Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 64

Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 64
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201564 Steinunn Garðarsdóttir, eða Steina á Grímsstöðum eins og hún er oft- ast kölluð af sveitungum og sam- ferðarfólki, er Reykjavíkurstúlk- an sem hefur búið í Reykholtsdal í hartnær 50 ár. Þangað kom hún úr Reykjavík 1960 sem ung skólastúlka og settist á skólabekk í Héraðsskól- anum í Reykholti. Síðan hefur hún búið í dalnum, eignast þar eigin- mann, börn, bú og buru og unað hag sínum vel. Við hittum Steinu á Grímsstöðum í nýlegu og notalegu húsi sem hún og Guðmundur Krist- insson eiginmaður hennar reistu sér fyrir nokkrum árum á Grímsstöð- um. Þau eftirlétu eldra og stærra íbúðarhús yngstu dóttur þeirra og fjölskyldu hennar sem þá var nýflutt heim í Reykholtsdal frá Noregi. Frá Álafossi í braggahverfin Steina hefur að segja sögu sína í stuttu máli. „Ég er fædd 1947 á Lindargötu 36 í Reykjavík. Það hús stendur enn. Pabbi var frá Horna- firði og mamma úr Staðarsveitinni. Við fjölskyldan bjuggum þar þangað til ég varð þriggja ára. Þá fluttum við upp að Álafossi þar sem pabbi starf- aði sem kokkur við ullarverksmiðj- una. Ég var þarna þar til ég var sjö ára og það var góður tími. Þá var þetta bara uppi í sveit og þarna voru öll helstu húsdýr eins og kýr í fjósi, hundar, svín og kindur. Fjölmargt af verkafólkinu var útlendingar. Ég man eftir stelpum frá Nýja Sjálandi sem þótti afskaplega gaman að passa okkur systurnar en ég á eina systur sem er þremur árum eldri en ég,“ rifjar hún upp. „Svo fór pabbi til sjós og við flutt- um til Reykjavíkur. Þá byrjaði ég í Laugarnesskóla og seinna Lang- holtsskóla. Þegar ég var 12 ára skildu pabbi og mamma. Við bjugg- um í braggahverfinu Camp Knox,“ segir hún. Þegar nefndir eru bragg- ar og Camp Knox er rétt að staldra aðeins við og útskýra nánar fyrir les- endum. Braggahverfið Camp Knox stóð í vesturbæ Reykjavíkur. Þar hafði hernámsliðið reist eitt stærsta braggahverfið í stríðinu í Reykja- vík en braggarnir voru notaðir fyr- ir herbúðir. Að loknum ófriði 1945 hvarf herliðið á brott. Mikið hús- næðisleysi var í Reykjavík. Íslend- ingar af litlum efnum fluttu inn í braggana, bæði í Camp Knox og víðar. „Það þótti nú ekki mjög fínt að búa í bragga. Mamma flutti með okkur stelpunar þarna inn. Við vor- um reyndar búin að eiga heima áður í Balbo Camp. Það braggahverfi stóð við Kleppsveginn fyrir neðan þar sem nú er Laugarásbíó. Þann- ig var umhverfið okkur ekki alveg framandi þegar við fluttum í Camp Knox,“ segir Steina. Sætti einelti fyrir að búa í bragga Hún segir að henni hafi í sjálfu sér þótt ágætt að búa í braggahverfinu. Minningarnar þaðan eru sterkar enn í dag. „Já, það var alveg frábært þó fólkið væri misjafnt eins og geng- ur. Ég man þegar ég sá kvikmynd- ina Djöflaeyjuna áratugum síðar að ég kannaðist við suma karakterana í henni sem voru látnir búa í bragga- hverfinu í þeirri kvikmynd. Það er líka minnisstætt að þegar myndin af braggahverfinu kom á hvíta tjald- ið þá fann ég þessa lykt sem var svo einkennandi fyrir þessi húsakynni. Braggarnir voru kyntir upp með olíuofnum. Við bjuggum í því sem kallað var hálfbraggi. Þá var einum bragga skipt í tvennt með þunnum millivegg og önnur fjölskylda bjó hinum megin. Það var einn olíuofn fyrir hvern helming braggans. Stundum var ansi kalt. Braggarn- ir voru klæddir að innan með eins konar trétexi sem átti öðrum þræði að virka sem einangrun. Það var úr efni sem átti í bland við lyktina frá olíuofninum þátt í því að skapa þessa einkennandi lykt sem kom aftur fyr- ir vit mér í minningunni þegar ég sá kvikmyndina.“ Einn dökkan og ljótan skugga bar þó á það að búa í braggahverfinu. Fólkið sem þar bjó sætti miklum fordómum í samfélaginu. Svokall- aðir heldri borgarar margir hverjir litu niður á fólkið sem bjó í brögg- unum. „Ég var í Langholtsskóla og maður reyndi að fela að maður byggi í braggahverfi. Ég lenti í rosa- legu einelti meðal krakkanna í skól- anum af því ég átti heima í bragga og var kölluð ýmsum illum nöfnum. Sumt fólk fyrirleit íbúa braggahverf- anna. Við vorum talin hið versta fólk og óheiðarlegt. Þetta viðhorf smit- aðist síðan í börnin. Ef ég lagðist veik í flensu þá komu allar stelpurn- ar úr bekknum mínum til að athuga hvort það væri nú satt að ég væri veik. Hvort ég braggastelpan væri nú ekki bara einhvers staðar úti að leika mér og þannig að svindlast um. Svona var þetta. Stelpurnar í bekkn- um voru þó ekki beinlínis vondar við mig en ég eignaðist þó bara eina vinkonu sem ég gat talað við,“ seg- ir Steina. „Mamma vann alltaf í fiski og við kjötvinnslu. Úrbeiningu og þess háttar. En seinna var hún orðin alveg heilsulaus og útslitin.“ Á elliheimili 13 ára gömul Steina bjó með móður sinni og syst- ur í Camp Knox alveg fram á ung- lingsár. Hún var ekki gömul þeg- ar hún fór að hleypa heimdragan- um og hefja sjálfstætt líf. „Ég hætti í skóla þegar ég var búin með skyldu- námið. Ég var staðráðin í að hætta allri skólagöngu því þar liði mér illa vegna eineltisins. Ég fór með þessari tryggu æskuvinkonu minni að leita að vinnu. Við vorum aðeins 12 ára gamlar. Að vinna var nokkuð sem mér var ekki framandi. Ég hafði allt- af starfað við að passa börn á sumr- in. Þarna var ég þó orðin hundleið á því. Þess vegna fór ég að leita mér að vinnu í fiski. Þar var ekkert að gera. Þá fórum við á elliheimilið Grund, sóttum um vinnu þar og vorum ráðnar. Ég var nýorðin 13 ára þarna, er fædd snemma á árinu í janúar. En ég sagðist vera 14 ára. Vinkona mín sem er ekki fædd fyrr en í septem- ber gerði það sama. Þarna unnum við um sumarið sem gangastúlkur og sinntum gamla fólkinu. Það var óskaplega gaman. Ég gat vel hugsað mér að vera þarna áfram.“ En þó að Steina væri bæði ung og ákveðin þá tók eldri systir henn- ar fram fyrir hendurnar á henni. „Henni fannst ekki par sniðugt að ég ætlaði að fara að eyða ævinni á elliheimili og vildi endilega að ég færi í skóla. Hún dreif mig áfram og fór sjálf í nám og lærði hárgreiðslu seinna meir.“ Á lífsbrautina í Reykholtsdal Þarna atvikaðist það að lífshlaup Steinu mætti nánast óafvitað kross- götum og tók algera stefnubreytingu. Braggastelpan úr höfuðborginni var innrituð í Héraðsskólann í Reyk- holti í Borgarfirði. „Ég var 14 ára þegar ég kom í Reykholt að haust- lagi og flutti á heimavistina. Skólinn var eins og stórt heimili. Þórir Stein- þórsson var þá skólastjóri og meðal kennara voru presthjónin séra Einar Guðnason og Anna Bjarnadóttir. Þó var ég ekki eins og blóm í eggi til að byrja með. Ég var ákveðin í að verða ekki lengi þarna og stefndi að því að láta reka mig úr skólanum fyrir ára- mótin.