Jökull - 01.01.2013, Blaðsíða 128
Halldór Ólafsson
Á leið niður Breiðamerkurjökul, Breiðamerkurfjall, Fjallsjökull og Öræfajökull í baksýn. – At Breiðamerkur-
jökull, view towards Breiðamerkurfjall, Fjallsjökull and Öræfajökull. Ljósmynd/Photo: Leifur Jónsson.
um síðan aftur sömu stefnu og losnuðum þannig við
þær ógöngur. Rétt fyrir kl. 11 birti loksins svo sá til
fjalla og skömmu seinna tók blessuð sólin að skína.
Þá kom í ljós að við vorum auðvitað á hárréttu róli.
Við höfðum snjó þar til komið var suður að Máva-
byggðarönd en þá tók við gróft hjarn. Tæpum kíló-
metra frá jökulrönd tókum við af okkur skíðin enda
var þar kominn glæra ís. Þótt jökullinn væri sléttur
þarna, var hann mjög brattur svo erfitt var að fóta sig
niður af honum. Við höfðum fast land undir fótum kl.
14:15 og fengum þá yfir okkur regnskúr sem virtist
halda til þarna á Breiðamerkursandi. Sleðana og skíð-
in skildum við eftir við jökuljaðar en gengum síðan
lausbeislaðir til Breiðárskála. Þar var fyrir hollenskur
fuglaskoðari með son sinn 10 ára og voru þeir feðgar á
vegum Ævars Petersen hjá Náttúrufræðistofnun. Eftir
nokkur vinsamleg orðaskifti héldum við niður á veg,
og höfðum ekki gengið lengi er bar að bíl með skóla-
börn, og ók hann okkur til Kvískerja. Þau systkini,
Guðrún, Flosi, Helgi, Ari og Hálfdán, tóku vel á móti
okkur þó flest væru nýstigin upp úr flensu og naut ég
vafalaus fyrri kynna af því góða fólki. Við hringd-
um í bæinn og létum vita um ferðir okkar, og talað-
ist svo til við félagana í Flugbjörgunarsveitinni, að
við yrðum sóttir upp úr hádegi daginn eftir. Dvöld-
um á Kvískerjum í góðu yfirlæti til kl. 22 enda þurfti
að spjalla við heimafólk um ferðalag okkar og ýmis
áhugasvið þeirra bræðra. Þarna fórum við í þurr föt
sem við höfðum tekið með úr pússi okkar, enda orðið
hundblautir á leiðinni frá jökli niður á veg. Hálfdán ók
okkur svo til baka að Breiðá og er þangað kom, fór ég
með honum upp að jökli að sækja sleðana og skíðin.
Kvöddum nú Hálfdán með virktum og vorum komnir
í ból kl. 23.
Oft höfðum við félagar fengið rysjótt veður á ferð-
um okkar og einnig oft góðviðri, en aldrei fyrr á
tíu daga gönguferð, fengið aðeins tvo daga þar sem
skyggni var meira en 100 m. En ánægjuleg og minn-
isstæð var þessi ferð okkur samt. Flugbjörgunarsveit-
arbíllinn kom ekki fyrr en kl. 14:30 og sátum við í
sólinni fyrir utan Breiðárbragga þangað til og þurk-
uðum það sem blottnað hafði. Nú var sem sé kom-
ið besta veðrið sem við höfum fengið í allri ferðinni.
Hörmuðum við það eitt að hafa ekki fengið svona veð-
ur er við vorum austur við Goðahnúka. Þegar bíllinn
kom, vorum við snöggir að hlaða á hann búnaðinum
og svo hófst mikil hraðferð til Reykjavíkur, en við
renndum í hlað heima hjá Magnúsi fjórum og hálfum
tíma seinna.
128 JÖKULL No. 63, 2013