Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 97
Á h r i f E S B -a ð i l d a r á í s l e n s k h e i m i l i TMM 2013 · 2 97 Tilvísanir 1 Doktorsritgerð greinarhöfundar um áhrif ESB-aðildar á Ísland (The Political Economy of Joining the European Union, Iceland’s Position at the Beginning of the 21st Century), útgefin af Amsterdam University Press, má lesa á http://dare.uva.nl/en/record/349694. Doktorsritgerðin er á ensku. Sérstaklega er þeim sem vilja skoða áhrif ESB-aðildar á Ísland í smáatriðum bent á heimildaskrá doktorsritgerðarinnar. 2 Sviss er í EFTA en ekki í EES eða ESB. Sviss hefur engu að síður sérstaka samninga um sam- vinnu við ESB sem almennt standa utangarðsríkjum ekki til boða. Sviss hefur þá sérstöðu að vera umlukið ESB-löndum án þess að vera í ESB. 3 Erfitt er að bera Ísland saman við Noreg undir núverandi kringumstæðum, þrátt fyrir skyld- leika þjóðanna, enda Norðmenn meðal stærstu olíuútflytjenda heims og framleiða 2 milljónir tunna af olíu á dag meðan Íslendingar hafa enga olíuframleiðslu. Það er því að mörgu leyti raunhæfara að bera Ísland saman við Danmörku, Finnland og Svíþjóð, heldur en Noreg. 4 Samningskaflarnir í aðildarviðræðum Íslands við ESB eru 35 og tengjast margir hverjir hver öðrum beint eða óbeint. Ísland uppfyllir nú þegar mörg atriði gegnum EES-aðildina, en ekki öll. Samningskaflarnir eru: frjálsir vöruflutningar, frjáls för vinnuafls, staðfesturéttur og þjónustufrelsi, frjálsir fjármagnsflutningar, opinber innkaup, félagaréttur, hugverkaréttur, samkeppnismál, fjármálaþjónusta, upplýsingasamfélagið og fjölmiðlar, landbúnaður og dreif- býlisþróun, matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði, sjávarútvegur, f lutningastarfsemi, orkumál, skattamál, efnahags- og peningamál, hagtölur, félags- og vinnumál, fyrirtækja- og iðnstefna, samevrópsk net, byggðastefna og samræming uppbyggingarsjóða, réttarvarsla og grundvallarréttindi, dóms- og innanríkismál, vísindi og rannsóknir, menntun og menning, umhverfismál, neytenda- og heilsuvernd, tollabandalag, utanríkistengsl, utanríkis-, öryggis- og varnarmál, fjárhagslegt eftirlit, framlagsmál, stofnanir, önnur mál. Sjá nánar á http://www. vidraedur.is/vidraedurnar/samningskaflar/. 5 Landbúnaðarmál eru greind ítarlega í 6. kafla bókarinnar The Political Economy of Joining the European Union, Iceland’s Position at the Beginning of the 21st Century. 6 Skv. Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD). Fyrir nokkrum árum var þetta hlutfall hærra, bæði hjá ESB og á Íslandi. 7 Sjá t.d. The Political Economy of Joining the European Union og L’Agriculture européenne, Enjeux et options a l’horizon 2000. Hér er ekki við bændur að sakast, sem margir vinna 7 daga vikunnar, heldur starfsumhverfið sem margir þeirra þurfa að búa við. Í sumum Evrópulöndum eru þeir kallaðir „sófamjólkarar“ sem eiga mjólkurkvóta en engar kýr, þiggja styrki og leigja út kvótann sem kerfið gaf þeim. 8 Skv. nýlegum rannsóknum Hagstofu Evrópu (Eurostat uppl. í október 2012, m.v. tölur frá 2010) fer verðmunur á matvælum innan ESB stöðugt minnkandi, en það er þó langt í að hann sé sá sami. Það er í samræmi við að áhrif innri markaðarins koma hægt og sígandi en ekki á einu bretti. 9 Tölur frá 2006, birtar af Hagstofunni 2009. 10 Hægt verður að nálgast tölurnar fyrir 2012 þegar þar að kemur á http://hagstofan.is/Hagtolur/Verdlag-og-neysla/Althjodlegur-verdsamanburdur Samanburðartölur Hagstofu Íslands verða byggðar á tölum frá Hagstofu Evrópu (Eurostat). 11 Hagstofa Evrópu (Eurostat). 12 Það er ekkert sem „bannar“ íslenskum yfirvöldum að taka landbúnaðarkerfið til gagngerrar endurskoðunar án tilkomu ESB. Svíar gerðu það árið 1990 en neyddust til að fara aftur út í styrkjakerfi við ESB-aðild sína 1995. Einnig hafa t.d. Nýsjálendingar afnumið flesta landbún- aðarstyrki, en þrátt fyrir það er nýsjálenskt lambakjöt selt á samkeppnishæfu verði innan ESB – og þrátt fyrir styrkjakerfi ESB. Styrkir eru engin trygging fyrir ódýru og stöðugu framboði, sbr. smjörskortinn í Noregi 2011. Skynsamlegir styrkir geta haft góð áhrif, sbr. t.d. aðgerðir í Bandaríkjunum í kreppunni miklu 1930, en rangir styrkir eru verri en ekkert því þeir skatt- leggja arðbæra framleiðslu til að styrkja það sem fáir eða engir vilja. 13 Formlegu skilyrðin fyrir upptöku evrunnar eru: (1) Verðlag þarf að hafa verið stöðugt. Verð- bólga árið fyrir upptöku evru má ekki hafa verið meiri en 1,5% hærri en í þeim þremur ríkjum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.