Jökull


Jökull - 01.01.2013, Page 138

Jökull - 01.01.2013, Page 138
Magnús T. Guðmundsson FÉLAGATAL Skráðir félagsmenn um síðustu ármót voru alls 605, svipað og í fyrra. Þar af 17 heiðursfélagar, 471 al- mennir félagar, 17 fjölskyldufélagar, 56 námsmenn, og 44 fyrirtæki, stofnanir og fréttastofur. Erlendir á- skrifendur Jökuls eru nú rúmlega 50 og fer þeim fækk- andi, enda draga fræðibókasöfn nú mjög úr áskriftum tímarita sem ekki eru gefin út í vefútgáfum auk þess sem víða er verið að spara vegna niðurskurðar. RANNSÓKNIR Í samanburði við undanfarin tvö ár var árið 2012 við- burðalítið í jöklum landsins. Eldfjöll höfðu hægt um sig og jökulhlaup urðu ekki til vandræða. Þær rann- sóknir sem Jöklarannsóknafélagið kom að með bein- um hætti á árinu voru á Vatnajökli og Mýrdalsjökli auk sporðamælinga sem unnar eru af sjálfboðaliðum víða um land. Afkomumælingar á Mýrdalsjökli Mælingar fóru fram 17. maí þegar boraðar voru þrjár afkomuholur. Ekki tókst að komast á jökulinn fyrir hausthret svo stikur hurfu undir vetarsnjóinn. Hálfdán og samstarfsfólk dó ekki ráðalaust og fór á jökulinn aftur 27. nóvember þar sem sumarafkoman var metin. Mælingarnar undanfarin ár sýna að Mýrdalsjökull er ásamt Öræfajökli úrkomusamasti staður landsins. Vorferð 1.–8. júní Ferðin var með hefðbundnu sniði, farið um Jökul- heima og Tungnaárjökul. Unnið var að margvíslegum verkefnum, settar upp sjálfvirkar veðurstöðvar, m.a. í Kverkfjöllum, nýr skjálftamælir á Vetti, GPS mæling- ar og afkomumælingar voru gerðar á nokkrum stöð- um. Lagfæringar voru einnig gerðar á hitarörum milli húsanna. Þá voru gerðar ítarlegar mælingar á gos- stöðvunum frá 2011. Nú var fært niður í gíginn en svo var aldrei árið áður. Þó þurfti að notast við ál- stiga og öryggislínur. Gígsvæðið var mælt upp all ná- kvæmlega og hiti og dýpi í lóninu austan til. Þátttak- endur voru þegar mest var 28, en 21 voru allan tím- ann. Farartæki voru snjóbíll HSSR, bílar JÖRFÍ, LV og JH auk allmargra vélsleða. Helst bar til tíðinda í ferðinni að skæð magapest herjaði á mannskapinn og veiktust nánast allir í 1–3 daga hver. Helst var talið að nóróveira hefði tekið sér far með leiðangrinum, og það óboðin. Sporðamælingar voru gerðar á 43 stöðum haustið 2012, en hausthretið í september setti strik í reikn- ing mælinga á Norðurlandi. Þar var ekki hægt að mæla eftir þann tíma svo nokkrir sporðar náðust ekki þetta haustið. Allir jöklar nema þrír hopa, og lengd þeirra þriggja sem ekki gerðu það er annaðhvort nán- ast óbreytt milli ára eða að erfitt aðgengi veldur því að mæling er ónákvæmari en annars staðar. Hér er ógetið viðamikilla mælinga sem Lands- virkjun, Veðurstofan og Jarðvísindastofnun Háskól- ans standa að. Einnig kemur hingað til lands fjöldi vísindamanna erlendis frá til rannsókna bæði á jökl- um, jökulurðum, söndum og öðrum setmyndunum jökla. FUNDIR Aðalfundur var haldinn 22. febrúar. Að loknum aðalfundarstörfunum sýndi Ástvaldur Guðmundsson myndir frá ferð þeirra Gunnars Egilsonar á Suðurpól- inn á bílum árið 2010. Tæplega 60 manns mættu á fundinn. Á vorfundi 24. apríl flutti Björn Oddsson erindi um jarðhitann í Kverkfjöllum og Vilhjálmur Kjartansson sýndi myndir frá Grænlandsjökli. Fund- inn sóttu 50 manns. Fyrstu helgina í október tók JÖRFÍ höndum saman við Jarðfræðafélagið og stóð fyrir haustráðstefnu til heiðurs Helga Björnssyni í til- efni af sjötugsafmæli hans í lok ársins. Farið var aust- ur í Efri-Vík þar sem flutt voru erindi um jöklarann- sóknir hér á landi og farin skoðunarferð á Skeiðar- ársand. Helgi var að sjálfsögðu heiðursgestur og hélt hann inngangserindið. Þessi ferð þótti takast ákaflega vel en þátttakendur voru um 40. Haustfundur JÖRFÍ var síðan þann 30. október og var hann tileinkaður því að 100 ár voru á árinu frá fæðingu Sigurðar Þórarins- sonar prófessors og formanns JÖRFÍ um árabil. Sig- urður Steinþórsson flutti erindi um ævi og störf Sig- urðar og eftir hlé rifjaði Halldór Ólafsson upp minn- ingar úr jökla- og fjallaferðum með Sigurði. Á fund- inn komu 50 manns. ÚTGÁFA JÖKULS Minning Sigurðar Þórarinssonar setti svip á liðið ár í útgáfumálum Jökuls. Systurfélögin tvö, Jöklarann- 138 JÖKULL No. 63, 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.