Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Page 8

Skessuhorn - 16.12.2015, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 20158 Ekkert endurvarp um tíma BORGARFJ: Tveir staurar brotnuðu í óveðrinu að morgni síðastliðins þriðjudags í raf- línu sem liggur að Skáneyjar- bungu í Reykholtsdal. Á fjall- inu eru endurvarpar fyrir út- varp, síma og sjónvarp og var af þeim sökum stopult samband síma og viðtækja á stóru svæði sem fær endurvarp af fjallinu. Vinnuflokkur Rarik frá Borg- arnesi skipti á þriðjudag um tvo brotna staura í háspennulínunni að sendahúsunum við mjög erf- iðar aðstæður í snarbrattri hlíð í fremur slæmu veðri. Viðgerð lauk síðan á miðvikudag. Tví- mælalaust er þessi raflína í hópi þeirra sem jarðstrengur í jörðu þyrfti að leysa af hólmi. –mm Dregur úr fiskáti EVRÓPA: Neytendur í lönd- um Evrópusambandsins kaupa minna af fiski en áður. Þó hefur sala þar á sjávarafurðum aukist mælt í verðmætum á sama tíma. Þetta kemur fram í nýrri fisk- markaðsskýrslu sem ESB lætur gera reglulega og greint er frá á vef Fiskifrétta. Þar segir að fiskneysla í ESB-ríkjunum hafi minnkað um tvö kíló á mann á ári frá 2008 þrátt fyrir stöðug- an áróður um að fiskur sé góður fyrir heilsu og langlífi. Vinsæl- ustu fisktegundirnar eru tún- fiskur, þorskur og lax og nem- ur neyslan tveimur kílóum á ári að meðaltali á hvert mannsbarn af sérhverri þessara tegunda. Stærsta viðskiptaland ESB með sjávarafurðir er Noregur en þaðan kemur fjórðungur af öll- um innfluttum sjávarafurðum til ESB-landanna. Norski fisk- urinn er fyrst og fremst lax og þorskur. Útflutningur Norð- manna á fiskmeti til ESB hefur aukist um 70% frá árinu 2009. Þar vegur sjálfsagt þungt að þorskkvótar í Barentshafi hafa verið í hæstu hæðum sögulega séð. –mþh Tollar lækka á fatnaði og skóm LANDIÐ: Um áramótin verða tollar afnumdir á fatnaði og skóm, í alls 324 tollskrárnúm- erum. Er um að ræða ýmiskon- ar fatnað, t.d. skófatnað, höfuð- fatnað, leðurfatnað, loðskinn, fatnað úr plasti og gúmmí sem og fylgihluti þeirra; hnapp- ar, tölur og rennilásar. Afnám tolla af fatnaði og skóm á að skila 13% meðallækkun verðs til neytenda á þeim vörum sem áður báru tollinn. „En þetta er ekki svona einfalt. Þegar skoðað er hlutfall þeirra vara í flokkn- um sem bera toll kemur í ljós að það eru aðeins 60% þeirra vara sem fluttar eru til landsins sem bera toll. Miðað við það hlut- fall ætti afnámið að skila 7,8% lækkun á liðnum fatnaður og skór í vísitölu neysluverðs,“ segir í tilkynningu frá verðlags- eftirliti ASÍ. „Verðlagseftirlitið vonast til þess að afnám tollanna á fatnað og skóm skili sér sem fyrst til neytenda með lækkun á vöruverði. Mun verðlagseftirlit Alþýðusambandsins fylgjast vel með breytingunum og hvetur neytendur til hins sama.“ –mm Fokkerar á söluskrá LANDIÐ: Þáttaskil eru fram- undan í sögu innanlandsflugs á Íslandi þegar Flugfélag Ís- lands hættir notkun á Fokker- farþegavélum sínum. Slíkar flugvélar hafa um áratugaskeið sveimað yfir höfðum Vestlend- inga á ferðum sínum til og frá flugvöllum á Vestfjörðum og norðan heiða. Flugfélag Íslands hefur fest kaup á nýjum vélum af gerðinni Bombardier Q400. Verður sú fyrsta tekin í notkun á nýju ári. Þar með hillir undir lokin á 50 ára sögu Fokker-flug- vélanna hjá Flugfélagi Íslands. Fokker-flugvélaverksmiðjurnar