Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Side 72

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Side 72
Á r n i B e r g m a n n 72 TMM 2013 · 2 Draumaland rithöfundar Sovétríkin urðu miðstöð pólitískrar staðleysutrúar á fjórða áratug fyrri aldar eins og allir vita: trúin á þeirra kommúnisma var trú á framtíð mann- kynsins, sagði Halldór Laxness. En Rússland var hér ekki í fyrsta sinn lent í keimlíku hlutverki í Evrópu eða heiminum.7 Um aldir var Rússland nógu nálægt Vesturlöndum og um leið nógu fjarlægt, risastórt og leyndardóms- fullt land, til að freista allskonar hugsjónamanna og umbótasinna til að finna áformum sínum og draumum stað einmitt þar. Það var kannski betra að landið væri vanþróað og flest þar ógert – þeim mun auðveldara að byrja þar alla hluti upp á nýtt! Auðvelt er að finna fræg dæmi um þessa hneigð. Sá ágæti bjartsýnisheimspekingur Leibniz vonaðist til þess að Pétur mikli leyfði honum að breyta Rússlandi í tilraunastofu með hugmyndir sínar um fyrirmyndarþjóðfélag. Höfðingjar frönsku upplýsingarinnar, Voltaire og Diderot, vildu trúa því að Katrín mikla keisarafrú mundi gera að veruleika hugmyndir þeirra um upplýst einveldi. Og svo mætti áfram telja allt fram á tíma Stalíns og Halldórs Laxness og trúar á rússneskan kommúnisma. En Rússland er að sönnu mikið land og þar er ekki aðeins pláss fyrir pólitískar útópíur sem rætast skyldu í Ríki Verkalýðsins. Í Gerska ævintýrinu eru draumar Halldórs Laxness um gott líf allra manna ekki aðeins tengdar pólitískri byltingu og áætlanabúskap – heldur einnig skáldskaparstaðleysu sem svo mætti kalla. Í riti sínu lýsir Halldór Sovét-Rússlandi ekki síst sem draumalandi rithöfundar – því hann telur að einmitt þar sé að rætast gamall skáldadraumur um djúptæk áhrif bókmennta á hugarfar og samskipti fólks, á þroska persónuleikans og heilla samfélaga. Það blasir við þeim sem les Gerska ævintýrið að Halldór Laxness er hrifnastur af árangri almennrar menningarbyltingar í Sovétríkjunum, einkum af öllu sem varðar útbreiðslu bókmennta. Hann skrifar: „Miljónir fólks, sem hafði ekki einusinni dreymt um að læra að lesa var altíeinu farið að næra sál sína af hinum ódauðlegu verkum meistaranna – einnig það var ekki hvað síst byltíngin í Rússlandi.“8 Rússland er orðið fyrirheitna landið einmitt vegna þess að þar er mikið lesið. Halldór gerir ítarlega grein fyrir mikilli bókaútgáfu og furðuháum upplögum bóka: á hundrað ára ártíð þjóðskáldsins Púshkíns koma verk hans út í tólf miljónum eintaka. Frægasta skáldsaga nýrra sovétbókmennta, Lygn streymir Don eftir Sholokhov, kemur út í tveim miljónum. Bækur kosta lítið og eru rifnar út. Halldór gleðst yfir því að duttlungar markaðslögmála standi ekki menningarlífi fyrir þrifum og leggur áherslu á það að þeir sem við sköpun fást, hvort heldur er á sviði bókmennta, leikhúss eða tónlistar, þurfi aldrei að hafa áhyggjur af því hvað hlutirnir kosta eða hvort útgjöldin réttlæta sig í bókhaldi. Staðleysutrú skáldsins tekst á loft fyrir sakir trúar hans á það, að sovésk menningarstefna tryggi mikla og eðlilega en um leið undursamlega eftirspurn eftir skáldskap, nýjum og sígildum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.