Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201538
Staða skólastjóra við Auðarskóla í Búðardal er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi
sem er tilbúinn til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af metnaði og dugnaði
með virðingu og ánægju að leiðarljósi.
Upplýsingar veita:
Sveinn Pálsson, s. 430 4700
sveitarstjori@dalir.is
Geirlaug Jóhannsdóttir
geirlaug@hagvangur.is
Leifur Geir Hafsteinsson
leifurgeir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 5. janúar nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Markmið og verkefni
• Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi,
fjárhagsáætlunum og rekstri skólans
• Fagleg forysta skólastofnunarinnar
• Stuðla að framþróun skólastarfsins
• Ráðningar og mannauðsstjórnun
Menntun, færni og eiginleikar
• Kennaramenntun á grunnskóla- og/eða leikskólastigi er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og uppeldis- og kennslufræða æskileg
• Reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum skilyrði
• Reynsla og þekking á rekstri tónlistarskóla æskileg
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Frumkvæði, metnaður, samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar
Skólastjóri
Auðarskóli í Búðardal er samrekinn skóli með fjórar deildir; leikskóla, grunnskóla,
tónlistarskóla og mötuneyti. Einkunnarorð Auðarskóla eru: Ábyrgð – Ánægja – Árangur.
Í Búðardal er metnaðarfullt framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á vellíðan
nemenda, öruggt umhverfi og góðar aðstæður til náms.
Nánari upplýsingar um Auðarskóla er að finna á vefsíðunni www.audarskoli.is
Að venju geta lesendur nú spreytt sig á að leysa jólamyndagátu Skessuhorns og tek-
ið þátt í skemmtilegum leik. Réttar lausnir berist Skessuhorni, merkt; Skessuhorn,
„Myndagáta,“ Kirkjubraut 56, 300 Akranesi. Nauðsynlegt er að póstleggja lausnarsetn-
inguna í síðasta lagi fimmtudaginn 7. janúar nk. Dregið verður úr réttum lausnum og
hlýtur sá heppni bókina Stríðsárin 1938-1945 eftir Pál Baldvin Baldvinsson. Tilkynnt
verður um vinningshafa í öðru tölublaði nýs árs. mm
Jólamyndagáta Skessuhorns 2015