í Hollandi urðu gjaldþrota fyrir nokkrum árum og þá var fram- leiðslu vélanna hætt. Nú eru unnið að því að selja Fokker- vélar Flugfélagsins. Hefur ein vél þegar verið afhent flugfélagi í Afríku. Fjórar Fokker 50-vél- ar eru nú eftir í flota Flugfélags Íslands en þær verða allar tekn- ar úr notkun á næsta ári þegar nýju Bombardier-vélarnar taka við ein af annarri. –mþh Aflatölur fyrir Vesturland 5. - 11. nóvember Tölur (í kílóum) f rá Fiskistofu: Akranes 7 bátar. Heildarlöndun: 22.351 kg. Mestur afli: Stapavík AK: 5.534 kg í fjórum löndunum. Arnarstapi 2 bátar. Heildarlöndun: 18.972 kg. Mestur afli: Signý HU: 5.401 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður 9 bátar. Heildarlöndun: 235.945 kg. Mestur afli: Steinunn SF: 83.664 kg í tveimur löndunum. Ólafsvík 15 bátar. Heildarlöndun: 206.341 kg. Mestur afli: Guðmundur Jens- son SH: 45.959 kg í þremur löndunum. Rif 14 bátar. Heildarlöndun: 276.380 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 61.802 kg í einni löndun. Stykkishólmur 6 bátar. Heildarlöndun: 105.871 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 44.022 kg í tveimur löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Tjaldur SH – RIF: 61.802 kg. 7. desember. 2. Hringur SH – GRU: 49.551 kg. 8. desember. 3. Rifsnes SH – RIF: 49.140 kg. 7. desember. 4. Steinunn SF – GRU: 48.973 kg. 8. desember. 5. Helgi SH – GRU: 44.945 kg. 7. desember. mþh Jarðskjálfti af stærðinni 3,2 stig á Richterskvarða, með upptök við Geitlandsjökul í Langjökli, fannst greinilega í Borgarfirði síðastlið- inn fimmtudagsmorgun. Í tilkynn- ingu frá Veðurstofu Íslands seg- ir að skjálftinn hafi orðið klukkan 9:47 en fjölmargir smærri skjálft- ar fylgdu í kjölfarið við Geitlands- jökul. Þá kemur einnig fram að skjálftahrinur séu tiltölulega al- gengar á þessum slóðum. mm Jarðskjálfti í Geitlandsjökli Forstjóri Landsnets segir brýnt að hefjast handa við styrkingu megin- flutningskerfis Landsnets. Notend- ur hefðu orðið fyrir minna straum- leysi í fárviðrinu sem gekk yfir landið í byrjun síðustu viku ef kerf- isstyrkingar sem félagið vill ráð- ast í hefðu verið komnar til fram- kvæmda. Viðgerð á háspennulínum Landsnets er að mestu lokið og er beint tjón félagsins metið um 120 milljónir króna en afleitt tjón sam- félagsins er enn meira. Mest var tjón á raflínum á Vestfjörðum. „Það er afar líklegt að notend- ur hefðu orðið fyrir minna straum- leysi í óveðrinu á mánudagskvöld og aðfararnótt þriðjudags í síðustu viku ef styrkingar og endurbætur á flutningskerfinu hefðu verið komn- ar til framkvæmda. Það voru ein- göngu eldri flutningslínur með tré- möstrum sem skemmdust. Stærri línurnar okkar, sem eru bæði nýrri og með stálgrindarmöstrum, stóð- ust veðurálagið eins og til dæmis á Hallormsstaðarhálsi þar sem vind- styrkurinn fór yfir 72 metra á sek- úndu í hviðum,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Lands- nets. Alls brotnuðu 30 möstur í flutn- ingskerfi Landsnets vegna vind- álags og ísingar í fárviðrinu í byrjun vikunnar. Mest varð tjónið á Vest- fjörðum þar sem 20 möstur gáfu sig í Breiðadalslínu 1 í Dýrafirði. Á Norðurlandi, Suðausturlandi og Austurlandi varð einnig tjón. Nú liggur fyrir að tjón Landsnets vegna óveðursins er rétt um 120 milljón- ir króna. Um 80 milljónir eru vegna viðgerðarkostnaðar, þar