Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Qupperneq 124

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Qupperneq 124
Ö r n D a n í e l J ó n s s o n 124 TMM 2013 · 2 að geta lifað lífinu óáreittur en sótt í félagsskap þegar mönnum býður svo við að horfa. Henri Lefebvre bendir á að mikilvægi hverfisins vegi upp á móti þeirri mótsagnakenndu staðreynd að mannmergð geti leitt til einangrunar. Lausn vandans felst í endurtekningunni; þegar sama fólkið hittist reglulega myndar það samkennd og þar með taktfestu daglegs lífs.25 Sundnám var skylda en námið einskorðaðist ekki við auðlærð sundtökin. Sundlaugin var vettvangur þar sem börnum var kennd kurteisi, að umgangast hvert annað sem jafningja í öguðum leik. Þar átti sér stað áralöng félags- mótun þar sem áhersla var lögð á hreinlæti og umburðarlyndi.26 Reglan um að fötin skapi manninnn var numin úr gildi hér. Laugarnar voru almannavettvangur og þar var markvisst dregið úr stöðumun manna. Fljótlega fóru þó að myndast hópar sem hittust nokkuð reglulega og þar gegnir heiti potturinn lykilhlutverki. Heiti potturinn Þetta er bara pottur. Hér sýð ég af mér spikið 27 Gísli Halldórsson arkitekt sem hannaði setlaugarnar við Vesturbæjarlaugina árið 1961 hafði Snorralaug að fyrirmynd. Hluti náms hans við arkitekta- skólann í Kaupmannahöfn var hönnun með hliðsjón af miðaldamannvirki og ákvað hann að velja Snorralaug. „Nú fékk ég þá hugmynd að notfæra mér þessa gömlu hugmynd Snorra Sturlusonar og færa hana til nútímans.“28 Annað atriði sem hafði áhrif á smíði sundlauganna var aðdráttarafl heita vatnsins á baðstöðum. „Það voru tvær sturtur í gömlu lauginni, þar sem ég hafði farið daglega, og þær stóðu í ferköntuðum pottum. Annar var með metraháu vatni og hinn þurr. Ég hafði tekið eftir því að fólk sóttist alltaf eftir því að fara þar sem það gat staðið í vatninu.“29 Í pottinum situr fólk þétt saman en þarf þó ekki að eiga samskipti og fær rými til að halda sér utan hópsins jafnvel þó takmarkað sé.30 Fjölmörg dæmi eru um að pottgestir hafi komið nánast daglega og setið þar án þess að yrða á nokkurn mann. Heiti potturinn er opinber vettvangur rétt eins og sundlaugin. Nýir gestir átta sig fljótt á reglunum. Það má ekki spyrja persónulegra spurninga og samtöl við útlendinga ná yfirleitt ekki lengra en að spurningunni: ,,How do you like Iceland?“ Það kemur fljótlega í ljós ef reglur eru brotnar.31 Potturinn er heimur hlutverkaleiks og gestir geta þóst vera aðrir innan laugar en utan, en þó aðeins að vissu marki. Aftur á móti má ekki trufla þekkta einstaklinga, stjórnmálamenn eða poppara, svo dæmi sé tekið. 32 Að láta aðra í friði er almennt einkenni borgarlífs. Á kaffihúsi getur gestur gefið skýrt í skyn að hann vilji ekki vera truflaður; aftur á móti er líklegt að sá sem fer að venja komur sínar á stað sé spurður nokkuð persónulegra spurninga, t.d. hver hann sé og hvað hann geri. Sérstaða heita pottsins er
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.