Skessuhorn - 16.12.2015, Side 48
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201548
Kynna sjávarfang fyrir yngstu
kynslóðinni
Í nokkur ár hafa sjómennirnir Kristófer Jónsson og Eiríkur
Gíslason heimsótt leikskólabörn á Akranesi og sýnt þeim alls
kyns sjávarfang. Engin breyting varð á því í ár sýndu félagarn-
ir börnunum um þrjátíu tegundir fiska og krabbadýra. Ráku
mörg barnanna upp stór augu enda margar tegundirnar sjald-
séðar. Fræddu þeir félagar börnin um fiskana, nöfn þeirra,
hvað þeir éta, hvar þeir veiddust og fleira í þeim dúr.
Vesturland á kortið á heimsvísu
Ferðahandbókaútgáfan Lonely Planet, sú stærsta og virtasta
sinnar tegundar í heiminum, gefur árlega út handbókina
Best in Travel, þar sem áhugaverðustu og eftirsóknarverð-
ustu áfangastaðir heims í hverjum flokki eru útlistaðir. Best
in Travel 2016 kom út á haustmánuðum og þar skipar Vest-
urland annað sæti á lista fyrirtækisins yfir eftirsóknarverð-
ustu áfangastaði heims í flokki landsvæða. Kristján Guð-
mundson, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands, tók við
viðurkenningu þess efnis fyrir hönd Vesturlands við hátíð-
lega athöfn á samgöngusafninu í Lundúnum. Skessuhorn var
á staðnum enda metur ritstjórn þess að nú sé verið að brjóta
blað í vexti ferðaþjónustu í landshlutanum. Spáð hefur ver-
ið stöðugri fjölgun ferðamanna til landsins á næstu árum og
ljóst að þessi tilnefning á eftir að auka heimsóknir á Vestur-
land. Er útnefning Lonely Planet mikil viðurkenning fyrir
svæðið og mega Vestlendingar búast við mikilli uppsveiflu í
ferðaþjónustunni á komandi árum.
Tilraunir með vatnsdreifingu
Í haust sögðum við frá tilraunum sem Guðmundur Hallgríms-
son á Hvanneyri er að gera með færanlegt slökkvikerfi, komi
til gróður- eða skógarelda. Sýndi hann m.a. slökkviliðsmönn-
um á Akranesi hvernig kerfið virkar og voru einnig gerðar
tilraunir með að setja „One Seven“ froðu á slöngurnar. Bál-
hvasst var þegar tilraunin var framkvæmd og þá getur svona
farið.
Góður vinur genginn
Nú í vetrarbyrjun féll frá eftir stutt en snörp veikindi Guðbjart-
ur Hannesson á Akranesi, fyrrverandi skólastjóri, þingmað-
ur, ráðherra og forseti Alþingis. Margir minntust Gutta með
hlýhug, jafnt samferðarfólk og þingmenn úr öllum flokkum.
Á annað þúsund manns fylgdu Guðbjarti síðasta spölinn þeg-
ar útför hans var gerð frá Akraneskirkju. Hér er Guðbjartur á
góðri stundu í kosningabaráttunni vorið 2009 ásamt Jóhönnu
Sigurðardóttur þáverandi formanni Samfylkingarinnar.
Safnaði fyrir kælivöggu
Vesturland á margar hvunndagshetjur sem hver um sig auðgar
mannlífið. Það höfum við á Skessuhorni sannreynt. Ein þeirra
er Andrea Björnsdóttir á Eystri-Leirárgörðum í Hvalfjarðar-
sveit. Á þessu ári safnaði hún ásamt fleirum fyrir kæluvöggu
og færði að gjöf fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands á Akranesi. Vaggan nýtist fyrir andvana fædd börn, eða
þau sem deyja skömmu eftir fæðingu. Er þá foreldrum og fjöl-
skyldum barnanna gert kleift að dvelja aðeins lengur hjá látnu
barni. Komið hefur fram hversu dýrmætar þær stundir geta
verið fyrir syrgjandi ástvini. Andrea safnaði fyrir vögguna með
sölu á ýmsum varningi á mörkuðum.
Hlýnaði seint
Veðráttan í sumar var kaflaskipt. Fólki er minnisstætt rokið í
mars og svo aftur á fyrstu dögum desember en í bæði skipt-
in gengu óvenju snarpar lægðir yfir og ollu usla. Vorið var
kalt og ekki tók að hlýna fyrr en 12. júní, en eftir það reynd-
ist sumarið frábært.
Lítil hey en góð
Heyskapur bænda gekk vel í sumar, en hófst almennt nokkru
síðar en undanfarin ár. Menn voru reyndar farnir að ókyrrast í
vor, enda voru fyrstu vikur sumars kaldar og engin spretta fyrr
en komið var fram undir miðjan júní. Eftir það tók allur jarð-
argróður fljótt og vel við sér. Grasuppskera var í tæpu meðal-
lagi en þau hey sem náðust voru almennt góð. Vegna yfirvof-
andi heyskort slógu sumir bændur tún sín allt að fjórum sinn-
um og var komið fram í október þegar síðast sást til pökkunar-
véla á ferð. Kornþresking gekk hins vegar illa. Kornið þrosk-
aðist seint sökum kuldanna í vor og viðvarandi vætutíð í októ-
ber gerði illmögulegt að þreskja kornið.
Hótel í fremstu röð
Í sumar var tekið í notkun nýtt og glæsilegt heilsárshótel á
Húsafelli. Bygging þess hafði tekið skamman tíma þegar tek-
ið er tillit til óhagstæðs tíðarfars í fyrravetur. Mikið var vand-
að til hönnunar, smíði og frágangs og þykir Hótel Húsafell
skrautfjöður í flóru vestlenskrar ferðaþjónustu. Nú þegar hef-
ur verið ákveðið að stækka hótelið í 50 herbergi.
Fréttaannáll ársins 2015 í máli og myndum