af eru 60 milljónir vegna tjóns á Vestfjörðum, en tæplega 40 milljónir vegna fram- leiðslu varafls með dísilvélum. Þar er hlutur varaaflsstöðvar Landsnets á Vestfjörðum langstærstur, eða um 30 milljónir króna, sem er aðallega olíukostnaður. „Sú krítíska staða sem rekst- ur flutningskerfisins var í á mánu- dagskvöldið sýnir hversu brýnt er að fjölga flutningslínum sem þola betur veðurálag. Jafnframt þarf að styrkja tengingar milli landshluta og fjölga línum. Þannig megi ætla að Blöndulína 3, sem Landsnet hefur unnið að í sjö ár, hefði get- að komið í veg fyrir straumleysið sem varð á Akureyri og í Eyjafirði ef hún hefði verið komin í gagnið. Sömuleiðis hefði Kröflulína 3, sem verið hefur á döfinni hjá Landsneti í nokkur ár, styrkt raforkuflutning á Austurlandi og gert resktur flutn- ingskerfisins mun öruggari,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson for- stjóri Landsnets að endingu. mm Brýnt að koma raflínum víðar í jörðu Starfshópur á vegum Akraneskaup- staðar og Reykjavíkurborgar mun fyrir jól skila skýrslu þar sem lagt er mat á vænleika þess að tilraunir verði hafnar næsta sumar með flóasiglingar milli Reykjavíkur og Akraness. Sam- kvæmt tillögum starfshópsins verða farnar að minnsta kosti þrjár ferðir á dag frá heimahöfn, þ.e. sex sigling- ar yfir flóann. Markmið starfshópsins var að kanna forsendur fyrir rekstri nýrrar Akraborgar. Ekki er lagt til að bílaferja í líkingu við gömlu Akra- borgina verði notuð í siglingarnar, heldur bátur sem taki um 65 farþega. Með skipan starfshópsins var fylgt eftir viljayfirlýsingu á milli Reykja- víkur og Akraneskaupstaðar frá því í janúar um flóasiglingar. Faxaflóa- hafnir létu vinna frumskýrslu um málið sem borgarráð Reykjavíkur fól skrifstofu eigna- og atvinnuþróun- ar borgarinnar að yfirfara. Hlutverk starfshópsins var að skoða ábending- ar hennar. Stjórnendur Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar fóru í haust prufu- siglingu yfir flóann með hvalaskoð- unarbátnum Rósinni, sem er svipuð ferja og lagt er upp með í skýrslunni að gæti orðið siglt þessa leið. Sú ferð tók 28 mínútur, sem er styttri tími en gert hafði verið ráð fyrir. Nú kem- ur í ljós í niðurstöðum væntanlegr- ar skýrslu að mikið hagræði, eink- um í tíma, gæti orðið af ferjusigling- um sem þessum, t.d. fyrir ferðafólk. Þar með ættu Skagamenn möguleika á stærri hlutdeild í ferðaþjónustu en verið hefur. Ekki síður yrði þó hag- ræði fólgið í styttri ferðatíma fyr- ir íbúa t.d. á Akranesi sem aka dag- lega til Reykjavíkur vegna vinnu eða skóla. Sá hópur er talinn vera á ann- að þúsund manns. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að skýrslan verði lögð fyrir borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarstjórn Akraness og í framhaldinu verði tekin ákvörð- un um það hvort farið verði í prufu- siglingar næsta sumar. mm Tilraunir næsta sumar með „Akraborgar“ hraðbát Svipmynd frá ferð forsvarsmanna Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar í haust þegar farið var með Rósinni yfir flóann. F.v. Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs, Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna, Dagur B Eggertsson borgarstjóri og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á Akranesi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.