Ljósmæðrablaðið - 01.07.2011, Blaðsíða 41
41júlí 2011 • Ljósmæðrablaðið
kom upp. Þeim var sumum eðlilegt að ljúga
og svíkja. Þessir menn einangruðu konuna
frá vinum og fjölskyldu og fylgdust stöðugt
með hvað hún var að gera og konan þurfti
stöðugt að gera grein fyrir gerðum sínum.
Þeim fannst fjölskylda konunnar stjórnsöm
og frek og reyndu gjarnan að eyðileggja
samband kvennanna við foreldra sína.
Margar konurnar voru miður sín yfir fram-
komu mannanna við foreldra þeirra. Inga
lýsir þessu með eftirfarandi hætti: „Sko hann
setti ekki bara út á mig þú veist heldur bara
alla fjölskylduna, það var svona eins og það
væri svona „ missionin” hjá honum að fá mig
upp á móti þeim”. Undir þetta tekur Dísa og
segir að hann hafi alltaf verið vondur við
foreldra hennar: „Það eina sem mér fannst
svo agalegt, hann var svo vondur við pabba
og mömmu“. Nanna tekur undir með Ingu
og Dísu og segir: „Smám saman einangrar
hann mig frá vinum og vandamönnum og er
með mér bara alltaf og alltaf að passa mig.
Og staðan var orðin þannig að ég hafði ekki
verið í sambandi við fjölskylduna mína í tvö
ár. Ég var svona í hálfgerðri prísund”.
ekki tala um mál sem skiptu fjölskylduna
máli og sýndu barni/börnum engan áhuga
heldur jafnvel ofbeldi. Allt var slétt og fellt á
yfirborðinu, þeir viðhöfðu fagurgala og áttu
auðvelt með að tala og fá fólk til að trúa sér.
Margir eru þeir sjarmerandi og sakleysislegir.
Þeir töluðu gjarnan fyrir konu sína. Margir
voru orðljótir og afbrýðisamir á heimilinu.
Mennirnir sýndu ógnandi hegðun, skemmdu
eigur fjölskyldunnar og brugðust harkalega
við smámunum. Tveir voru árásargjarnir og
alltaf til í slagsmál, voru stöðugt að bregða
fyrir konu sína fæti og hrinda þeim til þannig
að þær lentu á einhverju sem gaf mar. Þeir
settu mikið út á konuna, útlit hennar og
klæðnað, hvernig hún ól upp börnin og
gerði hlutina, alltaf eitthvað sem var ekki
rétt. Sumir voru með ofbeldislöngun og
niðurlægingarþörf.
Nokkrir mannanna höfðu alist upp í fjöl-
skyldum þar sem mikið ofbeldi var og áttu
föður sem beitti móður þeirra ofbeldi. Í fjöl-
skyldum þeirra virtist hafa verið mikið um
rifrildi og eðlilegt virtist þykja að tala ekki við
fjölskyldu sína í einhvern tíma eftir að ósætti
alltaf með marbletti á upphandleggjum og á
fótleggjum.“
Það sem virtist einkenna þessa menn var
skapvonska, það var ekkert að hjá þeim, allt
var konunni að kenna. Þeir virtust ekki vera
í sambandi við eigin tilfinningar og tengsl
þeirra við konurnar voru kvíðakennd. Þeir
settu mikið út á útlit konunnar og sýndu
henni lítilsvirðingu, töluðu niður til hennar
og vógu að henni sem móður og sem mann-
eskju. Konurnar fengu enga hjálp hjá mann-
inum með heimilið eða börnin. Þeir höfðu
ekki skilning á tilfinningum og þörfum
konunnar og gátu ekki sett sig í hennar
spor. Linda sagði:„Hann sagði að ég væri
ómöguleg og þarna já og glötuð og feit og
þyrfti að fara í megrun … þetta gekk svona
út á hvernig ég væri og gerði ekkert rétt...
Það gekk út á þetta … en aftur á móti hann
var alveg alveg fullkominn”. Hún bætir við:
„(þögn) þetta var alveg ótrúlegt að búa
svona, að maður skyldi hafa haldið þetta út
sko, en sem betur fer voru þetta bara fjögur
ár“ (grætur).
