Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 50
H e i m i r Pá l s s o n
50 TMM 2013 · 2
Skovdyr, Smådyr, Rådyr“ eða Luxor, Dendeia, Sakkara, – etc. Bótin er að hátturinn
er laus og honum má á ýmsan hátt snúa, og nákvæma þýðing er ekki um að tala. –
Jæja, við sjáum nú til – ég hef ekki annað að gera, sinfellingurinn, en að reyna, og
gefist ég upp, fer það okkar á milli. (Sama heimild, sama stað).
Reyndar er gaman að velta fyrir sér hvort lýsing Matthíasar og rímlistar-
manér Ibsens hitti ekki hann sjálfan fyrir. Því rímlist Matthíasar leiddi hann
stundum í ógöngur, jafnvel í „Lofsöngnum“ sem gerður var að þjóðsöng.
Þýðinguna sendir Matthías með bréfi 7. október 1914 og lætur fylgja í
bréfinu þessa umsögn:
Og þá sendi ég þér Ballónubréf Ibsens. Þýðingin er tilraun, því bréfið er óþýðanlegt
á vort mál. Þó má seinni og langbezti kaflinn vera, því þar er Ibsen alskapaður.
En ferðasaga Ibsens er hálfvegis rugl, sem honum hefur orðið torvelt að komast
frá, og má það lesa milli línanna. (hann hefði aðallega átt að láta duga söguna um
herferðina, því hún er skást sögð.) En lestur Ibsens yfir Prússum og militarismanum
er monumental. (Sama rit bls. 52).
Þótt tilefni kvæðisins hafi verið annað er naumast nokkur vafi á að fyrri
heimsstyrjöldin er þeim vinunum, Guðmundi og Matthíasi, ofarlega í huga,
og það eru þessar línur sem Matthíasi þykja monumentalar:
Vopnasigur sáttum eyðir,
sverðið Prússa slær og deyðir.
Aldrei sprettur andans lyfting
upp úr reiknings brotaskipting.
Enginn listaróður fæðist;
ef, þá frelsisloginn glæðist
vakna fegurð, von og þrá,
öllu er breytt í hundvís hylki
harðstjórans í hverju fylki,
eins og Moltke úr orra-óði
arnsúg skáldsins kæfði í blóði.
(Ljóðmæli II 1958:447).
Á frumtungunni hljóðar þetta svo:
Just i sejren bor forliset
Preussens sværd blir Preusser-riset.
Aldrig svulmer der en løftning
af et regnestykkes drøftning.
Intet dåds-digt blir at tolke
fra den stund af, da en folke-
rejsning, skønheds-fyldt og fri,
blev et stabs-maskineri,
spækket ud med kløgtens dolke,
fra den stund da herr von Moltke
myrded kampens poesi.