Skírnir - 01.04.2014, Page 215
SKÍRNIR
ADONIS í BAÐKARINU
213
Samkvæmt öllu þessu höfum við því hér tvær myndir Venusar,
hina mannlegu og hina guðdómlegu. Þær líkjast eins og um tvíbura
væri að ræða. A milli þeirra eru Eros, vatnið og rósablöðin sem
tengjast frekar hinni klæddu Venus, þar sem þau hafa dreifst um
hennar hluta laugarbarmsins. Vatnsþróin gegnir hér lykilhlutverki
sem hreinsandi og göfgandi þáttur er tengir saman nautnina og
dyggðina, hið veraldlega og andlega. Þannig verður myndin lesin
frá vinstri til hægri sem siðferðilega göfgandi ferli. Eros vísar hér
leiðina frá hinni veraldlegu til hinnar guðdómlegu eða andlegu ástar
í gegnum hreinsandi mátt vatnsins. En hvaða merkingu hafa rósa-
blöðin, silfurdiskurinn og skálin sem hin klædda Venus heldur um?
Og rósin sem er vökvuð af vatnsbununni úr þrónni? Hvernig teng-
ist Venus rósinni og rauða litnum sem prýðir aðra ermina og skó
hinnar klæddu Venusar, en slæðu hinnar nöktu? Það er í gegnum
söguna af Venusi og Adonis. Það er í þeirri sögu sem hringurinn fer
að þrengjast í kringum Ragnar og Tizian.
Sagan af Venusi og Adonis er eins og frumgerð allra ástarsagna,
saga um losta, svik, óheftar og andstæðar ástríður, saga um fórnir og
refsingu, dauða, sorg og endurfæðingu. Adonis var eftirlæti allra
guða, fegursta dauðlega sveinbarn sem nokkur gyðja hafði augum
litið. Hann var sonur Myrru, stúlkunnar sem lagði girndarhug á
föður sinn og lá með honum í myrkri nætur á fölskum forsendum.
Þegar faðirinn áttaði sig á blóðskömminni vildi hann drepa hana,
en Seifur kom henni grátandi til bjargar á níunda mánuði flóttans og
breytti henni í tré á meðan tár hennar urðu að trjákvoðu. Þaðan
kemur nafn þessa viðar sem getur af sér þessa trjákvoðu guðanna
sem notuð er í reykelsisfórnir. Adonis fæddist úr trjábol móður
sinnar, skilgetið afkvæmi hins jarðneska og syndarinnar í senn, og
varð þegar eftirlæti gyðjanna. (Rétt er að hafa í huga að fyrir Grikkj-
um var hugtakið synd ekki til í kristinni merkingu sem gjaldmiðill
fyrir endurlausn í gegnum fórnardauða Krists, heldur einungis sem
það ófyrirgefanlega brot á lögmálum náttúrunnar sem til dæmis
sifjaspell fela í sér). Adonis var jafnframt fegursti sveinn allra tíma.
Hann er jafnan sýndur fínlegur í vexti og með kvenlega drætti í
limaburði sínum, og Venus lagði strax til hans girndarhug eftir að
Eros hafði í ógáti hruflað hana með einum af örvaroddum sínum.