Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.2014, Blaðsíða 6

Skírnir - 01.04.2014, Blaðsíða 6
Frá ritstjóra Fátt er mikilvægara lýðræðisþjóð en opin og hreinskiptin umræða um þjóðfélagsmál, sem byggir á þekkingu, víðsýni og yfirvegun. Ekki síst er slík umræða nauðsynleg þegar þjóðfélag hefur gengið í gegnum hremmingar og áföll á borð við þau sem orðið hafa á Islandi á síðustu árum. Alþingi hlýddi því kalli með því að skipa rannsóknar- nefnd í kjölfar bankahrunsins og afrakstur þeirrar vinnu var hin gagnmerka Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis. Því má hins vegar halda fram að talsvert hafi skort á að skýrslunni hafi verið fylgt nægilega vel eftir í almennri þjóðfélagsumræðu og þjóðin ekki nýtt sér sem skyldi þann góða grunn sem þar er lagður að gagnrýninni og uppbyggilegri umræðu um það hvernig hægt er að standa betur að málum í stjórn- málum og stjórnsýslu og bæta þannig þjóðfélagið. Eitt mikilvægasta erindi tímarits á borð við Skírni er að stuðla að slíkri umræðu og í síðustu heftum Skírnis hafa birst greinar þar sem fræðimenn hafa greint atburði í aðdraganda og eftirmála hrunsins og sett fram hugmyndir um hvernig þróa megi áfram lýðræðið og virkja þjóðina. Enda eru tímaritin „hentugri en flestar bækur aðrar til þess að vekja lífið í þjóðunum og halda því vakandi, og til að efla frelsi þeirra, heill og menntun“, eins og Tómas Sæmundsson orðaðiþað í Fjölni forðum. Þessi umræða heldur áfram og í þessu hefti má segja að bankarnir sjálfir séu í forgrunni. Guðrún Johnsen, lektor í hagfræði, sem skrifað hefur umtalaða bók um bankahrunið á ensku, á hér beinskeytta grein, Bankakerfið knésett, þar sem hún bendir á afdrifarík mistök í einkavæðingu bankanna. Bankarnir eru sömuleiðis þungamiðja greina þeirra Eiríks Bergmann, Kristínar Loftsdóttur og Más Wolfgangs Mixa, þótt þau nálgist efnið meira úr hugmyndafræðilegri átt. Alþingi er hins vegar viðfangsefni Njarðar Sigurjónssonar þar sem hann skoðar þá virðulegu stofnun frá frumlegu og óvæntu sjónarhorni. Að vanda er annað efni af ýmsu tagi þótt bókmenntir séu jafnan áberandi. Hvert hefti Skírnis þarf helst að geyma eina grein um Njáls sögu, og að þessu sinni skrifar Pétur Gunnarsson skemmtilega grein um Njálu sem kallast á við greinar úr fyrri heftum. Norski fræðimaðurinn Heming Gujord skrifar um allgleymdan og lítt lesinn höfund nú á dögum, Kristmann Guðmundsson og tekur helstu verk hans til nýrrar skoðunar, og þýskur fræðimaður, Gerhard Schreiber, hefur tekið sér það fyrir hendur að endurreisa orðstír Magnúsar Eiríkssonar guðfræðings, en Magnús frater, eins og hann var alltaf kallaður, setti fram kenningar sem á ýmsan hátt eru samstiga skrifum öllu frægari samtímamanns hans, Sorens Kierkegaard. Gestur Guðmundsson skrifar svo um fræðilega vanræktan en mikilvægan þátt íslenskrar menningar; íslenska rokkið. Fáar myndlistarsýningar hafa vakið jafnmikla athygli og hrifningu á síðari árum og hin heillandi sýning Ragnars Kjartanssonar, Tbe Visitors, í Galleríi Kling & Bang nýverið sem sló öll aðsóknarmet. í Myndlistarþættinum setur Ólafur Gíslason sýningu Ragnars í listasögulegt samhengi og stillumynd úr sýningunni af Ragnari í baðkarinu prýðir forsíðuna. Góðskáldið Anton Helgi Jónsson gefur svo tóninn í upphafi með tveimur nýjum ljóðum. Páll Valsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.