Skírnir - 01.09.2014, Page 11
235sturla
samtölum feðganna síðasta árið sem þeir báðir lifðu. Sighvatur
áttaði sig á því að oflætið myndi ríða þessum elskaða syni og þeim
öllum að fullu — en gat ekki stöðvað tímans þunga nið.
Daginn fyrir Örlygsstaðabardaga liggja þeir nafnar úti við Valla-
laug í miðjum Skagafirði, svo þeir væru fljótir að grípa til vopna
þegar óvinir kæmu í héraðið, og sváfu því lítið um nóttina. Morg-
uninn eftir spurði Sturla Sighvatsson frænda sinn hvað hann hefði
dreymt:
„Mig dreymdi það,“ sagði Sturla, „að eg var í Hvammi á föðurleifð minni
og þar vorum vér allir fyrir handan ána upp frá Akri. Kross stóð hjá oss á
holtsmúlanum hár og mikill. Þá þótti mér hlaupa skriða mikil úr fjallinu og
var smágrjót í, allt nema einn steinn. Hann var svo mikill sem hamar hlypi
að oss og þótti mér undir verða margt vorra manna og margt komst undan.
En Vigfús Ívarsson varð undir svo að eg kenndi. En þá vaknaði eg,“ sagði
hann.
Sturla [Sighvatsson] svarar: „Oft verður sveipur í svefni,“ sagði hann.
(Sturlunga saga I: 409)
Frásögnin af aðdraganda Örlygsstaðabardaga sumarið 1238 er svo
þétt og markviss að við gleymum örskotsstund að sjálfan höfund
sögunnar dreymir þennan draum. Að hann talar ekki aðeins við
Sturlu í morgunsárið við Vallalaug heldur beint til okkar. Hugur
hans leitar í Dalina, heim á landnámsjörð Auðar djúpúðgu í Hvammi
þar sem afi hans og amma, Hvamm-Sturla og Guðný, sem hafði
fóstrað hann lítinn, og pabbi hans höfðu búið. Draumur Sturlu um
dauða frænda síns kallast á við draum Guðnýjar þegar Sturla Sig-
hvatsson fæðist. Þá er hún einmitt í Hvammi og dreymir fæðingu
hans í Hjarðarholti og þykir sem hann muni heita Vígsterkur.
Ráðning draums Sturlu er látin liggja á milli hluta — en hún er
auðvitað augljós og þrungin trúarlegu tákni krossins — aðeins
nokkrum blaðsíðum síðar — næsta dag — liggja Sturla Sighvats-
son, Sighvatur faðir hans og þrír bræður dauðir á Örlygsstöðum.
Myndin af Sturlu Þórðarsyni er margslungnari en af flestum
öðrum á Sturlungaöld, og hún er nær alfarið sprottin af ritum hans
sjálfs og af sögum í Sturlungu — auk mikilvægra upplýsinga í Sturlu
þætti og Árna sögu biskups. Án Íslendingasögu vissum við næsta
skírnir
Skírnir Haust 2014 umbrot.qxp_Layout 1 6.10.2014 13:19 Page 235