Skírnir - 01.04.2014, Page 176
174
EIRÍKUR BERGMANN
SKÍRNIR
ferðum hafa þeir ekki lengur getað beitt gegn bandalagsríkjum
sínum á Vesturlöndum. En einmitt í því, að þeir töldu sér það fært
gagnvart Islandi, sýnir kannski einna best stöðu okkar í fjármála-
kreppunni, að við höfðum lent utan hins sameiginlega efnahags-
varnarkerfis Evrópu — sem birtist í því að Bretar töldu sér fært að
beita ísland því sem einkum má líkja við efnahagslega hernaðar-
aðgerð. Beiting hryðjuverkalaganna gagnvart íslandi, samstarfsríki
í NATO og EES, var í raun efnahagsleg stríðsyfirlýsing Breta á
hendur íslendingum. Merkilegt má telja að þeim aðgerðum hafi ekki
verið veitt meiri andspyrna hér á landi og í alþjóðasamfélaginu en
raun ber vitni.
Atburðir þessir varpa ljósi á þá stöðu að þegar til kastanna kom
raknaði alþjóðakerfið upp, meira að segja reyndist bræðralag þjóða
á Norðurlöndum íslandi ekki það skjól sem margir höfðu ætlað því
að vera við slíkar aðstæður. Alvarlegra var þó að þrátt fyrir virka
þátttöku íslands á alþjóðavettvangi, svo sem í Sameinuðu þjóðun-
um, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Atlantshafsbandalaginu, Evrópu-
ráðinu og inni á Evrópska efnahagssvæðinu, gátu Bretar og Hol-
lendingar þvingað íslendinga til að gangast við ábyrgð á innistæðum
Landsbankans í þessum löndum, sem íslendingar töldu sig þó ekki
eiga að bera. Framan af deilunni var engin hlutlæg úrskurðarleið til-
tæk.
Icesave-deilan er gott dæmi um það hvernig alþjóðakerfið á það
til að lamast í kreppuástandi og víkja fyrir hefðbundnum ríkja-
átökum eins og þeim sem einkenndu diplómatísk samskipti áður en
núverandi alþjóðakerfi var komið á eftir heimsstyrjöldina síðari.
Hér má hins vegar jafnframt sjá að þó að Bretum og Hollendingum
hafi framan af tekist að misnota stöðu sína í alþjóðastofnunum og
gagnvart öðrum ríkjum í deilunni þegar alþjóðakerfið lamaðist, var
það samt sem áður að lokum í gegnum hið evrópska lagakerfi
(EFTA-dómstólinn) að íslendingar losnuðu úr klóm Breta og Hol-
lendinga (EFTA Court 2013). Þegar um hægðist og eiginlegu
kreppuástandi var loks aflétt fékk ísland því aftur skjól af alþjóða-
kerfinu gegn kröfum Breta og Hollendinga.
Hér má einnig nefna að öfugt við spár sem komu fram í krepp-
unni um að ísland yrði einangruð efnahagsleg eyðimörk í áratugi ef