Skírnir - 01.04.2014, Page 189
SKÍRNIR SKIPTIR DÆGURTÓNLIST MÁLI? 187
gagnrýni.3 Árið 1975 mætti Dagblaðið til leiks á dagblaðamark-
aðnum sem hreinræktað popúlískt blað. Meðal áhersluatriða þess
voru poppskrif, sem voru einkum í höndum Ásgeirs Tómassonar
(f. 1954), en þau áttu að ná til almennings með eins vönduðum
skrifum og smekkur almennings leyfði (viðtal við Ásgeir Tómas-
son 2004).
I útjaðri stuðheimsins var þó að finna einstakar hljómsveitir, svo
sem Eik, sem héldu á lofti merkjum framsækinnar tónlistar. Jafn-
framt óx fram vaxandi trúbadúramenning með ríkri félagslegri skír-
skotun, en ólíkindatólið Megas lét ekki binda sig á bás þótt enginn
efaðist um að hann semdi og flytti popptónlist af talsvert meiri list-
rænum metnaði en aðrir. Sá minnihlutahópur sem hlustaði á þessa
tónlist, en þó í enn ríkari mæli á erlenda, framsækna tónlist, vildi
gjarnan fá vettvang til að lesa um og ræða áhugamál sín. I ársbyrjun
1976 fékk þessi hópur slíkan vettvang í poppþættinum Klásúlur í
Þjóðviljanum.
Klásúlur var um það bil tíu manna hópur ungra karla sem flestir
voru í háskólanámi eða að fikra sig áfram á listabrautinni. Hópur-
inn vildi fjalla um íslenskt popp á metnaðarfyllri hátt en þá tíðkaðist.
Fluttar voru fréttir úr íslensku popplífi, en með áherslu á hið nýja
og skapandi og á gagnrýna umfjöllun um hið söluvænna framtak, og
flestar vikur var birt gagnrýni á nýjustu afurðirnar. Þar fengu ýmsar
vinsælar hljómsveitir, svo sem Paradís, allharða útreið en Þokkabót
öllu jákvæðari. Nálgunin var að einhverju leyti sótt til Rolling Stone
og New Musical Express, en einnig til breskra og bandarískra
neðanjarðarblaða og gagnrýni í öðrum listgreinum. Krafan var um
listræna nýsköpun og að menn væru sannir í verkum sínum. Einnig
var áhersla lögð á að íslenskir popparar yrðu að rækta getu sína til
að tjá sig á eigin tungumáli, slíkt væri vænlegt til að skapa persónu-
lega tónlist og forsenda þess að tónlist þeirra ætti erindi á alþjóða-
markað (Magnús Rafnsson 1976). Spilverk þjóðanna var Klásúlum
mjög að skapi en um leið gagnrýnt harðlega fyrir léttvæga enska
3 Eiríkur Brynjólfsson 1977. Greinin byggði á háskólaritgerð Leifs Haukssonar og
Sigurjóns Sighvatssonar þar sem teknar voru saman tölulegar upplýsingar um ís-
lenska plötuútgáfu 1973-1976.