Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 110

Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 110
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015110 Hvað finnst þér hátíðlegast við jólin? Spurning vikunnar (Spurt í Borgarnesi) Sigurður Aron Þorsteinsson Kvöldmaturinn, að sitja í fínum fötum og snæða góðan mat. Arna Hrönn Ámundadóttir Hvað það er allt kósý og jólalegt úti og svo þegar maður situr og borðar jólamatinn. Lára Sif Jóhannesdóttir Jólaskrautið og samveran með fjölskyldunni. Arna Jara Jökulsdóttir Skreytingarnar og jólamatur- inn. Andri Hauksson Samverustund með fjölskyld- unni og maturinn. Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir voru í síðustu viku val- in körfuknattleiksmaður og körfu- knattleikskona ársins 2015 af KKÍ. Þetta er í tólfta sinn sem Jón Arn- ór er valinn en Helena hefur nú alls ellefu sinnum í röð orðið fyrir val- inu. Helena er 27 ára gömul og Jón Arnór 33 ára. Körfuknattleikskona og maður ársins 2015 voru valin af stjórn, starfsmönnum, afreksnefnd KKÍ og landsliðþjálfurum yngri landsliða og A-landsliða. Í öðru sæti í valinu á Körfuknatt- leikskonu ársins varð Gunnhildur Gunnarsdóttir í Snæfelli. „Gunn- hildur er orðin ein af burðarásum íslenska liðsins og með óbilandi baráttu og dugnaði er hún liðum sínum mjög mikilvæg. Gunnhild- ur var einn af lykilmönnum Snæ- fells sem tryggði sér Íslandsmeist- aratitilinn í fyrra og var ofarlega á tölfræðilistum deildarinnar á síðast- liðnu ári sem og í ár. Á þessu tíma- bili hefur Gunnhildur verið óhepp- in með meiðsli en leikið mjög vel í þeim leikjum sem hún hefur leik- ið með landsliðinu og Snæfelli það sem af er árinu. Gunnhildur hefur leikið alla landsleiki íslenska liðs- ins frá árinu 2012, eða 19 leiki sam- tals,“ segir í umsögn KKÍ. Í þriðja sæti í varð svo Pálína Gunnlaugs- dóttir í Haukum. Í öðru sæti hjá körlum varð Hörður Axel Vilhjálmsson en Snæ- fellingurinn Hlynur Bæringsson þriðji. Hlynur leikur nú með Sunds- vall Dragons í Svíþjóð. „Hlynur er fyrirliði íslenska karlalandsliðsins og var í lykilhlutverki á Evrópu- mótinu í sumar þar sem hann lék flestar mínútur íslensku leikmann- anna auk þess sem hann tók flest fráköst og stal flestum boltum fyr- ir Ísland. Hlynur var að spila gegn mun hærri mönnum inni í teignum og stóð sig frábærlega gegn mörg- um að sterkustu leikmönnum Evr- ópu á mótinu.“ mm Snæfellingar í hópi besta körfuboltafólksins Gunnhildur Gunnarsdóttir, Snæfelli.Hlynur Bæringsson, Sundsvall Dragons. Síðastliðinn miðvikudag var dreg- ið í átta liða úrslitum Powerade- bikarsins í körfuknattleik. Nöfn þriggja Vesturlandsliða voru í skál- inni frægu og er nú ljóst hverjir andstæðingar þeirra verða. Íslandsmeistarar Snæfells munu heimsækja Val í bikarkeppni kvenna og Skallagrímur mætir Keflavík suður með sjó. Í bikarkeppni karla tekur Skallagrímur á móti Grinda- vík í Borgarnesi. Leikið verður í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins dagana 9.-11. janúar næstkomandi. kgk Dregið í átta liða úrslitum Mikill háspennuleikur var í íþrótta- húsinu við Vesturgötu á Akra- nesi síðastliðinn fimmtudag þeg- ar ÍA tók á móti toppliði Vals í 1. deild karla í körfuknattleik. Skaga- menn hikstuðu aðeins snemma í fyrsta fjórðungi en voru fljótir að koma sér inn í leikinn aftur. Eft- ir það héldust liðin nánast í hend- ur í stigaskorinu og skiptust á um að hafa forystu. Valsmenn höfðu tveggja stiga forystu þegar flaut- að var til leikhlés, 36-38 og allt í járnum. Síðari hálfleikur hófst þar sem sá fyrri endaði, en um miðbik þriðja leikhluta hófu Valsmenn að síga fram úr leikmönnum ÍA. Þeir náðu mest 14 stiga forskoti snemma í lokafjórðungnum og allt útlit var fyrir að leikkaflinn myndi skila þeim sigri. En Skagamenn voru hvergi af baki dottnir, bitu í skjald- arrendur og náðu gestunum. Þeg- ar innan við mínúta