Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 86
M a g n ú s B j a r n a s o n 86 TMM 2013 · 2 lyfjum og vopnum. Virðisaukaskattur hefur ekki verið að fullu samræmdur innan ESB, en hluti hans rennur beint í sjóði ESB. Tollskrár ESB og Íslands eru ekki eins, en sjaldan er munurinn meiri en nokkrir prósentupunktar upp eða niður eftir því hvaða vörur eiga í hlut – nema tollar á landbúnaðarafurðum (sjá umfjöllun um landbúnað hér á eftir). Sumar iðnaðarvörur munu væntanlega hækka eða lækka í verði um nokkur prósent við inngöngu í ESB. Á heildina litið er þó ekki að vænta mikilla breytinga á verði vöru sem kemur frá löndum utan ESB, öðrum en land- búnaðarvörum. Hins vegar mun aðild að tollabandalagi Evrópu bæta sam- keppni og þannig lækka verð til neytenda. Ef íslenskur neytandi er óánægður með verð innflytjanda hérlendis getur hann einfaldlega sjálfur pantað hvaða vöru sem er innan ESB, þaðan sem hún er ódýrust, án nokkurra formsatriða, (að undanskildu áfengi og tóbaki sem almennt er ekki selt í póstverslun). Það að ekki þarf að tollafgreiða vörur innan ESB gerir fyrirtækjum auðveldara fyrir, bæði í inn- og útflutningi, þar sem fé og fyrirhöfn mun sparast á hafnarbakkanum hérlendis og í Evrópu. Rétt er að benda á að við ESB-aðild gæti þurft að endurskoða að einhverju leyti íslenskar reglur um vörugjöld, ella gæti framkvæmdin orðið erfið varðandi sumar vörur. Auðvelt er t.d. að innheimta vörugjald af bifreið við skráningu, en vörur sem seldar eru án eigendaskráningar á frjálsum markaði er erfitt að skattleggja þar sem tollskýrslur og tolleftirlit við innflutning falla niður. Ef vörugjöld t.d. af sumum rafmagnstækjum yrðu felld niður er ljóst að ríkissjóður yrði að auka skattheimtu á öðrum sviðum til að vega upp á móti tekjutapinu. Slíkt mundi því varla þýða sparnað fyrir heimili og tap hjá ríkissjóði, heldur frekar að breytingar yrðu gerðar á skattstofnum ríkisins. Eins og nefnt var hér áðan, eru skattamál enn ekki samræmd innan ESB, þótt það væri að mörgu leyti æskilegt. Í Cecchini-skýrslunni frá 1988 um áhrif innri markaðar ESB var bent á að beinn og óbeinn kostnaður af tollum geti aukið kostnað sumra fyrirtækja í inn- og útflutningi sem svarar 25% af hagnaði. Cecchini og félagar (1988) töldu að sameiginlegur markaður Evrópu mundi auka framleiðni ESB um 2,5–6,5%, en Richard Baldwin (1989) benti á að líklega væri hagnaðurinn til langframa meiri en Cecchini áætlaði upphaflega. Hér er rétt að benda á að stærsti hluti þessa efnahagssparnaðar varð á Íslandi við EES-aðildina. Engu að síður, þótt tollar hafi verið afnumdir af EES-iðnaðarvörum er skrif- finnskan við tollskýrslur og tollskoðun af öðrum vörum sem koma í gegnum Evrópu enn þröskuldur í vegi frjálsrar verslunar. Það er erfitt að meta þann kostnað nákvæmlega, en benda má á að margir hafa tilhneigingu til að kaupa vörur á Íslandi þótt þær kunni að vera ódýrari á meginlandi Evrópu, einmitt til að þurfa ekki að eyða tíma og fyrirhöfn í pappírsvinnu innflytjanda. Aðild að tollabandalaginu mun ekki hafa mikil áhrif á verð iðnaðarvara, en tollabandalagið mun hins vegar hafa umtalsverð áhrif á verð landbún- aðarafurða, sem ekki falla undir fríverslunarákvæði EES.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.