ályktun þar sem tekið var undir þau sjónarmið sem íbúar hverfisins hafa látið í ljós síðustu daga á sam- félagsmiðlum og á íbúafundi borg- arstjóra á dögunum að hröð og mikil umferð um Hringbraut sé ógn við lífsgæði í hverfinu og skeri hverfið sundur. Brýnt sé að auka öryggi á Hring- braut og minnka áhrif umferðarinnar í næsta nágrenni. Að lágmarki beri að framfylgja þeim hraðatakmörkunum sem nú gilda á götunni. Skoraði Hverfisráðið á borgarstjórn að grípa til aðgerða. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Hringbraut Vesturbæingar hafa áhyggjur af mikilli og hraðri umferð. Hámarkshraði verði 15 km. í Vesturbæ FERMINGARGJAFIR Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.