Skírnir - 01.04.2014, Page 19
SKÍRNIR
BANKAKERFIÐ KNÉSETT
17
Þá var að finna innan hópsins fyrrum viðskiptaráðherra, Finn
Ingólfsson, þá forstjóra VIS sem áður hafði stýrt einkavæðingar-
ferlinu („S-hópurinn kaupir ..." 2002), og kaupfélagsstjóra Kaup-
félags Skagfirðinga, Þórólf Gíslason, svo og forstjóra Samskipa,
Ólaf Ólafsson, svo nokkrir séu nefndir („S-hópurinn skiptist ..."
2004). Ekki var sama gagnsæinu fyrir að fara í S-hópnum og í Sam-
son-hópnum því að hann einkenndist af vef skúffufyrirtækja þar
sem nöfn endanlegra hluthafa eða tengdra aðila lágu ekki fyrir.
Hvergi er að finna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis (2010) lista
yfir endanlega hluthafa og tengda aðila S-hópsins.
Hér var um önnur mistök að ræða í einkavæðingarferlinu. Þegar
jafnmiklir hagsmunir eru í húfi og þeir sem varða sölu á banka
verður að tryggja gagnsæi í hópi kaupenda. Ella geta menn ekki
gengið úr skugga um að sá sem fer með sölu á bankanum sé einnig
í hópi kaupenda. Þegar tengsl eru milli umsjónaraðila sölunnar og
kaupanda hefur það augljóslega áhrif á verðið, en Ríkisendurskoðun
(2003: 73) gerði verðið á hlutnum að sérstöku umfjöllunarefni.
Einnig getur það komið í veg fyrir að hægt sé að tryggja að reyndur
aðili sé meðal kaupenda eins og stjórnvöld mæltu fyrir um í upphafi
ferlisins. Eftirlitsaðilum getur verið næsta ómögulegt að meta hæfi
kaupanda til að fara með virkan eignarhlut undir þessum kring-
umstæðum, eins og lög kveða á um.
Ein meginforsendan fyrir sölunni til S-hópsins var sú að í far-
teskinu væru erlendir fjárfestar með reynslu af rekstri fjármála-
fyrirtækja. I samningaferlinu var látið í veðri vaka að franski bank-
inn Société-Générale væri sá aðili, en ekki voru gefnar nákvæmar
upplýsingar um það. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu gerði
rammasamkomulag við S-hópinn um frekari samningaviðræður:
... 15. nóvember 2002 þar sem S-hópurinn gekkst undir þá skyldu að veita
FnE fullnægjandi upplýsingar fyrir 6. desember 2002 um beina fjárfestingu
af hálfu „Société Générale og/eða annarrar alþjóðlegrar fjármálastofnunar“
sem væri ásættanleg fyrir nefndina, að því viðlögðu að viðræðum yrði að
öðrum kosti hugsanlega slitið með öllu. Endanleg tilkynning um þetta dróst
í um það bil mánuð þar fram yfir og fór fyrst fram við eða rétt fyrir undir-
skrift kaupsamnings. Fyrirliggjandi gögn hjá rannsóknarnefndinni veita
ekki nánari upplýsingar um það með hvaða hætti FnE eða eftir atvikum