Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201542
Bátur brann í Ólafsvíkurhöfn
Eldur kom upp í trillunni Þrasa SH 375 aðfararnótt sunnu-
dagsins 23. janúar. Slökkvilið Snæfellsbæjar var kallað á vett-
vang eftir að vegfarandi varð var við að reyk lagði frá Fingur-
bryggju. Þegar slökkvilið kom á vettvang logaði eldur í Þrasa
frá stefni til skuts. Vel gekk að slökkva eldinn. Báturinn var
mjög illa farinn eftir brunann en þó ekki ónýtur.
Sjónvarp Skessuhorns fór í loftið
Fyrsti þátturinn af Sjónvarpi Skessuhorns var sendur út á
sjónvarpsstöðinni ÍNN að kvöldi miðvikudagsins 28. janú-
ar. Unnið hafði verið að undirbúningi verkefnisins um hríð
og rétt eins og hjá blaðinu voru efnistök þáttanna Vesturland.
Áætlaðir voru tíu þættir, en urðu einungsi þrír. Það slitnaði
upp úr samstarfi ÍNN og Skessuhorns og bíður því þáttagerð
betri tíma hjá Skessuhorni, reynslunni ríkari.
Tertur bornar um borð í Lundey
Loðnuvertíðin hófst 3. febrúar þegar Lundey NS 14 lagði að
bryggju í Akraneshöfn með fyrsta farm vertíðarinnar, um 1500
tonn af loðnu sem öll fór í bræðslu hjá fiskimjölsverksmiðju
HB Granda. Áhöfn skipsins voru færðar tertur af því tilefni,
en hefð hefur skapast fyrir því að áhöfnum loðnuskipa sem
landa fyrstu vertíðarförmunum á Akranesi séu færðar tertur
við komuna. Loðnuvertíðin fór hægt af stað, einkum vegna
erfiðs veðurfars sem tafði veiðarnar. Hins vegar rétti úr kútn-
um og endaði loðnuvertíð ársins 2015 sem metvertíð.
Sameining þriggja
landsbyggðarháskóla
Í febrúarmánuði sendi menntamálaráðherra stjórnendum
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri auk háskólanna á Bif-
röst og Hólum bréf þar sem óskað var eftir tilnefningu full-
trúa í starfshóp um aukinn samrekstur skólanna eða jafnvel
sameiningu. Einnig var óskað eftir fulltrúum frá sveitarstjór-
num Borgarbyggðar og Skagafjarðar. Þingmennirnir Har-
aldur Benediktsson og Ásmundur Einar Daðason eiga sæti í
starfshópnum. Kom þetta til skömmu eftir að menntamála-
ráðherra gerði grein fyrir hugmyndum sínum um sameiningu
háskólanna þriggja í nýrri sjálfseignarstofnun. Ekkert hefur
orðið úr að starfshópurinn skili tillögum, en samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns er hvorki einhugur í starfshópnum né inn-
an stofnananna sem um ræðir.
Sameiginlegt sölu- og þjónustu-
fyrirtæki
Skaginn, Þorgeir & Ellert á Akranesi, ásamt systurfyrirtæki
sínu 3X Technology á Ísafirði, stofnuðu á árinu til sameig-
inlegs reksturs sem sinnir markaðs-, sölu og þjónustustarfi
félaganna þriggja. Fyrirtækin hafa verið í mikilli sókn á und-
anförnum árum við framleiðslu á tæknibúnaði fyrir matvæla-
iðnað og m.a. gert stóra samninga um framleiðslu á vinnslu-
búnaði fyrir uppsjávarfisk, vinnslu á kjúklingakjöti og fleiru.
Þá hafa ný ofur-kælikerfi um borð í fiskiskipum vakið verð-
skuldaða athygli en fyrsta búnaðinum var komið um borð í
Málmey SK snemma á árinu.
„Sigldi skipa hæst, sigldi
skipa glæstast“
Bæjarráð Akraneskaupstað-
ar samþykkti að óska form-
lega eftir samstarfi við rík-
ið og Þjóðminjasafn um
framtíð kútters Sigurfara.
Menningar- og safnanefnd
Akranesskaupstaðar hafði
skömmu áður falið bæjar-
stjórn að afþakka styrk að
verðmæti fimm milljónir
króna ætlaðan til endurbóta
á kútternum þar sem hann
stendur í Görðum. Talið er að endurbætur á kútter Sigur-
fara muni hlaupa á tugum ef ekki hundruðum milljóna króna.
