Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 58
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201558
Kalli rækilega í gegn og vakti mikla
athygli. Þýsku fjölmiðlarnir köll-
uðu hann dverginn enda sá minnsti
á vellinum og slógu því upp þegar
hann lagði upp mark ÍA, í 4-1 tapi,
eftir að hafa platað þýska varnarris-
an Cullmann á rassinn.
Fór aftur að vinna
í rafmagninu
Eftir að Kalli kom heim fór hann
að vinna hjá Jóni Frímannssyni á
rafmagnsverkstæðinu hjá HB&Co
á Akranesi og tók við verkstæðis-
formennsku þar af Jóni síðustu árin
sem verkstæðið var rekið. Eftir sam-
einingu HB og Granda var verk-
stæðið selt og þá fór Kalli að vinna
sem rafvirki hjá Securitas í Reykja-
vík í þrjú ár við uppsetningu á að-
gangsstýrikerfum og fleiru. Fjöl-
skyldan flutti þá til Reykjavíkur um
tíma. Eftir árin þrjú hjá Securitas
hóf hann störf hjá Eirvík þar sem
hann er mest í viðgerðum á heimil-
istækjum. Þau Erna fluttu aftur upp
á Skaga fyrir fimm árum og Kalli
keyrir milli Akraness og Reykjavík-
ur vegna vinnu. Hann segist ekk-
ert leiður á því og hann nýti tím-
ann vel meðal annars til að tala í
símann með þráðlausum búnaði.
Þau Erna hafa verið virk í Sjóbaðs-
félagi Akraness og fara reglulega í
sjóinn við Langasand. Þegar hann
er spurður að því hvort það sé ekki
algjört rugl að stunda slíkt allt árið
svarar hann strax: „Jú, jú, en þetta
er bara svo helvíti gott. Manni líð-
ur vel eftir þetta. Við förum allt-
af á laugardögum og sunnudögum
klukkan ellefu ef við erum heima
en ég sleppi miðvikudögunum þeg-
ar aðrir eru í sjónum. Það eru allt
að tuttugu manns sem mæta þarna
um hverja helgi.“
Fékk stórþorsk
á stöngina
Annað áhugamál Kalla er sjóstanga-
veiði en hann hefur verið í Sjóstanga-
veiðifélaginu Skipaskaga á Akranesi
frá stofnun þess árið 1993. Árang-
urinn í sjóstangaveiðinni hefur líka
verið góður hjá Kalla. T.d. veiddi
hann stærsta þorsk á stöng sem þá
hafði verið veiddur. Það var á móti í
Grindavík og þorskurinn vigtaði 25
kíló, slægður. Síðan þá hafa reglur
breyst og nú er afli af sjóstangaveiði-
bátum vigtaður óslægður. Ómögu-
legt er að segja til hve þungt inn-
volsið í þorskinum, sem Kalli veiddi,
hefur verið. Þess má geta að lengd
þorsksins var svipuð og lengd Kalla.
„Þegar ég hringdi í vin minn Nonna
Sig og sagði honum frá þeim stóra
varð honum að orði að ef hann væri
jafnstór og ég þá hlyti þetta að vera
undirmálsfiskur!“ Útgerðarfélagið
Karlsberg er eitt áhugamál Kalla en
það á og gerir út skemmtibátinn Jón
forseta. Nýverið eignaðist félagið
nýjan bát og er hann sá fimmti í
röð þeirra skemmtibáta sem félagið
hefur átt og jafnframt sá stærsti og
flottasti. Farnar eru skemmtiferðir
með félagsmenn og fjölskyldur og
veitt í soðið.
Fimleikarnir
grunnurinn að góðum
fótboltaárangri
Kalli var alla tíð í hópi lægstu
knattspyrnumanna enda aðeins um
168 sentímetrar á hæð. Hann seg-
ist telja að það hafi bara komið sér
vel, frekar en hitt, enda hafa margir
af bestu knattspyrnumönnum Evr-
ópu ekki verið háir í loftinu. „Ég
held líka að grunnurinn að vel-
gengni minni í fótboltanum hafi
verið að ég var í fimleikum þegar
ég var yngri. Bæði hjá Halli Gunn-
laugssyni og Ævari Sigurðssyni.
Þetta varð m.a. til þess að ég lenti
aldrei í neinum vöðvameiðslum
eins og margir aðrir. Yfirleitt slapp
ég vel við meiðsli. Þó var ég skor-
inn upp við liðmús í Belgíu 1980 og
var þá mánuð frá þar til ég byrjaði
að spila aftur. Belgarnir voru ekk-
ert að skafa brjóskið, eins og yfir-
leitt var gert, þeir fjarlægðu það
bara allt saman úr hnénu. Svo hafa
þetta bara verið smávegis tognan-
ir og þvíumlíkt.“ Kalli var heldur
ekkert mikið fyrir að fá áminning-
ar á fótboltaferlinum. Hann fékk
einu sinni gult spjald í Belgíu og
annað í Frakklandi. Hér heima
fékk hann aldrei spjöld fyrr en
undir lokin. „Þá var Guðmundur
Haraldsson knattspyrnudómari að
dæma sinn síðasta leik en hann var
búinn að dæma þá marga hjá mér.
Þetta var í Hafnarfirði á móti FH.
Á 89. mínútu flautaði Guðmund-
ur og benti mér að koma til sín og
tók upp gula spjaldið. Ég hugsaði
með mér að nú væri hann að refsa
mér fyrir eitthvað sem annar hefði
gert en hann rétti mér gula spjald-
ið. Þá var hann búinn að skrifa á
það. „Áttugasta og níunda mínúta,
loksins náði ég þér!“ Svo dró hann
upp rauða spjaldið, rétti mér það
líka og þakkaði mér fyrir ferilinn.
Ég spilaði svo með bæði spjöldin
þessa síðustu mínútu,“ sagði Kalli
knattspyrnumaður og rafvirki sem
enn heldur sér í æfingu og spilaði
til dæmis á árgangamótinu á Akra-
nesi um daginn. Ekki að vísu með
sínum ´55 árgangi heldur árgangi
´68, sem er þrettán árum yngri,
en það var elsti árgangurinn sem
finnanlegur var á mótinu. Geri
aðrir betur. hb
Kalli með börnunum sínum, Gísla og Söru, eftir síðasta leik Íslandsmótsins 1991.
Íþróttablaðamenn Morgunblaðsins kusu Karl Þórðarson leikmann Íslands-
mótsins í knattspyrnu árið 1978.
Álíka stórir. Kalli og stórþorskurinn sem þá var stærsti þorskur sem veiðst hafði
á stöng við Íslandsstrendur. Gárungar sögðu reyndar að jafnvel þótt þorskurinn
væri jafnstór Kalla, hefði þetta verið undirmálsfiskur!
Með liðsfélögum í Laval í Frakklandi, þar sem Kalli segist hafa átt sín bestu ár.
Ungur atvinnumaður á leikvelli La Louviere í Belgíu.
Framhald af síðustu opnu