Skessuhorn - 16.12.2015, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 20152
Synir Grýlu og Leppalúða eru farnir að ráfa
til byggða hver á fætur öðrum. Fyrir löngu
hafa þeir látið af villu síns vegar og eru
hættir að ræna, rupla og hrella landsmenn,
foreldrum sínum til nokkurrar mæðu. Í stað-
inn lauma þeir glaðningi í skó barna sem
haga sér vel, en þeim sem óþekk hafa ver-
ið gefa þeir kartöflur. Börn sem vilja rausn-
arlegri glaðning í skóinn en ósoðin jarðepli
eru því minnt á að sýna af sér góða hegðun
í aðdraganda jólanna.
Spáð er hvassviðri á morgun, fimmtudag,
15-23 m/s, hvassast Norðvestanlands. Snjó-
koma um landið norðanvert. Frost 0 til 4
stig, talsverð slydda eða snjókoma austan-
lands, en rigning syðra og hiti 0 til 4 stig.
Norðaustan 10-15 m/s og snjókoma eða él
á föstudag. Hægari og úrkomulítið suðvest-
an til. Kólnandi veður. Austan- og norðaust-
anátt, 10-18 m/s á laugardag. Snjókoma um
landið norðanvert, en rigning eða slydda
á Suðurlandi. Frost 0 til 5 stig en frostlaust
sunnan til. Ákveðin norðaustanátt á sunnu-
dag. Snjókoma austanlands en þurrt suð-
vestan til. Annars él. Frost 0 til 5 stig en sums
staðar frostlaust við ströndina. Útlit er fyrir
austlæga átt með snjókomu eða slyddu á
mánudag en lengst af úrkomulítið um land-
ið norðaustanvert.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Varðst þú fyrir eignatjóni í óveðrinu sem
gekk yfir landið í síðustu viku?“ Langflest-
ir, eða 90,81% kváðust ekki hafa orðið fyrir
eignatjóni og næstflestir, 4,99% aðeins fyrir
óverulegu tjóni. „Já, verulegu“ sögðu 1,84%
og jafnmargir sögðust engu hafa tap-
að nema trampólíninu. „Já, nokkru“ sögðu
0,52%.
Í næstu viku er spurt:
Hvað er vinsælasta naslið um hátíðirnar?
Hjónin Theódóra Þorsteinsdóttir og Olgeir
Helgi Ragnarsson, ásamt dætrum sínum
Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu, hafa undan-
farin haldið ókeypis jólatónleika í Borgar-
neskirkju og í ár verður engin breyting þar
á. Eru tónleikar fjölskyldunnar orðinn órjúf-
anlegur þáttur í jólaundirbúningi margra
Borgnesinga og nærsveitunga. Undirleik-
ari hjá þeim er Ingibjörg Þorsteinsdóttir.
Þessi mikla söngfjölskylda eru Vestlending-
ar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Skessuhorn
næstu vikur
VESTURLAND: Athygli er
vakin á að skrifstofa Skessu-
horns verður lokuð mánudag,
þriðjudag og miðvikudag í næstu
viku; 21. til 23. desember. Eftir
frí mætir starfsfólk endurnært til
starfa mánudaginn 28. desember
og kemur út blað miðvikudaginn
30. desember. Fyrsta blað á nýju
ári kemur síðan út miðvikudag-
inn 6. janúar. -mm
Skipaður í
embætti skóg-
ræktarstjóra
LANDIÐ:
Umhverfis-
og auðlind-
aráðherra
hefur skip-
að Þröst
Eys t e in s -
son í emb-
ætti skóg-
ræktarstjóra
til fimm ára. Þröstur hefur frá
árinu 2003 starfað sem sviðs-
stjóri Þjóðskóganna hjá Skóg-
rækt ríkisins. Þröstur var annar
tveggja umsækjenda sem hæfn-
isnefnd mat hæfasta til að gegna
embættinu. Hann lauk doktors-
prófi í skógarauðlindum frá há-
skólanum í Maine í Bandaríkjun-
um og meistaragráðu í skógfræði
frá sama skóla. Áður en hann tók
við stöðu sviðsstjóra Þjóðskóg-
anna starfaði hann sem fagmála-
stjóri Skógræktar ríkisins og þar
á undan sem sérfræðingur hjá
rannsóknarstöð sömu stofnun-
ar sem og héraðsfulltrúi Land-
græðslu ríkisins á Húsavík. Þá
hefur Þröstur skrifað fjölda rit-
rýndra fræðigreina um skógrækt
og gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um á sviði skógræktar. Þröstur er
skipaður í embætti skógræktar-
stjóra frá 1. janúar næstkomandi
og er honum m.a. falið að fylgja
eftir nýlegum tillögum starfshóps
um sameiningu skógræktarstarfs
ríkisins í eina stofnun. –mm
Vetrarferða-
mennskan
VESTURLAND: Lögreglan á
Vesturlandi þurfti í þrígang í lið-
inni viku að ræsa út björgunar-
sveitir og dráttarbíla vegna er-
lendra ferðamanna sem lent
höfðu í vandræðum í snjó og
ófærð. Áttu þeir sammerkt að
vera á illa búnum bílum og að
fara inn á lokaða og ófæra vegi.
