Skírnir - 01.04.2014, Síða 30
28
GUÐRÚN JOHNSEN
SKÍRNIR
á að skipa 187 fyrirtækjum innan sinna vébanda skv. víðustu skil-
greiningu. Fjárhagslega tengdir aðilar innan þessarar samstæðu
fengu að láni svo mikið sem 85% af eiginfjárgrunni Glitnis þegar
mest lét, en aðilar tengdir Baugi áttu um 30% í bankanum (Margrét
Bjarnadóttir og Guðmundur Axel Hansen 2010: 45, mynd 23;
Rannsóknarnefnd Alþingis 2010, 1, 6. kafli: 293).9 Um 11% af
öllum útlánum bankanna þriggja var veitt til þess hóps fyrirtækja
sem tengdist Baugi Group, eða um 6 milljarðar evra þegar mest lét
(Rannsóknarnefnd Alþingis 2010, 2, 8. kafli: 137).
Það sem vakir fyrir þeim, sem setja á stofn fyrirtækjasamstæðu
á borð við Baugur Group, Samson Group eða Milestone, er að ná í
sem mest lánsfé með sem minnstu eigin fé á móti. Áhætta eigendanna
sjálfra er þá lágmörkuð en um leið að mestu borin af einhverjum
öðrum, þegar hún er á annað borð tekin. Áhættan hvíldi í þessu til-
viki að mestu á kerfislega mikilvægum bönkum og að endingu á
skattgreiðendum ef hún endaði í verðlækkunum og/eða brostnu
trausti og efa um farsælan rekstur bankanna til framtíðar litið. Lána-
bækur bankanna urðu óhjákvæmilega veikburða þar sem lítið sem
ekkert eigið fé lántakandans var lagt fram sem mætt gat lækkun
eignaverðs sem fjármagnað var með bankalánum. Undir þessum
kringumstæðum eru engin takmörk fyrir því hve mikla áhættu fjár-
festar eru tilbúnir að taka, þar sem þeir bera nánast ekkert af áhætt-
unni sjálfir og geta komið sér algerlega undan henni með því að
greiða sér út arð úr skúffufélögum til að tryggja að allavega höfuð-
að nokkur verði þess var og án þess að tilhlýðileg refsing hljótist af, en einnig bein
eignasala, samningar sem fela í sér undirverðlagningu eigandanum til handa, óhóf-
leg laun forstjóra, lánasamninga, eða nýtingu viðskiptatækifæra félagsins í þágu
eigandans o.s.frv. 1 öðru lagi, getur hinn ráðandi hluthafi aukið hlut sinn í félag-
inu án þess að leggja því nokkuð til, svo sem með að gefa út nýja hluti sem þynna
hlut annarra, útiloka minnihlutann frá ákvarðanatöku, nýta innherjaupplýsingar
til að tímasetja viðskipti með hlutabréfin, yfotöku á fyrirtækjum sem smám saman
eru samkeppnishamlandi þó að hver og ein beri ekki með sér brot á samkeppnis-
lögum, og önnur fjárhagsleg fyrirgreiðsla og ábyrgðir sem rýra eign minnihiuta-
eigendanna í hlutafélaginu“ (Johnson o.fl. 2000: 23).
9 Tengdir aðilar Baugs sem áttu samanlagt 30% í Glitni (á ólíkum tímum) voru með
um 30% hlut í Glitni í gegnum eignarhluta sína í FL Group, FL Group Holding
Netherlands B.V. og FL GLB Holding A.V.