Ástand skipsins, sem stendur á Safnasvæðinu í Görðum, hef-
ur versnað mjög á undanförnum árum. Hugmyndir um að
byggja yfir kútterinn hlutu ekki hljómgrunn meðal stjórn-
enda bæjarins, enda mjög dýr framkvæmd. Á haustmánuðum
var svo ákveðið að óska eftir heimild Minjaverndar til að nýta
áðurveittan fimm milljóna króna styrk til varðveislu heimilda
um kútter Sigurfara. Í tillögunum felst að skipið verði tekið
niður, upplýsingar um það skráðar samviskusamlega og því að
lokum reistur minnisvarði úr heillegum hlutum þess.
Heiðar Lind tók við söguritun
Heiðar Lind Hansson,
sagnfræðingur og fyrrum
blaðamaður á Skessuhorni,
tók formlega við ritun Sögu
Borgarness snemma vors.
Hafði hann aðstoðað Egil
Ólafsson frænda sinn við
ritunina en eftir skyndilegt
fráfall Egils ákvað ritnefnd
að fá Heiðar til verksins.
Vinna við handrit hefur
örlítið tafist, en áætlað var
í upphafi að því yrði skil-
að nú um áramótin. Hef-
ur Heiðar hins vegar greint
ritnefnd frá að hann þurfi
nokkra mánuði til við-
bótar til að ljúka handrit-
inu, vinna að myndaöflun
og öðru tilheyrandi fyrir
prentun. Hins vegar bend-
ir ekkert til annars en að
áætlanir um útgáfu verksins
standist og það verði gefið
út á 150 ára afmæli Borgar-
ness í mars 2017.
Reyndur bílstjóri
Borgfirðingurinn Gísli Jónsson ekur strætisvagni hjá Strætó
bs. Í vetur ók hann áætlunarleið fyrirtækisins milli Akureyri
og Reykjavíkur. Snemma í marsmánuði gerði vont veður og
Holtavörðuheiði var lýst ófær þegar Gísli ók með fullan bíl af
fólki áleiðis frá Akureyri til höfuðborgarinnar. Áðu þá margir
ferðalangar í Staðarskála yfir nóttina. Gísli þvertók hins veg-
ar fyrir að stöðva vagninn þar heldur ók fremstur í flokki bíla-
lestar yfir Laxárdalsheiði og yfir í Dali. Brattabrekka var einn-
ig lokuð og elti bílalestin strætóbílstjórann yfir Heydal og
þaðan í Borgarnes. Ferðin gekk að óskum og Gísli skilaði far-
þegunum heim. Í samtali við Skessuhorn sagði hann að þeg-
ar Holtavörðuheiði lokaði vantaði sárlega upplýsingar til veg-
farenda í Staðarskála. Fáir hafi vitað af því að Laxárdalsheiði
og Brattabrekka væru prýðilega færar þó Holtavörðuheiði og
Brattabrekku hefði verið lokað.
Reyndist ekki vera sprengja
Frystitogarinn Höfrungur III AK 250 fékk torkennilegan hlut
í trollið þar sem skipið var á veiðum suður af Reykjanesskaga
fyrr á árinu. Hluturinn var langur og sívalur og minnti helst
á tundurskeyti úr síðari heimsstyrjöldinni. Haft var samband
við sérfræðinga Landhelgisgæslunnar sem könnuðu málið.
Staðfestu þeir að ekkert hættulegt væri hér á ferðinni, en þó
fékkst ekki staðfest hvaða hlutur þetta var sem Höfrungur III
sótti úr hafinu.
Verði ljós(leiðari)!
Starfshópur um alþjón-
ustu í fjarskiptum skilaði
á árinu skýrslunni „Ís-
land ljóstengt - lands-
átak í uppbyggingu fjar-
skiptainnviða“. Þar var
greint frá því metnaðar-
fulla markmiði að inn-
leiða 100 Mb/sek teng-
ingu á 99,9% heim-
ila í landinu áður en
árið 2020 líður í aldanna skaut. Ljósleiðaramál voru nokk-
uð fyrirferðamikil hér á Vesturlandi í ár sem og undanfarin
ár og flestir orðnir sammála um að ljósleiðaravæðing í sveit-
um landsins sé eitt brýnasta byggðamál samtímans. Í sumar
hratt sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps af stað lagn-
ingu ljósleiðara og fylgdi þar með fordæmi Helgafellssveitar,
Hvalfjarðarsveitar og fleiri sveitarfélaga í landinu sem hafa
ákveðið að bíða ekki aðgerða ríkisins heldur standa sjálf fyrir
ljósleiðaravæðingu heimabyggðar. Vinna við lagningu ljós-
leiðara hefur byrjað í Dalabyggð og víðar eru áform eru uppi
um frekari ljósleiðaravæðingu, til dæmis í Borgarfirði og á
Snæfellsnesi.
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2015 í máli og myndum