Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 77
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 77
Skagakonan Jóhanna Heiður Gests-
dóttir er mikið jólabarn. Hún hefur
gaman af því að gera fallegt í kring-
um sig og er mikil föndurkona. Í
föndrinu endurnýtir Jóhanna mikið
og segja má að hún sé umhverfisvæn
með meiru, þegar kemur að efninu
sem hún nýtir í föndrið. „Það er rosa-
lega praktískt að nota það sem til er í
föndrið. Það getur líka fylgt því mikill
kostnaður að vera föndrari þannig að
ég fór að skoða hvað væri til heima.
Ég er svo nýtin,“ segir Jóhanna í sam-
tali við Skessuhorn.
Jóhanna segist hafa byrjað að
föndra í veikindafríi fyrir nokkrum
árum. „Ég var algerlega útslegin lík-
amlega, að drepast úr leiðindum og
vantaði eitthvað að gera. Ég las mik-
ið á þessum tíma og það var einmitt
þá sem ég áttaði mig á að bækur væru
vel nýtanlegar í föndurverkefni. Má
eiginlega segja að ég hafi lesið bókina
og svo föndrað úr henni. Þetta hentar
mér einnig vel þar sem ég er hreyfan-
leg þegar ég er að föndra og þarf ekki
eingöngu að sitja við þetta,“ segir
hún. Það fyrsta sem Jóhanna föndr-
aði var stór og myndarlegur krans úr
blaðsíðum. „Ég byrjaði á kransinum,
sem var frekar tímafrekur. Svo fór
ég að gera jólakort í framhaldinu,“
segir Jóhanna sem segist hvað mest
föndra fyrir jólin. „Löngunin kemur
mest fyrir jólin, þá langar mig alltaf
að gera eitthvað sniðugt.“ Hún nýtir
pappír og gamlar bækur mest í föndr-
ið. „En ég hef líka verið að vinna með
striga en það er enn á tilraunastigi hjá
mér,“ segir hún og brosir. „ Aumingja
fjölskyldan mín fær alltaf eitthvað í
jólagjöf sem ég hef gert sjálf, því ég
gef mest af þessu,“ segir hún og hlær.
Áhuginn er ekki nýr af nálinni, þó
að Jóhanna hafi ekki sinnt áhuga-
málinu lengi vel. „Það var eiginlega
tímaleysi um að kenna að ég byrjaði
ekki á neinu svona fyrr. Ég hef alltaf
haft rosalega mikinn áhuga á falleg-
um heimilum og tek vel eftir í kring-
um mig.“
Letrið skemmtilegt
Gamla muni segist Jóhanna finna í
geymslum, skúrum eða á nytjamörk-
uðum svo sem Búkollu á Akranesi.
„Búkolla er æði, þar má finna ýms-
ar gersemar fyrir lítið sem er snið-
ugt að gera upp. Svo er bara að mála,
stússast og fínisera.“ Gömlu bækurn-
ar finnur Jóhanna til dæmis á nytja-
mörkuðum. „Þegar ég skoða bæk-
ur nú orðið, þá er ég ekkert að skoða
innihaldið, heldur leturgerðina og
svo er ég mjög heilluð af gulnuð-
um blaðsíðum,“ segir hún. Úr göml-
um blaðsíðum hefur hún meðal ann-
ars gert kransinn stóra, jólatré, snjó-
korn og margt fleira. „Pappírinn leik-
ur í höndunum á mér, hann er ekki
eins viðkvæmur og fólk heldur,“ seg-
ir hún. Jóhanna segist vera sjálflærð í
föndrinu. „Pinterest er biblía föndr-
aranna og ég skoða það stöku sinnum
og þá sérstaklega fyrir jólin. Ég fylgi
kannski grunnhugmyndum en bý til
mín eigin skapalón og geri hlutina
eftir mínu höfði,“ útskýrir Jóhanna
að endingu.
grþ
Endurnýtir og gerir að sínu
Föndrarinn og jólabarnið Jóhanna Heiður Gestsdóttir. Á veggnum má sjá
kransinn sem var fyrsta föndurverkefnið.
Jóhanna hefur hengt fallegt skraut í eldhúsljósið.
Eldhúsgluggi Jóhönnu er fallegur.
Þarna má sjá jólatré úr pappír og flottar
Mason krukkur sem Jóhanna hefur sett
seríu inn í. Greinin sem jólaskrautið
hangir í er af birkitré í garðinum.
Kertaarinninn í stofunni er hlýlegur
og fallega jólaskreyttur. Á arinhillunni
má finna ýmislegt fallegt heimagert
skraut í bland við keypt.
Glugginn í þvottahúsinu er jólalegur
á að líta.
Hér má meðal annars sjá vængi úr
blaðsíðum og korktöflu sem Jóhanna
hefur skreytt.
GLEÐILEGA HÁTIÐ TIL
SJÁVAR OG SVEITA OG
FARSÆLT KOMANDI ÁR