Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Side 44

Skessuhorn - 16.12.2015, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201544 Hólabúð á Reykhólum Undir lok marsmánaðar opnuðu hjónin Reynir Þór Róberts- son og Ása Fossdal verslunina Hólabúð á Reykhólum. Áður hafði verið starfrækt verslunin Hólakaup í sama húsnæði, en eigendur hennar létu af rekstri um áramót. Um þriggja mán- aða skeið var því engin verslun á Reykhólum og opnun Hóla- búðar því kærkomin fyrir íbúa svæðisins. Ræsi stíflaðist við Klettsgil Mikið vatn safnaðist í Klettsgil í Reykhólasveit þegar ræsi stífl- aðist í lok marsmánaðar. Flæddi yfir veginn á tímabili og þurfti að bregða á það ráð að veita vatninu aðra leið niður í fjöru. Þeg- ar reynt var að losa úr ræsinu með beltagröfu nokkrum dögum síðar hrundi úr vegkanti undan gröfunni og maraði hún í hálfu kafi um tíma. Henni var bjargað upp úr en þegar þetta er ritað um miðjan desembermánuð er ræsið enn stíflað. Frystiklefinn hlaut Eyrarrósina Eyrarrósin, verðlaun veitt fyrir framúrskarandi menningar- verkefni á landsbyggðinni, kom í hlut Frystiklefans í Rifi á árinu. Kári Viðarsson, eigandi og framkvæmdastjóri Frysti- klefans, hefur staðið fyrir fjölmörgum sýningum, tónleikum og öðrum menningarviðburðum á þeim tíma sem Frystiklef- inn hefur starfað. Kvaðst hann mjög ánægður með verðlaunin og þá viðurkenningu sem í þeim felast. Haftið rofið í ísgöngunum Annan dag páska var síðasta haftið rofið í ríflega 400 m hring ísganganna í Langjökli. Gat þá hafist vinna við að snyrta og ganga frá ísgöngunum. Tekið var á móti fyrstu gestunum 1. júní en þá hafði verið uppselt svo mánuðum skipti. Fjórum dögum síðar voru göngin vígð formlega. Hefur framkvæmd- in hlotið mikla athygli, sérstaklega erlendis og voru göng- in meðal annars valin mest spennandi nýi áfangastaðurinn í flokki afþreyingar af ferðahandbókarisanum Lonely Planet. Um miðjan desembermánuð voru heimsóknir orðnar 60% fleiri en áætlað var í upphafi, en gert er ráð fyrir því að milli 23 og 24 þúsund gestir muni hafa heimsótt göngin áður en nýja árið gengur í garð. Hæfileikaríkust allra Söngkonan Alda Dís Arnardóttir frá Hellissandi stóð uppi sem sigurvegari í þáttunum Ísland Got Talent sem sýndir voru á Stöð 2 á árinu. Vann hún sér inn verðlaunafé að verðmæti tíu milljónir króna og titilinn hæfileikaríkasti Íslendingurinn 2015. Hefur hún síðan þá sent frá sér tónlist og komið víða fram opinberlega og gefið út sína fyrstu plötu. Keppt við klukkuna Keppt var í fornbílarallíi í sumar þegar 33 lið öttu kappi í Hvalfirði og Borgarfirði. Voru þar á ferðinni ökuþórar á veg- um HERO samtakanna sem sérhæfa sig í fornbílarallíi. Far- arskjótar þeirra voru sumir hverjir mjög eftirtektarverðir, eins og til dæmis sá sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Þar aka Wouter Panis og Menno de Haan yfir Hvítárbrúna á 1933 ár- gerð af Talbot 105 Wanden Plas Tourer. Náttúrulaugar við Deildartunguhver Hjónin Jóna Ester Kristjánsdóttir og Sveinn Andrésson í Víði- gerði og Bára Einarsdóttir og Dagur Andrésson í Gróf hófu í sumar framkvæmdir við byggingu náttúrulauga og veitinga- staðar við Deildartunguhver. Fyrsta skóflustungan var tekin í lok apríl og framkvæmdir hafa staðið yfir síðan. Verður næsta vor tekið á móti ferðamönnum undir merkjum fyrirtækisins Krauma og þeim boðið að baða sig í náttúrulaugum sem nýta vatn úr þessum vatnsmesta hver Evrópu. Eimskip keyptu Sæferðir Gengið var á árinu frá kaup- um Eimskipa á öllu hlutafé fyrirtækisins Sæferðum ehf. í Stykkishólmi. Sæferðir reka sem kunnugt er Breiðafjarð- arferjuna Baldur og Særúnu, sem hefur um nokkurt skeið siglt með ferðamenn í skoðunarferðir um eyjar á Breiðafirði. Soffía II fékk andlitslyftingu Lokið var við endursmíði á hinni öldnu hópferðabifreið Soffíu II á árinu. Endursmíðin hafði tekið 18 mánuði og þegar henni lauk var Soffíu ekið í „jómfrúarferð“ í Reykholt, þar sem hún var upphaflega smíðuð. Var það Steindór Rafn Theódórsson sem ók rútunni en hann var jafnframt yfirsmiður við endur- gerð bílsins en að baki liggja um fjögur þúsund vinnustund- ir, svipað og áætlað var við nýsmíði hópferðabifreiða hafi tek- ið þegar Soffía II var gerð á gamalli Bedfordgrind um hálfri öld áður. Það var Elínborg Kristinsdóttir og börn hennar sem hvöttu til og unnu að endurgerð þessa sögufræga bíls. Georg gerður að heiðursborg- ara í Stykkishólmi Elstur núlifandi Íslendinga er Georg Breiðfjörð í Stykkis- hólmi. Hann fæddist 21. mars 1909 og er því á 107. aldursári. Hann var sæmdur heiðursborgaranafnbót Stykkishólmsbæjar á liðnu sumri. Rætt er við Georg aftar í blaðinu í dag. Borgarfjörðurinn „vel girtur“ Félagarnir Guðmundur Kristinn Guðmundsson og Kjartan Guðjónsson unnu í sumar við girðingavinnu meðfram þjóð- vegum í Borgarfirði. Að girða getur verið mikið puð. Þegar þeim var farið að lengja eftir heitara veðri, snemma í sumar, brugðu þeir á það ráð að fækka fötum og ákalla sólarguðina. Færri verða fötin ekki en á meðfylgjandi mynd sem Kjartan tók af Guðmundi, þó seint verði sagt um girðingamanninn að hann sé vel girtur! Framhald á næstu opnu Fréttaannáll ársins 2015 í máli og myndum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.