lifði leiks var staðan jöfn og Skagamenn lögðu upp í lokasóknina. Leikstjórnand- inn Sean Tate gerði árás á körfuna og uppskar ferð á vítalínuna þeg- ar 3,9 sekúndur voru eftir. Hann hitti úr báðum víta- skotum sínum og fleiri stig voru ekki skoruð í leiknum. ÍA vann því naum- an sigur í spenn- andi leik á Akranesi, 74-72. Fyrrnefndur Sean Tate var stigahæst- ur leikmanna ÍA með 32 stig. Næst komu þjálfararnir tveir; Fannar Freyr Helgason með 15 stig og 13 fráköst og Áskell Jónsson með 14 stig. Með sigr- inum sótti ÍA mik- ilvæg stig í barátt- unni um sæti í úr- slitakeppni 1. deild- arinnar. Liðið er nú í 6. sæti deildarinn- ar með átta stig eftir sjö leiki. Næst leika Skagamenn úti gegn Ármanni föstudag- inn 18. desember. kgk/ Ljósm. jho. ÍA lagði topplið Vals í æsispennandi leik Fannar Freyr Helgason í baráttu í teignum þegar Skagamenn unnu nauman sigur á Val. Karlalið Snæfells í körfuknattleik varð fyrir blóðtöku í vikunni þegar tilkynnt var að miðherjinn reyndi Sigurður Á Þorvaldsson yrði fjarri góðu gamni að minnsta kosti til ára- móta. Hann hefur undanfarna tvo mánuði glímt við kálfameiðsli og nú hefur sjúkraþjálfari liðsins sett Sigurði stólinn fyrir dyrnar. Hann skal hvíla fram yfir áramót svo hann megi jafna sig að fullu. Lið Snæfells var nokkuð vængbrotið þegar það heimsótti Stjörnuna á fimmtudags- kvöldið, því auk Sigurðar var Óli Ragnar Alexandersson fjarverandi vegna meiðsla. Skemmst er frá því að segja að Stjarnan réði lögum og lofum á vellinum frá fyrstu mínútu og lið Snæfells má illa við því að missa tvo byrjunarliðsmenn í meiðsli. Stjarn- an stakk af snemma leiks, leiddi með 28 stigum í hálfleik og úrslitin svo gott sem ráðin. Þeir bættu lítil- lega við forskotið út síðari hálfleik- inn og unnu að lokum öruggan 36 stiga sigur, 103-73. Sherrod Wright var atkvæða- mestur Snæfellinga í leiknum með 28 stig og þurfti að hafa mikið fyr- ir þeim öllum. Hann tók auk þess ellefu fráköst. Austin Bracey kom honum næstur með 16 stig. Þá skoraði aldursforseti Íslandsmóts- ins, Baldur Þorleifsson 49 ára gam- all, sín fyrstu stig í vetur af vítalín- unni. Snæfell er í 10. sæti deildarinnar með átta stig eftir tíu leiki, fjórum stigum frá fallsæti. Í næsta leik taka þeir á móti Þór frá Þorlákshöfn að kvöldi fimmtudagsins 17. desemb- er. kgk Vængbrotið lið Snæfells tapaði stórt gegn Stjörnunni Aldursforseti Íslandsmótsins, Baldur Þorleifsson, skoraði sín fyrstu stig í vetur af vítalínunni þegar Snæfell tapaði stórt fyrir Stjörnunni. Ljósm. Snæfell. Síðastliðinn föstudag mætt- ust Skallagrímur og Breiðablik í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Smáranum í Kópa- vogi. Jafnt var á með liðunum all- an fyrri hálfleikinn. Leikmenn Skallagríms voru þó ögn sterkari en forskot þeirra í hálfleik var að- eins tvö stig, 44-46. Í síðari hálf- leik hertu Skallagrímsmenn held- ur tök sín á leiknum og voru lík- legri til afreka við upphaf loka- fjórðungsins. En heimamenn í Breiðabliki tóku á sig rögg, komu sér snarlega inn í leikinn aftur og náðu meira að segja að stela for- ystunni seint í leiknum. Það varði hins vegar ekki lengi því leikmenn Skallagríms endurheimtu forskot sitt skömmu síðar og unnu að lok- um tveggja stiga sigur í jöfnum leik, 79-81. Leikstjórnandinn Sigtrygg- ur Arnar Björnsson lék stórvel fyrir Skallagrím og litlu munaði að hann næði þrennu í leiknum. Hann skilaði 23 stigum, tíu stoð- sendingum og átta fráköstum. Næstur honum kom J.R. Cadot með 20 stig og 19 fráköst. Skallagrímur situr eftir leikinn í fjórða sæti deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki. Næst mætir lið- ið Hamri í Hveragerði föstudag- inn 18. desember. kgk Skallagríms- menn lögðu Blika í spenn- andi leik Sigtryggur Arnar Björnsson átti stórleik þegar Skallagrímur lagði Breiðablik. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.