Skírnir - 01.04.2014, Page 53
SKÍRNIR
HLJÓÐMENNING ALÞINGIS
51
vísun til hugmyndarinnar um áheyrendalýbrxbi. Því næst er innrás
mótmælenda á þingpalla í desember 2008 tekin fyrir, en sá atburður
vekur athygli á mikilvægi verndunar hljóðhelgi þingsins og hve al-
varlegum augum brot á henni eru litin. Að síðustu er hljóðmenning
þingsins sett í samhengi og skýrð með vísan til minnisvarðans Svörtu
keilunnar eftir Santiago Sierra en ef grannt er hlustað spyr það verk
áhugaverðra spurninga um þingræði, grjót og hávaðastjórnun.
I greiningunni er stuðst við innblástur úr ýmsum áttum hljóð-
menningarfræða en rétt er þó að vísa til mikilvægrar kenningar
franska fjölfræðingsins Jacques Attalis hér í upphafi. Attali heldur
því fram að öll átök og allar meginbreytingar í samfélagi tengist
stýringu hávaða.3 Hér merkir hávaði meðal annars andstöðu, en
einnig hið óæskilega hljóð, ógreinilega eða óskýra, en Attali leggur
áherslu á mikilvægi hávaðastjórnunar sem valdatækis til stýringar.
Um leið og við útilokum umfjöllun um hávaða frá hinni skipulögðu
kortlagningu heimsins (við hlustum ekki) er hávaðinn alltaf til
staðar og notaður til stýringar, keyptur, seldur og bannaður, allt
eftir aðstæðum. Fyrir Attali er hávaði einskonar myndhverfing fyrir
hverskyns bjögun og viðnám sem síðar hefur áhrif á samfélagið og
tilraunir til þess að hafa hemil á hávaðanum eru lýsandi fyrir það
hvernig valdi er beitt til verndar óbreyttu ástandi.
Sé hlustað á Alþingi á þessum nótum má segja að eitt helsta ein-
kenni hljóðmenningar þess sé viðleitni til að vernda skilgreindan
hljóðheim. Vald stofnunarinnar felst í yfirvegun umræðunnar og
fastmótuðum hefðum sem birtast í fundarsköpum og skráðum og
óskráðum reglum um rökræður. Ógnin við hinn skilgreinda hljóð-
heim er hávaðinn sem ýmist kernur að utan eða innan, en hann er,
eins og Attali hefur haldið fram, bældur niður eða afgirtur. Þar með
verður hávaðastjórnunin sjálf líkt og í hljóðverkinu Vituð ér enn —
eða hvatf að einu mikilvægasta viðfangsefni þess sem hefur hljóð-
stjórnunarvaldið.
3 Þótt viðfangsefni Attalis í bókinni Hávaði sé fyrst og fremst tengsl tónlistar,
stjórnmála og efnahags (þ.e. hvernig tónlist hefur áhrif á samfélagsgerðina) þá er
hugmyndin um hávaða engu að síður áhugaverð sem leiðarvísir þegar stýring á
hljóðheimi er greind. Jacques Attali var m.a. helsti efnahagsráðgjafi Frangois Mit-
terrand og síðar yfirmaður Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD).