Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Page 16

Skessuhorn - 16.12.2015, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201516 FYRIRTÆKI, FÉLAGASAMTÖK OG EINSTAKLINGAR Erum farin að taka á móti pöntunum í þorrahlaðborðin Sendum á sunnanvert Vesturland Pantanir í síma 430-6767 R E S T A U R A N T NÚ STYTTIST Í ÞORRA! SK E S S U H O R N 2 01 5 Bílaréttingar - Bílasprautun Framrúðuskipti - Bílaleiga - Tjónaskoðun SK ES SU H O R N 2 01 5 Þjónustum öll tryggingafélög Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Útvarp Óðal í Borgarnesi fór í loft- ið á mánudaginn í liðinni viku og stóðu útsendingar fram á föstudag. Um er að ræða árlegar útvarpssend- ingar sem sendar eru út frá Óðali, félagsmiðstöð grunnskólanna í Borgarnesi, Varmalandi og á Klepp- járnsreykjum. Það er nemendafélag Grunnskólans í Borgarnesi sem heldur utan um útsendingarnar og hafa nemendur skólans haft í nógu að snúast undanfarið. „Þetta geng- ur rosalega vel,“ sögðu krakkarnir í gær þegar blaðamaður leit í heim- sókn. Stjórn nemendafélagsins bar hitann og þungann af útsendingun- um ásamt nokkrum ungmennum til viðbótar og voru flestir að stýra út- varpinu í fyrsta sinn. „Þetta er mjög gaman. Skemmtilegast er að tala í beinni útsendingu, að fá símtöl og að taka viðtölin,“ sögðu þau. Mörg- um af þáttunum var útvarpað beint en þættir 1. - 7. bekkjar voru hljóð- ritaðir fyrirfram. Þá sömdu nem- endur allar auglýsingar og lásu sjálf- ir inn á þær. Aðspurð um hvað hafi kom- ið mest á óvart við að reka Útvarp Óðal voru krakkarnir sammála: „Það kom mest á óvart hvað auglýs- ingapakkarnir voru langir og hvað þetta er mikil vinna.“ Enda voru margir langir dagar þar sem krakk- arnir sinntu útvarpinu eftir skóla og langt fram á kvöld. Þá voru jóla- prófin í fullum gangi og lært á milli útsendinga. Svo var skipst á að fara í próf. „En þetta er mjög skemmti- legt,“ sögðu þau með skólabækurn- ar í fanginu. „Það er svekkjandi að geta ekki gert þetta aftur,“ bæta þau elstu við. grþ Útvarp Óðal gekk vel Spurningaþátturinn „Ertu klárari en jólabarn?“ á leið í loftið. Óliver Kristján Fjeldsted, Anton Elí Einarsson, Brynjar Snær Pálsson og Sigurður Aron Þorsteinsson. Tíminn á milli útsendinga nýttur í lærdóm. Árið 2015 var viðburðaríkt hjá Landmælingum Íslands þar sem samstarf var lykilþáttur árangurs. Sögulegur áfangi náðist með lögum um örnefni þar sem Landmælingum Íslands er ætlað mikil- vægt hlutverk. Samskipti við notendur voru mjög jákvæð og áhugi á gjaldfrjálsum landupplýsingum var mikill. Á árinu var unnið að endurskoðun á stefnu Landmælinga Íslands m.a. til að bregðast við örri tækniþróun og aukinni áherslu á inn- lent og erlent samstarf. Á nýju ári bíða kreandi áskoranir og ölbreytt verkefni. Þökkum samstarð á árinu sem er að líða.Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár Landmælingar Íslands Jól 2015 Kæru vinir! Jólaútvarp Grunn- skólans í Borgar- nesi, FM Óðal 101,3 var með útsending- ar vikuna 7. – 11. desember. Að baki útsendingunni ligg- ur mikil vinna sem margir taka þátt í. Kjarninn í þeim hópi er stjórn nem- endafélags grunn- skólans, tæknimenn og útsendingar- stjóri. Undirbún- ingur þátta, auglýs- ingagerð, upptökur og fleira sem nauð- synlegt er til að halda úti jólaút- varpi tekur um það bil þrjár vik- ur. Allir nemendur grunnskólans taka þátt. Fjölmörg fyrirtæki í Borgar- byggð kaupa auglýsingar í jólaút- varpinu og styrkja þannig fjáröfl- un nemendafélagsins. Auglýs- ingapakkinn þetta árið var vegleg- ur og þar voru margar skemmti- legar auglýsingar. Í ár var auglýs- ing frá LímtréVírnet kosin besta auglýsingin. Sú auglýsing, sem og aðrar, var samin, lesin og leikin/ sungin af nemendum í 9. og 10. bekk grunnskólans. Ágóða jóla- útvarpsins hefur nemendafélag- ið notað undanfarin ár til tækja- kaupa fyrir félagsmiðstöðina og fleira. Við viljum koma á fram- færi þakklæti til þeirra fyrirtækja sem styrktu jólaútvarpið með því að kaupa auglýsingar. Án ykk- ar væri ekki mögulegt að halda þessu verkefni áfram. Áhugasam- ir geta nálgast upptökur á https:// borgarnes.wordpress.com/jol/jo- lautvarp-2015/. Fyrir hönd Grunnskólans í Borg- arnesi, Hulda Hrönn Sigurðardóttir deildarstjóri Jólaútvarpsfólk þakkar stuðningsaðilum Það er mikið álag á stjórn nemendafélagsins við undirbúning og framkvæmd jólaútvarpsins. Frá vinstri: Íris Líf (varaformaður), Alexander (gjaldkeri), Snæþór Bjarki (formaður og útvarpsstjóri), Sigurður (útsendingarstjóri), Axel (aðstoðartæknistjóri) og Hlynur (tæknistjóri).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.