Skírnir - 01.04.2014, Page 85
SKÍRNIR
KRISTMANN GUÐMUNDSSON
83
Það er einnig hægt að komast yfir kynlífsóttann með því að lifa í
beinum tengslum við náttúruna og lífskraftinn sem í henni býr. En
spurningin er hins vegar hvort tungumálið nái að tjá það í þessari
senu? „Det steg en jubel i henne," o.s.frv. Ef þetta hefðu verið
barnsleg orð unglingsstúlkunnar hefðu þau verið skiljanlegri. En
hér talar sögumaðurinn og þá hefði maður vænst þess að hann hefði
tjáð sig á ítarlegri hátt til að lýsa þessum mikilvægu tímamótum í lífi
stúlkunnar.
Sagnaheim Kristmanns er ekki hægt að greina með kenningum
í nútíma sálgreiningu. Þær senur sem við höfum fjallað um hér miðla
því sem nefna mætti ólærðan og naívan vítalisma. Það er lífið sjálft
sem tekur í taumana og leiðir einstaklinginn inn í heim erótíkur og
endursköpunar. Innan sálgreiningar birtist vítalisminn sem fræðileg
útfærsla á vítalisma. Hjá einstaklingnum er vítalisminn ekki lærður
en hann er það hins vegar í „master mind“ Sigmunds Freud. Höf-
undurinn umbreytir svo fræðikenningunum í skáldaðar „case-stu-
dies“. Þær norrænu bókmenntir sem voru gefnar út í Þriðja ríkinu
miðla að miklu leyti slíkum ólærðum vítalisma. En í þessum skáld-
verkum — einnig hjá Kristmanni — sjáum við líka móta fyrir nú-
tímalegri hugmyndum. Áhugavert dæmi um það finnum við í Den
forste var frá 1933. Aðalpersónan, Kidde Vidalin, sem er 16-17 ára,
birtist allt í einu í sjávarplássi án nokkurrar forsögu og með allt sitt
hafurtask í einni ferðatösku. Hann hefur huglæga afstöðu til ástar-
innar sem kemur fram á næturnar, „i dunkle og marerittaktige
drommer om kvinner og dyr og morke kamrer, — som endte med
en naturlig utlosning" (15). Dálæti menningarróttæklinga á kenn-
ingum sálgreiningarinnar, sem Sigurd Hoel og Helge Krogh standa
helst fyrir í Noregi, kemur einnig fram hjá hinum íhaldssama Krist-
manni. Það sem Kidde Vidalin bælir í sínu daglega lífi, birtist í
draumum hans sem ferli samþjöppunar og tilfærslu. Kidde tekst
aldrei að gera alvöru úr sambandinu við stúlkuna sem hann er ást-
fanginn af. Þetta gerir Den forste vdr að sögu um ekki bara hreina,
en einnig ófullnægða og glataða ást. En það sem gerist undir yfir-
borðinu er þó áhugaverðara í þessari sögu, þ.e. þau átök sem eiga sér
stað í andlegu Dunkelkammer aðalpersónunnar. Sigur sálgreining-
arinnar fólst í því að ná til þeirra sem voru mest mótfallnir henni.