Skírnir - 01.04.2014, Page 140
138
GERHARD SCHREIBER
SKÍRNIR
Samkvæmt Kierkegaard virkar „fjarstæðan" sem marklína skyn-
seminnar. Hún er hugtak sem aðgreinir svið trúarinnar á neikvæðan
hátt frá sviði mannlegra vitsmuna og bægir þar af leiðandi frá mis-
skilningi um þessi tvö svið: „Fjarstæðan er hinn neikvæði mæli-
kvarði á það sem er æðra mannlegum skilningi og þekkingu.“52
Þegar kemur að birtingarmyndum trúarinnar ætti sá sem sýnir trú
á viðeigandi hátt þar af leiðandi að ganga úr skugga um „að það
innsæi sem talar sé hið nýja innsæi, og einmitt þetta er tryggt með
neikvæðu formerki.“53 Samkvæmt Kierkegaard mistókst Magnúsi
ekki aðeins að skilja það að fjarstæðan, sem marklínuhugtak, væri
órjúfanlega samtvinnað trúnni, heldur mistókst honum einnig að
taka tillit til þeirra mismunandi sjónarmiða sem sett eru fram undir
dulnefnunum tveimur (Johannes de silentio og Johannes Climacus),
sem Kierkegaard notar til að varpa ljósi á trúna frá sjónarhóli hins
trúlausa — nefnilega neikvœtt: í krafti fjarstæðunnar. „I augum
þriðja aðila kemur hinn trúaði fram í krafti fjarstæðunnar; og út frá
því verður þriðji aðili að dæma, því að þriðji aðili býr ekki yfir hinni
trúarlegu ástríðu."54 Hinn trúaði hefur hins vegar aðra sýn á hlut-
ina, því að fjarstæðan er á engan hátt fjarstæða fyrir honum: „Þegar
hinn trúaði hefur trú, verður fjarstæðan ekki fjarstæða — trúin um-
breytir henni, en á sínum veiklyndu stundum breytist hún að ein-
hverju leyti í fjarstæðu fyrir honum aftur. Ástríða trúarinnar er það
eina sem drottnar yfir fjarstæðunni — ef ekki, þá er trúin ekki trú í
strangasta skilningi, heldur einhver tegund þekkingar."55
Þegar allt er tekið saman sjáum við að það eru nokkur mikilvæg
atriði í þeim drögum og brotum sem Kierkegaard ætlaði að birta
sem opið svar við gagnrýni Magnúsar Eiríkssonar, ekki aðeins
varðandi skilninginn á „fjarstæðunni“ og „þverstæðunni" heldur
einnig varðandi þá mismunandi sjónarhóla og afstöðu sem birtast
hjá Johannesi de silentio og Johannesi Climacus, að því leyti sem
bæði dulnefnin standa utan trúarinnar. Með þeirri ákvörðun sinni
52 Kierkegaard 1968-1978 (Pap. X-6 B 80): 87.
53 Kierkegaard 1968-1978 (Pap. X-6 B 78): 84. Umþetta sjáSchreiber2013: 27-37.
54 Kierkegaard 1968-1978 (Pap. X-6 B 79): 85.
55 Kierkegaard 1968-1978 (Pap. X-6 B 79): 85.