Mennirnir gáfu ekkert af sér og vildu
Tilbúin
nöfn
Aldur
manna
Menntunarstig
manna
Atvinna manna Fíkn Stjórn-
semi
Sjálfs-
álit
Sjálfsmorð-
hótun/tilraun
Lýsing á
ofbeldinu
Andri 20-25 Háskóli Viðskipti Á 5 5 Nei L/K/A/F
Bragi 35-40 Iðnskóli Iðn Á 4 5 Nei A/F
Einar < 20 Grunnskóli Verkamaður Nei 4 5 Nei A/L
Finnur 20-25 Grunnskóli Verkamaður Á/F 5 5 Já A/L/K/F
Garðar 25-30 Háskóli Stjórnun Á 4 4 Já A/L
Heiðar < 20 Grunnskóli Verkamaður Á/F 5 5 Nei A/L/K/F
Ingvar 25-30 Háskóli Viðskipti Á/F 5 5 Já A/L/K/F
Karl 20-25 Háskóli Viðskipti Á 4 5 Nei A/L/F
Leifur < 20 Grunnskóli Verkamaður Á/F 3 -4 Já A/L/K
Magnús 20-25 Grunnskóli Verkamaður F 2 -4 Já A/L/K
Ragnar 25-30 Menntaskóli Nemi Nei 5 -4 Nei A/K
Þór 20-25 Grunnskóli Verkam/nemi Á/F 5 4 Já A/L/K/F
Andlegt ofbeldi Andlegt ofbeldi felur í sér niðurlægjandi hegðun sem hefur það að markmiði að ná stjórn eða valdi á maka eða leiðir til slíkra
yfirráða. Andlegt ofbeldi getur birst í mörgum myndum svo sem niðurlægjandi athugasemdum, ógnunum, hótunum, því að skemma
hluti sem konunni finnst vænt um og eftirliti sem felst í því að konan þarf stöðugt að gera grein fyrir ferðum sínum og gerðum.
Andlegu ofbeldi fylgir yfirleitt afneitun ofbeldis, þvinganir, einangrun og fleira. Þetta er hegðun sem leiðir til ofríkis þess sem henni
beitir eða styrkir slíka hegðun.
Líkamlegt ofbeldi Líkamlegt ofbeldi kemur oft í kjölfar andlegs ofbeldi. Það kemur fram í mörgum myndum eins og: Konan er hrist, lamin, kýld, klóruð,
brennd, rasskellt, tekin kverkataki, svelt, bundin, stungin, heitu vatni hellt á hana, barin með hlutum, hlutum hent í hana, henni hrint
og hent til. Oft gætir ofbeldismaðurinn þess að merki líkamlegs ofbeldis dyljist undir fötum konunnar en oft vill hann líka að þau
sjáist þannig að konan fari ekkert út.
Kynferðislegt ofbeldi Kynferðislegt ofbeldi kemur meðal annars fram í að kona er þvinguð til kynlífsathafna sem hún er mótfallin eða kynferðislegum
svívirðingum. Maðurinn þvingar hana til að horfa á klámmyndir og skoða klámblöð, nauðgar henni eða hótar nauðgun, hótar smitun
kynsjúkdóma, þvingar í vændi eða hindrar brjóstagjöf.
Fjárhagslegt ofbeldi Meðal þess sem fellur undir fjárhagslegt ofbeldi er takmörkun aðgangs að peningum. Maki skammtar konunni peninga sem duga
vart fyrir nauðsynjum, konan verður að gera grein fyrir hverri krónu, maki heldur stöðu fjármála leyndri fyrir konunni, kemur í veg
fyrir að hún vinni sér fyrir launum eða ráðstafar launum hennar, tekur af henni alla peninga svo sem arf eða innistæðu í bankabók,
ráðstafar einn sameiginlegum peningum þeirra o.fl.
Tafla 3. Yfirlit yfir ofbeldismennina
Skýringar:
Atvinna. Nokkrir mennirnir voru sífellt að skipta um vinnu og atvinnulausir þess á milli.
Fíkn (þ.e. áfengis- (Á) eða fíkniefnavandamál (F).
Stjórnsemi. Mjög mikil =5, Mikil=4, Hvorki mikil né lítil=2, Lítil=1, Engin=0. Meðaltal: 4.25.
Sjálfsálit mannsins. Mjög mikið=5, Mikið=4, Hvorki mikið né lítið=0, Lítið= -4, Mjög lítið= - 5.
Lýsing á ofbeldinu, A=Andlegt ofbeldi, L=Líkamlegt ofbeldi, F=Fjárhagslegt ofbeldi og K=Kynferðislegt ofbeldi. Allir notuðu fleiri en eina
tegund ofbeldis.
Enginn hafði verið formlega greindur með geðveiki á meðan konan bjó með manninum, tveir síðar. Enginn hafði verið formlega greindur með
þunglyndi. Fjórir af mönnunum bjuggu sjálfir við heimilisofbeldi í æsku og einn var mikið ofverndaður og alltaf hans máli tekið.