-mm
Sendum íbúum Vesturlands,
félagsmönnum, félagasamtökum,
fyrirtækjum og öðrum velunnurum
hugheilar jóla- og nýjárskveðjur
Þökkum gott samstarf og stuðning á árinu
Stjórn Hollvinasamtaka HVE SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Línubáturinn Gullhólmi SH 201 er
loksins kominn heim í Breiðafjörð og
til heimahafnar í Stykkishólmi. Bát-
urinn var afhentur sem nýsmíði til
eiganda sem er sjávarútvegsfyrirtæk-
ið Ágústson ehf. Gullhólmi var smíð-
aður úr trefjaplasti af bátasmiðjunni
Seiglu á Akureyri. Hönnun hans var í
höndum Ráðgarðs skiparáðgjafar.
Báturinn er vel búinn tækjum. Þar
á meðal er beitningarvél frá Mustad.
Aðalvélin er af Yanmar-gerð. Íbúðir
eru um borð fyrir átta menn í fjór-
um tveggja manna klefum. Einnig er
setustofa, borðsalur, eldhús, baðher-
bergi og þvottahús um borð. Fiski-
lestin rúmar 42 kör um borð sem
hvert um sig tekur 660 lítra. Undan-
farið hefur Gullhólmi stundað línu-
veiðar í Breiðafirði og landað afla í
Ólafsvík og Stykkishólmi. Hinn nýi
Gullhólmi leysir af hólmi eldra stál-
skip með sama nafni sem selt var til
Húsavíkur. mþh
Nýi Gullhólmi SH er kominn heim
Gullhólmi við bryggju í Stykkishólmi í liðinni viku. Ljósmynd Gunnlaugur Árnason.
Haustrall Hafrannsóknastofnun-
ar fór fram 7. október – 9. nóvem-
ber. Rannsóknasvæðið var allt um-
hverfis landið og niður á 1500
metra dýpi. Alls var togað með
botnvörpu á 374 stöðum. Helsta
markmið haustrallsins er að styrkja
mat á stofnstærð helstu botnlægra
nytjastofna á Íslandsmiðum með
sérstakri áherslu á djúpkarfa, grá-
lúðu og fleiri djúpsjávarfiska. Auk
þess er markmiðið að fá annað
mat, óháð aflagögnum, á stofn-
stærð þeirra nytjastofna sem stofn-
mæling vorralls nær yfir og safna
upplýsingum um útbreiðslu, líf-
fræði og fæðu tegundanna. Til
rannsóknarinnar var annars veg-
ar notað rannsóknaskip Hafrann-
sóknastofnunar, Árni Friðriksson
RE, og hins vegar leigður togarinn
Jón Vídalín VE.
Niðurstaða haustrallsins er sú að
vísitala þorsks í stofnmælingu að
hausti er sú hæsta síðan mæling-
ar hófust árið 1996. Vísbendingar
eru um að 2014 árgangur þorsks sé
stór og sá stærsti síðan mælingur
hófust árið 1996. Svipað fékkst af
öðrum tegundum í stofnmælingu
að hausti árið 2015 og árið 2014
og eru vísitölur sumra tegunda þær
hæstu frá upphafi rannsóknanna.
Vísbendingar eru um að 2014 og
2015 árgangar ýsu séu yfir meðal-
stærð eftir langvarandi lélega ný-
liðun. Niðurstöður mælinganna
er grunnur að veiðiráðgjöf í júní
2016 og því er vísbending um að
kvótinn verði aukinn á næsta ári.
mm
Þorsk- og ýsustofninn ekki
mælst stærri í tuttugu ár
Heildarvísitala þorsks í vorralli 1985-2015 (heil lína, grátt svæði) og haustralli
1996-2015 (punktar, lóðréttar línur). Graf: Hafró.
Mikill viðbúnaður var settur af stað
í Ólafsvíkurhöfn síðastliðið mánu-
dagskvöld eftir að Grímsnes GK
fékk sprengju í veiðarfærin og kom
að bryggju. Sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar komu vest-
ur og var Norðurgarðinum lokað.
Einnig komu á svæðið sjúkrabíll og
lögreglubílar ásamt slökkviliðinu.
Þegar Grímsnesið kom að landi fór
maður frá Landhelgisgæslunni um
borð með röntgentæki en sprengj-
an reyndist vera æfingasprengja við
athugun. Var hún því fjarlægð úr
bátnum en hún var þriggja tommu
breið og einn og hálfur metri að
lengd. Fluttu sprengjusérfræð-
ingarnir frá Landhelgisgæslunni
sprengjuna suður þar sem henni
verður fargað.
þa
Bátur fékk sprengju í veiðarfærin