Skírnir - 01.09.2014, Page 106
af. Samningarnir við nágrannaríkin bættu engu efnislega við
NATO-aðildina eða varnarsamninginn. Hins vegar endurspeglaði
áherslan á nánari samvinnu Íslands við norrænu NATO-ríkin, þ.e.
Danmörku og Noreg, einnig áhuga annarra Norðurlanda, eins og
Finnlands og Svíþjóðar á nánari samstarfi Norðurlandaþjóðanna á
sviði varnarmála og þátttöku í alþjóðlegum aðgerðum á vegum
NATO.
Á sama tíma voru íslensk stjórnvöld í auknum mæli farin að
beina sjónum að norðurslóðum. Árið 2007 reyndu þau í fyrsta sinn
að tengja stöðu Íslands á svæðinu við loftrýmisgæslu NATO og
Rússaflugið. Þá höfðu Rússar ekki aðeins komið fyrir fána á botni
norðurpólsins heldur einnig hafið á ný æfingaflug með sprengju-
flugvélum á Norður-Atlantshafi. Þannig fóru rússneskar sprengju-
flugvélar að fljúga inn á eftirlitssvæði NATO fyrir utan lofthelgi
Íslands sem er eins og áður sagði hluti af sameiginlegu loftvarna-
kerfi bandalagsins. Í langflestum tilvikum var um flugvélar af
gerðinni Tupolev 95 („Birnir“), en einnig Tupolev 160 (e. „Black-
jack“). Herflugið var ekki laust við „táknræna sýndartilburði“ sem
áhrifamikill fyrrverandi norskur ráðherra lýsti sem „frumstæðri
hegðun“.8 Rússar brutu ekki alþjóðalög, enda rufu sprengjuflug-
vélar þeirra ekki 12 mílna lofthelgina, en þeim var einstaka sinnum
flogið mjög nálægt landinu, eða 35 mílum, og stundum hringinn í
kringum Ísland.9 Þótt líta mætti á flugið sem pólitíska ögrun var
það ekki túlkað sem hernaðarógn.10 Af hálfu NATO-ríkja og Rúss-
lands var almennt litið svo á að ekkert væri athugavert við slíkt eftir-
litsflug á svæði utan lofthelginnar, enda stundað af báðum aðilum á
heimasvæðum þeirra.
Af þeim sökum gerðu íslensk stjórnvöld ekki tilraun til að „ör-
yggisvæða“ framferði Rússa, en létu engu að síður margoft í ljós
óánægju sína eftir diplómatískum leiðum. Þar sem Rússar til-
kynntu ekki um flugið fyrirfram var einnig óttast að það gæti
truflað borgaralega flugumferð, þótt sprengjuflugvélarnar flygju
330 valur ingimundarson skírnir
8 Viðtal við háttsettan fyrrverandi norskan ráðherra, 30. júní 2008.
9 Sjá t.d.Morgunblaðið, 9. ágúst 2008.
10 Viðtal við háttsettan rússneskan embættismann, 1. júlí 2008.
Skírnir Haust 2014 umbrot.qxp_Layout 1 6.10.2014 13:19 Page 330