Skírnir - 01.09.2014, Page 114
samstöðu Norðurlandaþjóðanna í blíðu og stríðu“. Túlka mátti
þetta orðfæri þannig að hann vildi tengja hana óbeint við samstöðu -
yfirlýsingu Norðurlandanna þótt hún snerti ekki loftvarnir Íslands.
Mestu máli skipti pólitískt að hamra á því að þátttaka þeirra væri
ekki liður í að koma þjóðunum tveimur í NATO. Þess vegna gerði
Össur því skóna að hér væri um tvö óskyld mál að ræða (Össur
Skarphéðinsson 2012). Auðvitað var málið flóknara: Ljóst var að
með því að taka þátt í heræfingum NATO á Íslandi vildu Finnar
og Svíar vera í nánum tengslum við bandalagið þótt þjóðirnar yrðu
áfram utan NATO. En þrátt fyrir andstöðuna í Finnland var það
tvennt sem auðveldaði framgang málsins. Annars vegar olli það ekki
sænskum stjórnvöldum teljandi pólitískum vandkvæðum. Hins
vegar hafði Össur nokkuð frjálsar hendur við að undirbúa málið og
koma í því gegn hér á landi. Þótt Vinstri grænir væru á móti
loftrýmisgæslu NATO, eins og systurflokkar þeirra í Finnlandi og
Svíþjóð, gerðu þeir ekki tilraun til að koma í veg fyrir hana. Ólíkt
umræðunni í Finnlandi vakti það enga sérstaka athygli hér að tvær
Norðurlandaþjóðir, sem ekki eiga aðild að NATO, tækju þátt í
aðgerð bandalagsins á Íslandi. Á Íslandi snerist samfélagsumræðan
á þess um tíma aðallega um efni tengd bankahruninu en ekki hefð -
bundin öryggis- og varnarmál.
Eftir að þjóðþing Finnlands og Svíþjóðar og fastaráð NATO
höfðu samþykkt þátttöku í loftrýmiseftirlitinu var ákvörðuninni
lýst í fréttatilkynningu íslenska utanríkisráðuneytisins í júlí 2013
sem „merkilegu skrefi í sögu norrænnar varnarsamvinnu og Atl-
antshafsbandalagsins“ (Utanríkisráðuneytið 2013a, 2013b). Gunnar
Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, tók undir það þegar hann hitti
finnska utanríkisráðherrann í janúar 2014 (Utanríkisráðuneytið
2014a). Til að leggja áherslu á hinn táknræna norræna þátt var
ákveðið að utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar funduðu á
Íslandi meðan á dvöl Norðmanna, Finna og Svía stæði. Heræfingin
Iceland Air Meet stóð síðan frá 3.–21. febrúar 2014. Norðmenn
komu hingað með sex F-16 orrustuþotur og 110 liðsmenn, Svíar
með sjö JAS-30 þotur, eina eldsneytisvél og 110 liðsmenn og Finnar
með fimm F-18 þotur, tvær björgunarþyrlur og 60 liðsmenn. Auk
þess útveguðu Hollendingar eina eldsneytisvél og hið sama gerðu
338 valur ingimundarson skírnir
Skírnir Haust 2014 umbrot.qxp_Layout 1 6.10.2014 13:19 Page 338