Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Page 102

Skessuhorn - 16.12.2015, Page 102
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015102 Um leið og við sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári, viljum við þakka kærlega fyrir stuðning og aðstoð á árinu sem er að líða. Með kveðju Gunnar Bragi Sveinsson, Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arnardóttir og Jóhanna María Sigmundsdóttir FRAMSÓKNARFLOKKURINN SK ES SU H O R N 2 01 4 Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum ánægjuleg samskipti á líðandi ári. God jul og godt nytt år. Vi takker for samarbeidet i året som gikk. Merry christmas and a happy new year. Thank you for enjoyable moments in the passing year. Wesołych Świąt i szczęśliwego nowego. Dziekujemy za owocna wspolprace w 2015 roku i mamy nadzieje ze przyszly rok bedzie rownie udany Счастливого Нового Года и светлого Рождества!! С благодарностью за сотрудничество и совместную работу в прошлом году, Jólakveðja – Julehilsen • Christmas greeting • życzenia świąteczne - Поздравления с Рождеством! S K E S S U H O R N 2 01 5 Eins og flestum er kunnugt þá hefur ferðaþjónustan vaxið gríð- arlegar mikið undanfarin ár með tilheyrandi fjölgun fyrirtækja og starfsfólks í ferðaþjónustu. Há- skólinn á Bifröst hefur unnið nýja skýrslu samkvæmt samningi við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið. Í henni er lögð fram sýn á arðsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu hér á landi. Jafnframt eru lagðar fram ábendingar og leiðir til úr- bóta til fyrirtækja í greininni sem fengnar eru með viðtölum við for- ráðamenn fyrirtækja í atvinnu- greininni. Afkoman er að batna Ferðamönnum fjölgaði um 100% frá árinu 2009 (493.000) til 2014 (997.000). Á sama tíma hefur fjár- hagsleg staða fyrirtækja í ferða- þjónustu verið að batna. Sennilega mun hún batna enn verði fram- tíðarsýn skýrsluhöfunda að veru- leika. Þeir gera ráð fyrir að út- flutningstekjur af ferðamönnum haldi áfram að vaxa hratt. Þann- ig fari þær úr um 350 milljörðum króna í ár og yfir 620 milljarða árið 2020. Hvorki staðsetning né stærð fyrirtækja virðist ráða arðsemi fyr- irtækja í greininni. Valin voru 21 fyrirtæki í úrtak í rannsókn á arðsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu. Öll fyrirtækin sýndu jákvæð merki í rekstri sínum árin 2012 og 2013. Fyrirtæki í mis- munandi greinum ferðaþjónustu voru skoðuð (hótel, ferðaskipu- leggjendur, afþreying, veitingar- staðir, farþegaflutningar og bíla- leigur). Fyrirtæki sem höfðu starf- semi allt árið í farþegaflutningum, hótelrekstri, bílaleigum og viss fyrirtæki í afþreyingu juku hagn- að sinn og arðsemi milli ára. Ekki var hægt að lesa úr ársreikningum að staðsetning og stærð fyrirtækja skipti máli hvað arðsemi snerti. Margt má betur fara Þegar innri þættir voru skoðað- ir með viðtölum við forráðamenn fyrirtækjanna kom í ljós að kostn- aður, verðlagning, sýnileiki og starfsfólk höfðu einnig áhrif á arð- semi. Þegar ytri þættir voru skoð- aðir kom í ljós að gengi gjaldmið- ils og stöðuleiki í efnahagsmálum voru veigamiklir þættir í því hve arðbær reksturinn var. Rannsóknin leiddi í ljós að margt má bæta. Fyrirtækin þurfa að huga að skýrari markmiðum, faglegri verðlagningu á vöru og þjónustu, meiri starfsemi utan háannatíma, styrkari áætlanagerð, auknum sýni- leika vöru og þjónustu á netinu og að nýta betri aðgang að fjármagni til að stækka eða styrkja fjárhags- grundvöll fyrirtækjanna. Skýrsl- an er aðgengileg á vef Háskólans á Bifröst. mþh Tvöföldun tekna af ferða- mönnum á næstu fimm árum Gunnar Alexander Ólafsson verk- efnastjóri við Háskólann á Bifröst, Vil- hjálmur Egilsson rektor og Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra ferðamála þegar skýrslan var afhent. Á mánudaginn var keppt í átta liða úrslit bikarkeppni Keilusambands Íslands í keilusalnum í Egilshöll í Grafarvogi. Kvennalið ÍA, með Jó- hönnu Ósk Guðjónsdóttur í broddi fylkingar, náði þar með mikilli dramatík að tryggja sér sæti í und- anúrslitum. Liðið vann fyrsta leik sinn en tap- aði næstu tveimur. Í fjórða og síð- asta leiknum stigu ÍA konur heldur betur upp, léku einni sinn besta leik og knúðu fram bráðabana þar sem allir fjórir spilarar kasta einu sinni. Þar gerðu keiluspilarar ÍA sér lítið fyrir og náðu fjórum fellum af fjór- um mögulegum og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitunum sem leikin verða 18. janúar næstkom- andi. Þá má geta þess að þau Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir og Aroni Fann- ari Benteinssyni, bæði úr ÍA, munu halda til Katar og taka þátt í átta landa móti um miðjan febrúarmán- uð. kgk ÍA tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni KLÍ Lið ÍA sem tryggð sér í gær sæti í undanúrslitum bikarkeppni KLÍ. F.v. Guðlaug Aðal- steinsdóttir, Jónína Björg Magnúsdóttir, Vilborg Lúðvíksdóttir og Margrét Björg Jónsdóttir og Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir. Snemma árs 2016 verður Eyrar- rósin veitt í tólfta sinn, fyrir fram- úrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Verð- launin eru mikilvæg enda um veg- lega upphæð að ræða, en tilnefning til Eyrarrósar er einnig mikilsverð- ur gæðastimpill fyrir þau menn- ingarverkefni sem hana hljóta. Að verðlaununum standa Byggðastofn- un, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík. Alls verða tíu verkefni valin á Eyrarrósarlistann og hljóta þrjú þeirra tilnefningu til Eyrar- rósarinnar ásamt peningaverðlaun- um og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Eyrarrósina 2015 hlaut Frystiklefinn í Rifi. Umsóknarfrestur er til miðnætt- is 5. janúar 2016 og skal umsókn- um skilað til Listahátíðar í Reykja- vík á netfangið eyrarros@artfest.is. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Listahátíðar í síma 561-2444 og á vefsvæði Eyrarrósar- innar www.listahatid.is/eyrarrosin grþ Óskað eftir umsóknum fyrir Eyrarrósina 2016 Frá afhendingu Eyrarrósarinnar 2015 á Ísafirði. Kári Viðarsson tekur við Eyrarrós- inni fyrir hönd Frystiklefans í Rifi. Næstu verðlaun verða því afhent við hátíðlega athöfn í Rifi á næsta ári.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.