“ Steina hlær dátt við end- urminninguna. „Þetta var einhver mótþrói í mér en dofnaðu skjótt því það var svo óskaplega gaman í þess- um skóla. Við vorum fjórar stelpur saman í herbergi og voðalega góð- ar vinkonur. Ein þeirra var héðan frá Skrúð í Reykholtsdal þar sem rek- in var garðyrkjustöð. Ég fór ekkert heim til Reykjavíkur á sumrin held- ur vann þar, við útiræktun og tómat- ana í gróðurhúsunum.“ Fann hún fjölina sína í Reyk- holtsdalnum? „Já, ég fann mig rosa- vel hér,“ svarar Steina án hiks. Hún fór aldrei aftur til Reykjavíkur til að búa þar heldur settist að í Reyk- holtsdal þar sem hún býr enn. „Ég kynntist Guðmundi Kristinssyni frá Grímsstöðum sem varð svo mað- urinn minn. Hann var líka í Reyk- holtsskóla en tveimur árum eldri. Við rugluðum saman reitum okk- ar og settumst að hér á Grímsstöð- um og búum hér enn. Ég varð bara sveitakona.“ Aðkomustúlka í Borgarfirði Í fyrstu fór Steina að vinna með búskapnum á símstöðinni í Reyk- holti sem stendur í sjónlínu fáum kílómetrum austan við Grímsstaði. „Það var þá hálfgildings þorp með símstöð, pósthúsi, presti og versl- un auk þess skólinn var þar að sjálf- sögðu. Svo var læknir og apótek á Kleppjárnsreykjum. Það var því ekki erfitt fyrir unga konu að finna vinnu í Reykholtsdalnum. Fyrstu fimm árin bjuggum við í gamla bænum hér á Grímsstöðum hjá tengdafor- eldrum mínum, Kristni og Grétu. Til að byrja með bjuggum við félagsbúi með þeim og héldum bæði kýr, kindur og hross. Guðmundur var verktaki í jarðvinnu hér í sveit- unum, stundaði smíðar og ýmislegt fleira.“ Þau Guðmundur eignuðust sitt fyrsta barn 1965. Með tímanum urðu þau fjögur; þrjár dætur og einn sonur. „Ég var afar sátt hér. Þó þótti það nú ekki alveg nógu gott með- al sumra eldri kvennana í sveitinni að við þessar Reykjavíkurstelpur værum að koma hingað í sveitirn- ar og krækja í bændasynina. Mað- ur fékk stundum að heyra að útund- an sér: „Aumingja hann Guðmund- ur á Grímsstöðum. Þarf bara að eiga Steinunn Garðarsdóttir er braggastúlkan sem varð húsfreyja í Reykholtsdal: „Ég fór í Héraðsskólann og sneri aldrei aftur til Reykjavíkur til að búa þar“ Camp Knox-braggahverfið í vesturbæ Reykjavíkur þar sem Steina á Grímsstöðum ólst að miklu leyti upp á barns- og unglingsárum sínum. Þar voru um 167 skálar og þegar flest var bjuggu þarna ríflega 600 manns í rúmlega 130 íbúðum. Steina litla var því ekki ein. Verst var þó að margir af meðborgurum hennar litu niður á braggafólkið og lögðu það jafnvel í einelti. Ljósmynd frá uppsetningu leikritsins „Skugga Sveins“ 1966. Þetta var fyrsta sýningin sem Steina tók þátt í. Hún sést hér í fremstu röð, önnur frá hægri. Horft inn Reykholtsdal, yfir í Hálsasveit og Hvítársíðu, allt til Eiríksjökuls. Gríms- staðir í Reykholtsdal og fjær til hægri er höfuðstaðurinn Reykholt. Hjónin Steinunn Garðarsdóttir og Guðmundur Kristinsson í eldhúsinu í nýja húsinu þeirra á Grímsstöðum nú á aðventunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.